Gjaldmiðlastríð mögulegt milli Bandaríkjanna og Kína

Kína hefur byrjað að nota gjald­miðilinn sinn sem vopn í viðskipta­stríði sínu við Banda­ríkin. Slíkar aðgerðir gætu undið upp á sig og haft víðtæk áhrif í allri Austur-Asíu.

Xi Jinping, leiðtogi Alþýðulýðveldisins Kína
Xi Jinping, leið­togi Alþýðu­lýð­veld­is­ins Kína Mynd: EPA

Virði kínverska yuansins gegn Bandaríkjadal náði tíu ára lágpunkti í gær. Samkvæmt umfjöllun New York Times um málið var veikingin notuð sem vopn í yfir­standandi viðskipta­stríði Banda­ríkjanna við Kína. 

Yuanið hefur sögulega verið undir ströngu eftirliti kínverskra stjórn­valda sem haldið hafa gengi gjald­miðilsins stöðugu með tíðum ríkis­inngripum. Í gær veiktist gjald­miðillinn hins vegar um eitt prósent gagnvart Bandaríkjadal og er því orðinn veikari en því sem nemur einum sjöunda af dollara í fyrsta skipti frá heims­kreppunni árið 2008.

Kínversk yfirvöd segja veikinguna vera vegna markaðs­afla, en samkvæmt blaða­mönnum New York Times er það pólitísk ákvörðun að ríkis­stjórnin hafi leyft gjald­miðli sínum að veikjast svona mikið. Donald Trump Bandaríkja­forseti gagnrýndi veikinguna harðlega á Twitter í gær og ásakaði Kína um að halda uppi fölsku gengi á gjald­miðlinum sínum, eins og sjá má hér að neðan.

Með veikingu yuansins verða kínverskar útflutnings­greinar samkeppnis­hæfari, en það dregur úr áhrif verndar­tollana sem Banda­ríkisstjórn hafa sett á þarlendar vörur. Veikingin gæti því leitt til enn frekari tolla­hækkana af hálfu Bandaríkja­stjórnar, sem myndi aftur leiða til meiri veikingar. Slík dómínóáhrif myndu hafa víðtæk áhrif meðal kínversks almennings og annarra ríkja í Suð-Austur Asíu sem flytja einnig út vörur til Banda­ríkjanna, þar sem veikara gengi myndi leiða til verðbólgu vegna verð­hækkana á innfluttum vörum og þar af leiðandi minni kaupmátt.

Fjár­festar virðast viðbúnir harðari átökum milli Kína og Banda­ríkin eftir veikinguna í gær, en Standard og Poors og FTSE vísi­tölurnar lækkuðu báðar um tvö og hálft prósent og Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um tæp tvö prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár