Ever Given laust af strandstað

Augu heims­byggðarinnar hafa verið á flutninga­skipinu risavaxna sem sat fast í Súes-skurði í tæpa viku. Forseti Egypta­lands hrósaði sigri eftir að það tókst að hreyfa skipið til í nótt og nú siglir það frá strand­stað.

Nú eru liðnir rúmir sex sólar­hringar frá því að Ever Given, eitt stærsta flutninga­skip veraldar, festist í bakka Súes-skipa­skurðarins í Egypta­landi. Skömmu eftir hádegi í dag sigldi það á brott af strand­stað.

Í nótt, á sjötta tímanum að egypskum tíma, náðist smá árangur. Skipið flaut að hluta og réttist við í skurðinum.

„Góðu fréttirnar eru þær að skuturinn er laus en við horfðum nú á það sem einfaldasta hluta verksins,“ sagði forstjórinn, Peter Berdowski, í samtali við hollensku útvarps­stöðina NPO Radio 1. Vísað var til orða hans í umfjöllun breska blaðsins Guardian, sem fylgist með fram­vindunni í Súes-skurði eins og aðrir helstu fjöl­miðlar heims.

Enda um sann­kallaðan heims­viðburð að ræða. Heims­markaðsverð á olíu lækkaði lítið eitt í morgun eftir að fregnir bárust af því að árangur hefði náðst í því að losa skipið og draga það til hliðar.

Í hádeginu í dag sagði Reuters þó frá því að skipið hefði flotið til baka í fyrri stöðu, þvert á skipa­skurðinn, en töluverður vindur er nú á svæðinu. Það strandaði þó ekki á ný.

Og nú er það komið af stað, áleiðis norður skipa­skurðinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Fleiri en 400 skip hafa beðið eftir því að komast leiðar sinnar um skipa­skurðinn, en ýmis skipa­félög höfðu reyndar ákveðið að bíða ekki og vona heldur leggja þess í stað á sig 9.000 kíló­metrum lengra ferðalag suður fyrir syðsta horn Afríku á leið sinni á milli Asíu og Evrópu. Að fara þá leið er sagt bæta á bilinu sjö til tíu dögum við siglinga­tímann.

Forseti fagnar

Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egypta­lands, sem hafði verið þögull sem gröfin um skip­strandið í skurðinum til þessa, sendi frá sér yfir­lýsingu í morgun þar sem sagði að Egypta­land væri búið að leysa vandann og lofaði því að senn myndi umferð um Súes-skurðinn færast í samt horf. Hann reyndist hafa rétt fyrir sér.

Súes-skurðurinn er mikilvæg uppspretta erlends gjald­eyris fyrir Egypta­land. Talið er að stíflan í skurðinum hafi kostað rekstur hans 14-15 milljónir bandaríkja­dala, rúma tvo milljarða króna, á degi hverjum.

Gluggi sem þurfti að nýtast

Í umfjöllun bandarísku AP-frétta­stofunnar í morgun var rakið að um þessar mundir væru aðstæður til björgunar­aðgerða eins góðar og unnt er – fullt tungl þýði að sjávar­staðan sé há, en færi síðan lækkandi í vikunni.

Óttast var að grípa þyrfti til þess ráðs að fjarlægja farm frá borði til þess að létta þetta risastóra skip og gera það ögn meðfærilegra. Það hefði hins vegar orðið flókið verkefni og til þess þyrfti sérhæfðan búnað sem ekki er til í Egypta­landi.

Sem betur fer þurfti ekki á því að halda.

Uppfært: Skömmu eftir að fréttin fór í loftið um kl. 13 bárust fréttir af því að skipið væri laust frá bakkanum og sigldi fyrir eigin vélarafli um skurðinn. Fyrirsögn fréttarinnar hefur því verið breytt og hún endur­skrifuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár