Borgarstjóri segir forstjóra ÁTVR hafa lofað því að það verði áfram Vínbúð í miðborginni

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri segir að hann og Ívar J. Arndal forstjóri ÁTVR hafi handsalað það á fundi að jafnvel þótt Vínbúðin í Austur­stræti myndi loka yrði auglýst eftir 1-2 nýjum stað­setningum fyrir Vínbúðir í miðborg Reykja­víkur.

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri segir að það verði áfram verslun ÁTVR í miðborg Reykja­víkur, í auðveldu göngufæri – og jafnvel tvær. Þetta segir hann að hafi komið fram á fundi hans með Ívari J. Arndal, forstjóra ÁTVR.

Borgar­stjóri ræddi málið í nokkrum færslum á Twitter í morgun og rakti þar umræðuna um sem skapaðist eftir að ÁTVR auglýsti eftir nýju húsnæði á miðborgar­svæðinu og kynnti síðan að stað­setning á Grandanum, nánar tiltekið við Fiskislóð 10, hefði verið metin álitlegust.

Auglýst eftir 1-2 nýjum stöðum í miðborginni ef Austurstræti yrði lokað

„Fjölmargir bentu á að það þyrfti verslun í miðborginni áfram ef þetta yrði,“ skrifar Dagur og bætir svo við að hann og forstjóri ÁTVR hafi handsalað „að búðin í Austur­stræti myndi ekki loka þrátt fyrir að samningar næðust á Grandanum“ og jafnframt að forstjóri ÁTVR hefði upplýst að ef Austur­strætinu yrði lokað „yrði auglýst eftir 1-2 vel stað­settum en minni verslunum á miðborgar­svæðinu til að koma í staðinn.“

„Þetta finnst mér góð niður­staða og vel hægt að sjá fyrir sér tvær minni verslanir, önnur á svæðinu Lækjar­torg/Hafnar­torg og hin á Hlemm­svæðinu sem myndi koma til móts við þann stóra fjölda fólks sem býr og vinnur á þessu svæði eða er þar sem ferðamenn. Flott, ÁTVR,“ skrifar borgar­stjóri og bætir við að hann hafi átt góða reynslu af samskiptum við ÁTVR í þessum málum.

„Átti á sínum tíma fund eftir að Vínbúðin flutti úr Grafar­vogi sem lauk með þeirri niður­stöðu að ÁTVR setti upp búð í Spönginni, við hliðina á nýja bóka­safninu okkar sem hefur hvoru tveggja styrkt Spöngina,“ segir Dagur, á Twitter.

Greint var frá því undir lok októ­ber­mán­aðar að ÁTVR leit­aði eftir nýju versl­un­­ar­­plássi undir nýja verslun í mið­­borg Reykja­víkur og sæi fyrir sér að hætta mög­u­­lega rekstri Vín­­­búð­­ar­innar í Aust­­ur­­stræti. Fyr­ir­ætl­­­anir fyr­ir­tæk­is­ins, og skil­yrði þess um næg bíla­­stæði fyrir við­­skipta­vini, vöktu blendin við­brögð.

Var það ekki í fyrsta sinn sem ÁTVR fékk á sig gagn­rýni fyrir að hafa uppi áform um færa versl­anir sínar á staði þar sem hand­hæg­ara er að koma á eigin bíl en gang­andi eða hjólandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár