Vínbúðin stefnir á Fiskislóð

ÁTVR segist ætla að ganga til samninga við eigendur húsnæðis að Fiskislóð 10 á Granda um leigu á plássi undir nýja Vínbúð. Ekki er búið að taka endanlega ákvörðun um lokun Vínbúðar í Austur­stræti.

Vínbúðin stefnir nú út á Granda, þar sem fjöldi stórmarkaða er staðsettur.
Vínbúðin stefnir nú út á Granda, þar sem fjöldi stór­mark­aða er stað­settur. Mynd: RÚV

ÁTVR horfir til þess að opna nýja Vínbúð að Fiskislóð 10 á Granda. Þetta kemur fram á vef Frétta­blaðsins í dag, en þar er haft eftir Sigrúnu Ósk Sigurðar­dóttur aðstoðar­forstjóra ÁTVR að húsnæðið á Fiskislóð hafi verið það eina sem stóðst þær kröfur sem settar voru fram af hálfu ríkis­fyrir­tækisins.

Greint var frá því undir lok október­mánaðar að ÁTVR leit­aði eftir nýju versl­un­ar­plássi undir nýja verslun í mið­borg Reykja­víkur og sæi fyrir sér að hætta mögu­lega rekstri Vín­búð­ar­innar í Aust­ur­stræti. Fyr­ir­ætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins, og skil­yrði þess um næg bíla­stæði fyrir við­skipta­vini, vöktu blendin viðbrögð.

Var það ekki í fyrsta sinn sem ÁTVR fékk á sig gagnrýni fyrir að færa verslanir sínar á staði þar sem hand­hægara er að koma á eigin bíl en gangandi eða hjólandi. Verslun ÁTVR í Austur­stræti er sennilega sú eina á höfuð­borgar­svæðinu þar sem fleiri viðskipta­vinir koma gangandi en á bílnum.

Krafa um nóg af bílastæðum

Sam­kvæmt útboðs­lýs­ing­unni sem sett var fram voru skil­yrði ÁTVR þau að hús­næðið væri á vel skil­greindu versl­un­ar­svæði, lægi við almenn­ings­sam­göng­um, umferð að og frá því væri greið, það væri á jarð­hæð, byði upp á að vöru­hurð opn­aðist beint á bak- eða hlið­ar­svæði, hefði góða aðkomu og næg bíla­stæði fyrir við­skipta­vini og starfs­fólk, helst um tutt­ugu slík sem mætti sér­merkja Vín­búð­inni, gott aðgengi fyrir hreyfi­haml­aða og góða aðkomu fyrir flutn­inga­bíla, auk ann­ars.

Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að fjögur húsnæði hefðu verið boðin fram í útboðinu, en auk húsnæðisins við Fiskislóð sem áður hýsti útibú Íslands­banka voru það Hall­gerðargata 19-23 í Laugarnesi, Hringbraut 119-121 og Hall­veigar­stígur 1. Húsnæðið við Fiskislóð var það eina sem uppfyllti kröfur ÁTVR.

Ekki búið að taka ákvörðun um lokun Austurstrætis

Í frétt Frétta­blaðsins er haft eftir Sigrúnu Ósk að Ríkis­kaupum hafi verið falið að hafa samband við bjóðendur og kynna niður­stöðuna. Næsta skref sé svo að fara í viðræður við eigendur húsnæðisins að Fiskislóð 10 og sjá hvort samningar náist.

„Það verður ekki fyrr en niður­staða liggur fyrir úr þeim viðræðum að ákvörðun verður tekin um opnun nýrrar Vínbúðar og þá hugsanlega lokun á Vínbúðinni í Austur­stræti,“ er haft eftir Sigrúnu á vef Frétta­blaðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár