Demókratar hóta því að ákæra Trump til embættismissis strax á miðvikudag

Demó­kratar hafa boðað að Donald Trump verði ákærður til embættis­missis á miðviku­daginn ef honum verði ekki velt úr embætti í krafti 25. greinar stjórnar­skrá Banda­ríkjanna eða láti sjálfur af embætti næsta sólar­hringinn.

Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni.
Nancy Pelosi, leið­togi demókrata í full­trúa­deild­inni. Mynd: EPA

Demó­kratar í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings hafa kynnt ákæru­efnin á hendur Donald Trump Bandaríkja­forseta og boða að gengið verði til atkvæða í fulltrúa­deildinni um hvort forsetinn verði ákærður til embættis­missis eður ei í þessari viku, jafnvel strax á miðvikudag.

Bandarískir miðlar segja frá þessu í dag og New York Times birtir ákæru­skjalið, sem demó­kratar hóta nú að bera undir atkvæði í fulltrúa­deildinni. Það gera þeir í kjölfar þess að tillögu þeirra um að skorað yrði á Mike Pence vara­forseta um að beita 25. grein stjórnar­skrárinnar til að svipta Trump völdum var hafnað af repúblikönum.

Samkvæmt frétt New York Times verður ákæru­skjal demó­kratanna lagt fyrir fulltrúa­deildina á miðvikudag, ef svo fer sem horfir að Pence beiti sér ekki gegn Trump næsta sólar­hringinn eða forsetinn segi sjálfur af sér embætti.

Samkvæmt sömu frétt hafa 210 þingmenn Demókrata­flokksins þegar samþykkt að ákæra forsetann á miðvikudag, ef ákæru­skjalið verður borið undir fulltrúa­deildina. Það er því þegar næstum því kominn meirihluti fyrir málinu í fulltrúa­deildinni og búist er við að einhverjir repúblikanar sláist í hópinn, samkvæmt frétt Times.

Á meðal þess sem demó­kratar hyggjast ákæra Trump fyrir er að ógna öryggi Banda­ríkjanna, með því að hvetja með lygum til þess að æstur múgur lét til skarar skríða síðasta miðvikudag.

Í ákæru­skjalinu segir að forsetinn hafi ógnað heilindum lýðræðis­kerfisins, haft afskipti af frið­samlegum valda­skiptum og stefnt þinginu í hættu með því að hvetja æstan múg til ofbeldis­verka gegn ríkis­stjórn Banda­ríkjanna, með ræðu sinni á mótmæla­fundi í Washington síðasta miðvikudag.

Verði ákæra á hendur Trump samþykkt færist málið til öldunga­deildar Banda­ríkjaþings þar sem þingmenn kjósa um hvort forsetanum skuli vikið úr embætti eða ekki, en einungis 9 dagar eru nú þar til Joe Biden tekur við sem næsti forseti Banda­ríkjanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár