Vínbúðin gagnrýnd fyrir að leita sér að bílvænni stað í miðborginni

Fréttir af því að ÁTVR kanni mögu­leikann á að finna nýjan stað undir Vínbúð í miðborg Reykja­víkur hafa fallið í grýttan jarðveg hjá ýmsum. Ríkis­fyrirtækið hefur áður sætt gagnrýni fyrir að reka stefnu sem miði að því að fólk komi keyrandi að kaupa vín.

ÁTVR leitar nú að nýju plássi undir Vínbúð í miðborg Reykjavíkur.
ÁTVR leitar nú að nýju plássi undir Vínbúð í mið­borg Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Fregnir bárust af því í gær að ÁTVR leitaði eftir nýju verslunar­plássi undir nýja verslun í miðborg Reykja­víkur og sæi fyrir sér að hætta mögulega rekstri Vínbúðarinnar í Austur­stræti. Fyrir­ætlanir fyrir­tækisins, og skilyrði þess um næg bílastæði fyrir viðskipta­vini, hafa fengið blendin viðbrögð á samfélags­miðlum.

Í útboðs­lýsingu Ríkis­kaupa fyrir hönd ÁTVR, sem birt var þann 21. október, segir að óskað sé eftir að taka á leigu 400-600 fermetra húsnæði undir Vínbúð, á svæði sem afmarkast af Snorra­braut, Hverfis­götu, Tryggva­götu, Geirsgötu „og til sjávar í norður.“

Viðskipta­blaðið sagði fyrst frá málinu og hafði eftir Sigrúnu Ósk Sigurðar­dóttur aðstoðar­forstjóra ÁTVR að endanleg ákvörðun hefði ekki verið tekin um tilfærslu.

„Austur­strætis­búðin er óhentug. Hún er á tveimur hæðum, við erum með lagerinn niðri, og svo er bara mjög erfitt um flutninga til og frá búðinni,“ hafði blaðið eftir Sigrúnu.

Næg bílastæði á meðal skilyrða

Samkvæmt útboðs­lýsingunni, sem fjallað er um í frétt Viðskipta­blaðsins, segir að skilyrði ÁTVR séu þau að húsnæðið sé á vel skilgreindu verslunar­svæði, liggi vel við almennings­samgöngum, umferð að og frá því sé greið, það sé á jarðhæð, bjóði upp á að vöruhurð opnist beint á bak- eða hliðar­svæði, hafi góða aðkomu og næg bílastæði fyrir viðskipta­vini og starfs­fólk, helst um tuttugu slík sem megi sérmerkja Vínbúðinni, gott aðgengi fyrir hreyfi­hamlaða og góða aðkomu fyrir flutninga­bíla, auk annars.

Þessi skilyrði hafa sem áður segir fallið í grýttan jarðveg hjá sumum, en ríkis­fyrirtækið hefur áður hlotið gagnrýni fyrir að staðsetja verslanir sínar á stöðum þar sem langflestir viðskipta­vinir koma á sínum einkabíl.

Umræða um hið sama átti sér sömuleiðis stað þegar Vínbúðinni í Borgar­túni var lokað fyrr á árinu og þá hafa fleiri ákvarðanir ÁTVR um opnun og lokun verslana sætt gagnrýni á umliðnum árum, til dæmis stað­setning nýrrar verslunar fyrir­tækisins í Kauptúni í Garðabæ, en áður var ÁTVR með útibú á Garða­torgi. Bæjar­yfirvöld í Garðabæ furðuðu sig á því að ÁTVR vildi ekki opna verslun miðsvæðis í bænum.

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarps­maður og fyrr­verandi borgar­fulltrúi, segir að ÁTVR sé með „hrikalega fjandsamlega stefnu“ gagnvart fólki sem ekki sé á bíl. „Algjör­lega óþolandi og gamaldags,“ skrifar Gísli Marteinn í umræðum sem spunnist hafa um málið á Twitter.

Nokkuð margir láta sig málið varða – og í umræðunum hefur því verið velt upp hvort einhver stað­setning í grennd við núverandi Vínbúð í Austur­stræti geti mætt þeim þeim kröfum sem nefndar eru í útboðs­lýsingunni.

Hafnar­torg hefur borið á góma, en þar er reyndar ólíklegt að tuttugu bílastæði fáist sérmerkt ÁTVR þrátt fyrir að bíla­stæðin undir verslunar­kjarnanum skipti hundruðum. Tilfærsla Vínbúðarinnar út í bílmiðaðann stór­verslana­kjarnann á Granda virðist sumum sennilegasta niður­staðan.

„Ef ÁTVR færir sig af Austur­stræti út á Granda þá fer ég að halda að fyrir­tækinu sé í nöp við okkur sem hjólum og göngum í búðir. Sorglegt að fyrirtæki í opinberri eigu skuli haga sér svona,“ skrifar Snæbjörn Brynjarsson um málið, en hann gagnrýnir einnig núverandi stað­setningu verslunar ÁTVR í Hafnar­firði. Vínbúðin í Hafnar­firði flutti úr Firði í Hafnar­firði og yfir í Hellu­hraun, sem kalla má ansi bílmiðaðan kjarna í Hafnar­firðinum, árið 2014.

„Ef ÁTVR væri inni í firðinum í Hafnar­firði þá myndi það hafa keðju­verkandi áhrif á annan rekstur þar í kring og auka flæði fólks um gamla bæinn og ýta undir fjöl­breyttari samgöngu­máta,“ skrifar Snæbjörn.

Friðjón Friðjónsson, vara­þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, er einn þeirra sem sér Grandann helst fyrir sér út frá útboðs­skilyrðunum sem fjallað hefur verið um og hann segist vona, sem talsmaður þess að sala á áfengi færist á hendur annarra en ríkisins, að „ÁTVR standi fast á kröfunni um 20 sérmerkt stæði sem er ómögulegt að uppfylla.“

„Það eru meiri líkur á því að við fáum frelsi ef þing­heimur og Stjórnar­ráðs­staff getur ekki rölt og kippt einni vínflösku með áður en heim er haldið,“ skrifar Friðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár