Stífla í Súes

Eitt stærsta flutninga­skip í heimi virðist hafa lotið í lægra haldi fyrir vindhviðu á för sinni um Súes-skipa­skurðinn í Egypta­landi á þriðjudags­morgun. Þrátt fyrir tilraunir hefur fleyið, sem er lengra en Eiffel-turninn í París, ekki náðst á flot.

Flutninga­skipið Ever Given, í eigu Evergreen, skipa­félags í Taívan sem er það fjórða stærsta í heimi, strandaði sunnarlega í Súes-skipa­skurðinum í Egypta­landi snemma á þriðjudags­morgun, um kl. 5:40 að íslenskum tíma.

Síðan sat skipið þar pikkfast, þversum í skurðinum, umkringt dráttar­bátum sem gerðu sitt besta til að losa það. Vinnu­vélar hafa mokað sandi frá stefni skipsins, en ekki hefur enn náðst að koma risanum á flot þegar þetta er skrifað.

Samkvæmt frétt BBC var byrjað teikna upp áætlanir um að færa gáma frá borði til þess að létta skipið ef ekki næðist að koma því á rétt ról á háflóði í dag. Flutninga­skipið, sem er eitt það stærsta sem siglir um heims­höfin, var á leið til Rotterdam í Hollandi frá kínversku hafnar­borginni Yantian, drekkhlaðið varningi, er óhappið átti sér stað. Það tekur um 20 þúsund gáma.

Samkvæmt yfir­lýsingu skipa­félagsins Evergreen er grunur um að skip­stjórnar­menn þessa 400 metra langa og tæplega 60 metra breiða flutninga­skips hafi misst skipið af réttri leið vegna sterkrar vindkviðu. Skipið rakst í botninn og fór síðan þversum í skurðinum og lokar allri umferð.

Súes-skurðurinn tengir saman Rauða­hafið og Miðjarðar­hafið og hefur verið ein mikil­vægasta siglinga­leið heimsins frá því hann var opnaður árið 1869, eftir áratuga mokstur. Um 18 þúsund flutninga­skip sigla þessa leið 190 kílómetra löngu leið árlega, eða um 50 skip á dag.

Ever Given þversum í skurðinum. Mynd tekin um borð í flutningaskipi Maersk, sem bíður þess að komast leiðar sinnar. Mynd: EPA
Ever Given þversum í skurð­inum. Mynd tekin um borð í flutn­inga­skipi Maersk, sem bíður þess að kom­ast leiðar sinnar. Mynd: EPA
Fjölmargir dráttarbátar hafa reynt að toga skipið til. Til þessa hafa þeir mátt sín lítils.
Fjöl­margir drátt­ar­bátar hafa reynt að toga skipið til. Til þessa hafa þeir mátt sín lít­ils.

Að fara um Súes-skurðinn á milli Asíu og Evrópu sparar um eina viku á siglingu miðað við að fara suður fyrir horn Afríku. Samkvæmt frétt Reuters eru skipa­félögin byrjuð að hugsa sig um hvort snúa skuli skipum við og fara þá leið til Evrópu.

Talið er að um 12 prósent af öllum flutningum á hafi fari um Súes-skurðinn og um 9 prósent af allri olíu sem framleidd er í heiminum sömuleiðis. Það væri því töluvert rask fyrir flutninga­kerfið á heimsvísu ef skipið myndi liggja fast í skurðinum um lengri tíma.

Samkvæmt því sem bandaríska blaðið Washington Post hefur eftir Flavio Macau, sérfræðingi í virðis­keðju­stjórnun, eru það aðallega olíuskip sem bíða þess að komast í gegnum skipa­skurðinn og hafa sum þurft að sætta sig við að för þeirra tefjist um hátt í tvo sólar­hringa nú þegar.

Olíu­birgðir eru hins vegar miklar um heim allan, að sögn Macau og því ætti þetta ekki að koma að sök til skemmri tíma. „Þetta er ekki sá tími árs þar sem mest er að gera í skurðinum. Ef það væri haust eða sumar á norður­hveli jarðar værum við í meiri vandræðum,“ segir Macau.

Heims­markaðsverð á olíu hefur þó farið hækkandi í dag.

Hökt í kerfinu vegna áhrifa faraldursins

Að undan­förnu hefur þó flutninga­kerfið á heimsvísu verið hálf­höktandi, vegna áhrifa heims­faraldursins. Og þetta nýjasta óhapp í Súes-skurðinum er ekki til þess fallið að bæta stöðuna.

Í umfjöllun New York Times um vandræðin sem skipa­flutningarnir á heimsvísu hafa verið í að undan­förnu er haft eftir stjórn­anda á Maersk-skipa­félaginu að hann hafi aldrei upplifað annað eins ástand.

Stóraukin spurn bandarískra neytenda eftir ýmsum vörum sem fram­leiddar eru í Asíu, til dæmis æfinga­hjólum og skrifstofu­stólum til að hafa við heima­skrifboðið, hafa orðið til þess að jafn­væginu í flutninga­kerfinu er raskað.

Ever Given virðist pikkfast í skipaskurðinum mikla um Egyptaland sem hefur verið lífæð skipaflutninga á milli Asíu og Evrópu í rúm 130 ár.
Ever Given virð­ist pikk­fast í skipa­skurð­inum mikla um Egypta­land sem hefur verið lífæð skipa­flutn­inga á milli Asíu og Evrópu í rúm 130 ár.

Tómir gámar hafa safnast upp í höfnum í Banda­ríkjunum og víðar á meðan flutninga­gáma skortir í Asíu sem lengir leið varnings á markað. Í ofanálag hefur reynst erfitt að koma vörum frá Banda­ríkjunum til Asíu, þar sem flutninga­skipin hafa verið að flytja tóma gáma beint til baka. Enda gríðarleg þörf fyrir gáma á hinum endanum.

Flutningaskip bíða þess að fá afgreiðslu við höfnina í Oakland í Kaliforníu, í upphafi marsmánaðar.
Flutn­inga­skip bíða þess að fá afgreiðslu við höfn­ina í Oakland í Kali­forníu, í upp­hafi mars­mán­aðar.

Faraldurinn og meðfylgjandi sóttvarna­ráðstafanir hafa einnig gert það að verkum að erfitt hefur verið að fá nægilega marga hafnar­starfsmenn og bílstjóra til starfa, sem hefur leitt til keðju­verkandi tafa í höfnum heimsins.

Í frétt Reuters er haft eftir sérfræðingi að birgða­keðjan á milli Asíu og Evrópu sé þegar við þolmörk og stíflan í Súes-skurðinum komi á einkar slæmum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár