Umdeildustu mál Hillary Clinton

Nú er svo komið að Hillary Clinton á góða mögu­leika á því að gegna valda­mesta emb­ætti heims. Ýmsar spurn­ingar hafa und­an­farið vaknað varð­andi það sem hún hefur gert á leið sinni aftur í Hvíta húsið. Verður hér farið yfir nokkur umdeild mál.

Hillary.
Hillary. Tár, bros og hæla­skór. Mynd: Shutterstock

Í far­s­anum sem for­val for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum hefur verið, þar sem Donald Trump hefur boðað úti­lokun múslima og kallað eftir því að fólk fylgist með nágrönnum sínum vegna mögu­legra hryðju­verka, hefur Hillary Clinton virst sem örugg­ari fram­bjóð­and­inn. Í sam­an­burði við Trump, sýn­ist hún frjáls­lynd­ari, heið­ar­legri og rök­fast­ari val­kost­ur­inn.

Það sem færri vita kannski, er að Hillary Clinton hefur ýmis­legt veru­lega vafa­samt á fer­ils­skrá sinni en allt frá því Bill Clinton tók við emb­ætti rík­is­stjóra Arkansas undir lok átt­unda ára­tug­ar­ins, hafa hneyksli og dul­ar­fullir atburðir átt sér stað í kringum þau hjónin, Hillary og Bill.

Hillary Clinton varð fyrst þekkt á alheims­vísu sem for­seta­frú manns­ins síns, hins sjar­mer­andi sax­ó­fón­leik­ara Bill Clintons. Hún vakti athygli fyrir að taka virk­ari þátt í stjórn­málum en for­verar hennar höfðu áður gert. Síðan hefur hún svo fest sinn eigin feril í stjórn­málum ræki­lega í sessi.

Eftir að Bill lét af emb­ætti árið 2001 var Hillary kjörin til setu í öld­unga­deild­ar­þing­inu fyrir New York-ríki til árs­ins 2009. Í for­vali Demókra­ta­flokks­ins árið 2008 sótt­ist hún eftir útnefn­ingu sem for­seta­efni flokks­ins, en laut naum­lega í lægra haldi fyrir hinum unga, og þá að mestu óþekkta, Barack Obama. Eftir að Obama sigr­aði kosn­ing­arnar gerði hann Hillary þó að inn­an­rík­is­ráð­herra, sem er gríð­ar­lega valda­mikið emb­ætti, og hefur hún gegnt því frá árinu 2009.

Nú er svo komið að Hillary Clinton á góða  mögu­leika á því að gegna valda­mesta emb­ætti heims. Ýmsar spurn­ingar hafa und­an­farið vaknað varð­andi það sem hún hefur gert á leið sinni aftur í Hvíta húsið. Verður hér farið yfir nokkur umdeild mál.

Whitewater: Vafasamt brask tengt banka

Áður en Bill tók við emb­ætti rík­is­stjóra Arkansas reyndu hjónin fyrir sér í braski með sölu og kaupum á land­ar­eignum. Í sam­starfi við önnur hjón, banka­eig­end­urna Jim og Susan McDougal, keyptu þau land­svæði sem þau hugð­ust selja undir eins konar sum­ar­hús. Fyr­ir­tækið sem sett var á fót til þess að halda utan um við­skiptin hét Whitewater. Salan á land­svæð­inu gekk illa, en Jim McDougal keypti engu að síður meira land í sama til­gangi, með aðstoð frá Clinton-hjón­unum og með lánum úr sínum eigin banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakjör í BNA 2016

ErlentForsetakjör í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár