Kínversk stjórnvöld neita því að hafa fellt gjaldmiðil sinn

Bandarísk stjórn­völd hafa sakað kínversk stjórn­völd um að halda uppi fölsku gegni á gjald­miðli sínum. Kínversk stjórn­völd neita ásökuninni og segja slíkar ásakanir hafa slæm áhrif á heims­hagkerfið og núverandi heims­skipan.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Xi Jinping, forseti Kína.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og Xi Jinping, for­seti Kína. Mynd: EPA

Kínversk stjórn­völd harðneita að þau haldi uppi fölsku gengi á gjald­miðli sínum, en virði kínverska Yuansins gegn Bandaríkjadal náði tíu ára lágpunkti í gær. Kínversk stjórn­völd segja í tilkynningu að ásakanir bandarískra stjórn­valda um að Kína haldi uppi fölsku gengi beri vott af einhliða málefna­flutningi og einangrunar­hyggju, jafnframt sem það skaði núverandi heim­skipan gríðar­lega.

Þá eru Banda­ríkin harðlega gagnrýnd fyrir að halda nokkru slíku fram og orðræða bandarískra stjórn­valda sögð bæði sakað Banda­ríkin sjálf sem og önnur ríki.

Ásakanirnar geti skaðað núverandi heimsskipan

Kín­versk yfir­völd segja veik­ing­una vera vegna mark­aðsafla, en sam­kvæmt blaða­mönnum New York Times er það póli­tísk ákvörðun að rík­is­stjórnin hafi leyft gjald­miðli sínum að veikj­ast svona mik­ið. Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti gagn­rýndi veik­ing­una harð­lega á Twitter í gær og ásak­aði Kína um að halda uppi fölsku gengi á gjald­miðl­inum sín­um.

Alþýðu­banki Kína og kínversk stjórn­völd hafa birt á vef Xinhua, kínverskum ríkis­miðli, tilkynningu í kjölfarið. Í henni segir að kínverskum stjórn­völdum þyki það mjög miður að vera stimplað sem ríki sem stjórni gengis­breytingum sínum eða haldi uppi fölsku gengi.

Ásakanirnar séu duttlunga­fullar og beri vott af einhliða málefna­flutningi og einangrunar­hyggju, jafnframt sem það skaði núverandi heims­skipan gríðar­lega. Því er enn fremur haldið fram að ásakanirnar hafi afar slæm áhrif á heims­hagkerfið og fjármála­kerfi heimsins.

Segjast fara eftir markaðslögmálum

Í tilkynningunni segir að kínversk stjórn­völd fari eftir markaðs­lögmálum og að gengi Yuansins fari eftir lögmálum framboðs og eftir­spurnar en sé ekki stjórnað af kínverskum stjórn­völdum. Síðustu átta ár hafi gengi kínverska Yuansins fallið vegna breytinga í heims­hagkerfinu. Frá árinu 2018 hafi Banda­ríkin stöðugt ýtt undir deilur hvað varðar viðskipti, segir í tilkynningunni. Kína hafi hins vegar reynt að forðast deilur eftir bestu getu.

„Banda­ríkjunum er sama um stað­reyndir, sama þótt þau klíni á Kína að það „stjórni gengis­breytingum“ sínum, þá skaðar sú hegðun Banda­ríkin sjálf sig og aðra, og Kína er afar mótfallið því,“ segir í tilkynningunni. Þá segir einnig að Kína muni halda áfram að fara eftir reglum framboðs og eftir­spurnar.

„Þetta mun ekki einungis skaða fjármála­stöðugleika heimsins alvarlega, skapa óróa í fjármála­kerfinu, heldur mun þetta einnig tefja fyrir um alþjóða­viðskiptum og bata efnahags­kerfis heimsins.“

Kínverskar vörur samkeppnishæfari

Yuanið hefur sögu­lega verið undir ströngu eft­ir­liti kín­verskra stjórn­valda sem haldið hafa gengi gjald­mið­ils­ins stöð­ugu með tíðum rík­is­inn­grip­um. Í gær veikt­ist gjald­mið­ill­inn hins vegar um eitt pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal og er því orð­inn veik­ari en því sem nemur einum sjö­unda af doll­ara í fyrsta skipti frá heimskrepp­unni árið 2008.

Með veik­ingu Yuans­ins verða kín­verskar útflutn­ings­greinar sam­keppn­is­hæf­ari, en það dregur úr áhrif vernd­ar­toll­ana sem Banda­rík­is­stjórn hafa sett á þar­lendar vör­ur. Veik­ingin gæti því leitt til enn frek­ari tolla­hækk­ana af hálfu Banda­ríkja­stjórn­ar, sem myndi aftur leiða til meiri veik­ing­ar. Slík dómínóá­hrif myndu hafa víð­tæk áhrif meðal kín­versks almenn­ings og ann­arra ríkja í Suð-Austur Asíu sem flytja einnig út vörur til Banda­ríkj­anna, þar sem veik­ara gengi myndi leiða til verð­bólgu vegna verð­hækk­ana á inn­fluttum vörum og þar af leið­andi minni kaup­mátt.

Fjár­festar virð­ast við­búnir harð­ari átökum milli Kína og Banda­ríkin eftir veik­ing­una í gær, en Stand­ard og Poors og FTSE vísi­töl­urnar lækk­uðu báðar um tvö og hálft pró­sent og Nikkei vísi­talan í Japan lækk­aði um tæp tvö pró­sent

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár