Sigurjón sakaður um sýndarviðskipti

Þing­maður Flokks fólks­ins sagð­ist hafa selt útgerð sína á 16 til 18 millj­ónir, en við­skipt­unum var rift og kaup­verðið sagt 255 þús­und krónur. Þing­mað­ur­inn stendur við fyrri yfir­lýs­ingar.

Þingmaður og formaður
Þing­maður og for­maður Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins, ræðir við for­mann flokks­ins, Ingu Sæland, undir umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi í fyrra. Mynd: Golli

Samn­ingur Sig­ur­jóns Þórð­ar­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, við unga útgerð­ar­konu um yfir­töku á smá­báta­út­gerð hans var öðru­vísi en hann kynnti opin­ber­lega, sam­kvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í dag.

Sigurjón hafði verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum vegna hugs­an­legs hags­muna­á­rekstrar vegna eign­ar­halds hans á útgerð­inni Sleppu ehf. eftir að hann fram­seldi 51 pró­sents hlut hennar til Sig­ur­bjargar Áróru Ásgeirs­dóttur. Samkvæmt yfir­lýs­ingum hans á frétta­vefnum Vísi sum­arið 2025 samdi hann um að fá greiddar 16 til 18 millj­ónir króna fyrir hlut­inn í útgerð­inni af hendi Sig­ur­bjargar, sem þá var 28 ára gam­all skip­stjóri, búsett í Ólafs­firði. Samn­ingnum var hins vegar rift 23. mars síð­ast­lið­inn og kom fram í samn­ingnum að umsamið kaup­verð hefði í reynd verið 255 þús­und krónur, en ekki 16 til 18 millj­ónir króna. End­an­legt verð, sam­kvæmt rift­un­ar­samn­ingi, end­ur­speglar hlut­deild í nafn­verði hluta­fjár­ins, sem er staðlað 500 þús­und krónur við skrán­ingu einka­hluta­fé­laga.

Salan breytti litlu

Sig­ur­björg var skráð sem raun­veru­legur eig­andi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár