Vilja skylda ÁTVR til að eiga samráð við sveitarfélög um staðsetningu Vínbúða

Þingmenn Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks hafa lagt fram frumvarp sem myndi gera ÁTVR skylt að hafa samráð við sveitar­félög um staðarval undir nýjar Vínbúðir. ÁTVR leist mjög illa á frum­varpið þegar það var áður lagt fram árið 2019.

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bryndís Haralds­dóttir þingmaður Sjálfstæðis­flokks og Ágúst Bjarni Garðarsson þingmaður Framsóknar­flokks hafa lagt fram frumvarp þess efnis að ÁTVR skuli hafa samráð við sveitar­stjórnir um staðarval þegar verið er að opna nýjar áfengis­verslanir.

Þetta er í þriðja sinn sem þetta frumvarp er lagt fram, en það hefur ekki hlotið afgreiðslu til þessa. Í greinar­gerð með frum­varpinu segir að það sé þekkt að sveitar­félög hafi ekki alltaf verið sátt með stað­setningu verslana ÁTVR og jafnvel talið að staðarval opinbera fyrir­tækisins, sem heyrir undir stjórn fjármála­ráðuneytisins, vinni gegn markmiðum þeirra í skipulags- og umhverfis­málum.

„Sem dæmi má nefna að sveitar­félagið Garðabær hefur ítrekað kvartað yfir því að ÁTVR hafi einhliða lokað verslun sinni í miðbæ Garða­bæjar og hafi svo nokkrum árum síðar opnað nýja verslun í Kauptúni en ekki í miðbæ Garða­bæjar þrátt fyrir skýrar óskir sveitar­félagsins þar um. Sama gerðist með verslun ÁTVR í Hafnar­firði. Sú staða er óbreytt og nú er fyrir­hugað að flytja verslun ÁTVR úr miðborg Reykja­víkur, þ.e. verslunina við Austur­stræti, svo dæmi sé tekið,“ segir í greinar­gerðinni með frum­varpinu.

Fyrir skemmstu bárust þau tíðindi að ÁTVR horfði helst til húsnæðis við Fiskislóð 10 á Granda fyrir nýja verslun miðsvæðis í Reykjavík, en fyrir­ætlanir fyrir­tækisins um mögulegan flutning úr Austur­stræti hafa vakið upp blendin viðbrögð.

Í greinar­gerð með frumvarpi þeirra Bryndísar og Ágústs Bjarna er rifjað upp að þegar málið var flutt á 150. löggjafar­þingi lýsti Samband íslenskra sveitar­félaga sig sammála því að það yrði að lögum, þar sem sveitar­félög væru í auknum mæli farin að nýta skipulags­valdið til að efla verslun og þjónustu innan íbúðar­hverfa, styðja við umhverfis­vænni samgöngur og haga skipulagi þannig að sem minnst þörf sé fyrir akstur um langar vega­lengdir til að sækja verslun og þjónustu. Því væri eðlilegt að ÁTVR hefði samráð við sveitar­félög um stað­setningu verslana.

Tillagan mögulega „skaðleg hagsmunum ÁTVR“

Er málið var til þinglegrar meðferðar haustið 2019 sendi ÁTVR einnig inn umsögn um málið og sagði þar að tillagan væri hreint og beint óþörf. ÁTVR þyrfti nú þegar að sækja um leyfi til rekstrar áfengis­verslunar til viðkomandi sveitar­stjórnar og sveitar­félagi gæti á því stigi sett fram sín sjónarmið varðandi stað­setningu, þó það gæti væntanlega ekki skilyrt leyfið eða bundið við einn verslunar­kjarna frekar en annan.

„Í tillögu þeirri sem hér liggur fyrir er gert ráð fyrir einhvers konar lögbundnu samráði, án þess að þar segi nokkuð um það hvernig því samráði skuli háttað eða hver hafi úrslita­valdið að því loknu. Þegar veru­leikinn er sá að öll samskipti og samráð eru hvort sem er opin á báða bóga verður varla séð að lögbinding einhvers óljóss samráðs­ferlis, með enn óljósari niður­stöðu, þjóni einhverjum tilgangi og gæti beinlínis verið skaðleg hagsmunum ÁTVR,“ sagði í umsögn ÁTVR, sem Ívar J. Arndal forstjóri fyrir­tækisins undir­ritaði.

Auk þess að telja tillöguna óþarfa sagði í umsögn ÁTVR að tillagan væri „aftur­hvarf til pólitískra afskipta og gamalla tíma“ og loks taldið fyrir­tækið tillöguna „geta falið í sér ákveðna lagalega áhættu, ef horft er til nútíma viðskipta­hátta og þróunar samkeppnis­réttar og reglna um opinber innkaup.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár