Óvinnandi reiptog í Súes-skurði

Enn situr flutn­inga­skipið Ever Given fast í Súes-skurði þrátt fyrir að 14 drátt­ar­bátar hafi reynt að toga það á flot í dag. Á fjórða hund­rað skipa bíða þess að tapp­inn losni og umferð um skurð­inn geti haf­ist að nýju.

Skipið Ever Given situr enn fast í Súes-skurði og lokar allri umferð um skurðinn.
Skipið Ever Given situr enn fast í Súes-skurði og lokar allri umferð um skurð­inn. Mynd: EPA

Mikið starf hefur verið unnið til þess að reyna að koma flutn­inga­skip­inu Ever Given aftur á flot en það hefur setið fast frá því á þriðju­dags­morgun eftir að það strand­aði í Súes-skurð­inum á leið sinni til Rott­er­dam í Hollandi. [links]

Vonir voru bundnar við það að skip­inu yrði náð aftur á flot á háflóði í dag. Alls tóku fjórtán drátt­ar­bátar þátt í aðgerð­unum í dag en stefnt er að því að enn fleiri drátt­ar­bátar reyni að draga skipið laust úr bökkum skurð­ar­ins og koma því á flot á morgun.

Þá hafa gröfur einnig reynt að grafa sand undan stafni skips­ins. Samkvæmt frétt BBC höfðu um 20 þús­und tonn sands verið grafin úr bökkum skurð­ar­ins. Vatni hefur auk þess verið dælt úr kjöl­festu­tönkum skips­ins sem hefur skilað sér í því að það er nú níu þús­und tonnum létt­ara en við strand. Samkvæmt frétt Reuters hefur stefni og skutur skips­ins hreyfst í dag en óhag­stæðir vindar og straumar hafa komið í veg fyrir að skipið kom­ist á flot.

Vonast er eftir því skipið losni með frek­ari sand­greftri og fleiri drátt­ar­bátum. Ef það virkar ekki þarf að létta skipið enn frekar með því að losa af því gáma. Til þess þyrfti sér­stakan búnað, til að mynda stóra krana, en slík aðgerð gæti tekið vikur að því er fram kemur í frétt BBC.

Kostnaðarsamt strand

Nú bíða á fjórða hund­rað skipa eftir því að kom­ast leiðar sinnar um Súes-skurð­inn en hann styttir flutn­ings­tíma á milli Asíu og Evrópu umtals­vert. Leiðin um skurð­inn er rum 6.500 kíló­metrum styttri. Í frétt BBC kemur fram að sigl­ingin um Góðra­von­ar­höfða, sem var hin hefð­bundna leið fyrir opnun skurð­ar­ins, geti tekið allt að tveimur vikum lengri tíma en sigl­ing um Súes-skurð­inn.

Í frétt­inni er einnig sagt að á hverjum degi standi lokun skurð­ar­ins í vegi fyrir flutn­ing vara að verð­mæti 9,6 millj­arða Banda­ríkja­dala sem eru rúm­lega 1.200 millj­arðar króna. Tekju­skerð­ing egypska rík­is­ins er einnig tölu­verð vegna lok­unar skurð­ar­ins en ríkið er talið verða af um 14 millj­ónum Banda­ríkja­dala á degi hverjum vegna lok­un­ar­innar, tæpum 1,8 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár