Jæja Gylfi Ægisson, mikið var nú gott að fá frí frá þér og þínu rausi um hinsegin fólk eftir að þú skeist í buxurnar þarna um árið. Fótósjoppuðum myndum af typpasleikjóum dreifðirðu um veraldavefinn líkt og andskotinn sjálfur væri hlaupinn í þig. Þú fékkst þjóðina upp á móti þér og ég varð sannfærður um að þú hefðir litið í eigin barm fyrst þú steinþagðir svona lengi í kjölfarið.
Sautjánda apríl síðastliðinn ollirðu mér vonbrigðum, mér varð ljóst að þú hefðir ekkert lært. Mögulega hertust fordómar þínir í garð hinsegin fólks, í þögninni sannfærðirðu sjálfan þig enn frekar um óeðli þeirra sem eru ekki eins og þú. Í stöðuuppfærslu á facebook tjáðirðu þig um hinseginfræðslu sem hafnfirskir skólar hafa innleitt; þar kemur meðal annars fram að þú teldir kynhneigð valkvæma, að á hana væri hægt að hafa áhrif með heilaþvotti.
„Ég var skíthræddur um hvað öðrum myndi finnast ef einhver kæmist að mínu hræðilegasta leyndarmáli, að ég væri samkynhneigður.“
Sjálfur hefði ég þurft meiri fræðslu um málefni hinseginfólks á minni skólagöngu, enda olli mín kynhneigð mér miklum áhyggjum meðan ég var að átta mig á stöðu mála. Sífellt reyndi ég að sannfæra sjálfan mig um að ég væri „eðlilegur“, mig langaði að verða eins og hinir. Ég var skíthræddur um hvað öðrum myndi finnast ef einhver kæmist að mínu hræðilegasta leyndarmáli, að ég væri samkynhneigður.
Núna veit ég að ég er ekki vandamálið. Vandamálið ert þú, kæri Gylfi. Fólk eins og þú, sem hatast og argast út í aðra sem eru ekki eins og þér hugnast. Þú ert samfélagsmein. Fræðsla um hinsegn málefni, sem mun líklega minnka vanlíðan og jafnvel koma í veg fyrir sjálfsvíg barna og unglinga, er þörf. Því get ég lofað þér, því að það eru ekki allir eins og þú, Gylfi.
Hvernig væri nú heimurinn án haturs, án fólk sem hugsar ekki út fyrir sjálft sig, án fólks sem sér hag sinn í að upphefja sjálft sig á kostnað minnihlutahópa? Ég hugsa að þannig væri ástandið allavega betra. Við værum kannski uppteknari af því að vera góð hvort við annað, en ekki svona skrambi ómerkileg eins og þú. Mögulega þyrftum við ekki svona ,,hinseginfræðslu" eins og hafnfirsku skólarnir hafa innleitt, án orsakar þyrftum við ekki að reyna að koma í veg fyrir afleiðinguna.
„Sjáðu fegurðina í veröldinni og reyndu að gleðjast með okkur sem höfum losnað úr þeim fjötrum sem hömluðu okkur hinseginfólki fyrir einungis áratugum síðan.“
Ég ætla þess vegna að gera tilraun til að biðja þig um að hætta að rífa niður fólk sem passar ekki inn í normið sem þú hefur skilgreint einn með sjálfum þér á jafn þröngan máta og flestum er kunnugt. Hættu að ráðast á fólk eins og mig. Ég má svosem alveg við því, ég veit að þú er vandinn, ekki ég. Það gildir þó ekki um alla sem eru hinsegin, orðræða meiðir þá sem liggja vel við höggi, orðræða eins og þín orsakar depurð og sjálfsvígshugleiðingar fólks sem ætti að fá að blómstra eins og það er fætt. Kæri Gylfi, taktu sjálfan þig og umheiminn í sátt. Sjáðu fegurðina í veröldinni og reyndu að gleðjast með okkur sem höfum losnað úr þeim fjötrum sem hömluðu okkur hinseginfólki fyrir einungis áratugum síðan. Eigum við kannski bara að vera vinir?
Höfundur er talsmaður ungra vinstri grænna.













































Athugasemdir