Þingmenn neita að ræða takmörkun á launahækkun sinni - Áfengisfrumvarpið tekið fyrir í dag

37 þingmenn Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Framsóknar­flokksins neituðu að taka umræðu um frumvarp Pírata sem kveður á um lækkun launa þingmanna til samræmis við almenna launa­þróun. Áfengis­frumvarpið er á dagskrá Alþingis í dag.

Frá Alþingi
Frá Alþingi Þingmenn hafa fengið 75 pró­sent hækkun á þing­far­ar­kaupi á kjör­tíma­bili síð­ustu tveggja rík­is­stjórna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Pressphotos

37 þingmenn ríkis­stjórnar­flokkanna og Framsóknar­flokksins kusu gegn því í morgun að taka umræðu á Alþingi um hvort þingmenn ættu að takmarka launa­hækkanir sínar við sambærilegar launa­hækkanir og almenningur hefur fengið frá árinu 2013. 

Frumvarp Jón Þórs Ólafs­sonar, þingmanns Pírata, þessa efnis, verður því ekki á dagskrá þingsins í dag. Meðal mála sem á dagskránni eru í dag er samgöngur á höfuð­borgar­svæðinu, staðan í ferða­málum, húsnæði Lista­háskóla Íslands, aðskilnaður fjár­festinga­banka- og viðskipta­banka og áfengis­frumvarp sjálfstæðis­þing­mannsins Teits Björns Einars­sonar. Talið er að það muni taka stóran hluta af tíma þingsins í dag og jafnvel ýta mörgum öðrum málum til hliðar.

Launahækkun langt umfram almenning

Jón Þór ÓlafssonÞing­maður Pírata lagði fram frum­varp um lækkun launa þing­manna til sam­ræmis við almenna launa­þróun.

Þingmenn fengu tæplega 45 prósent launa­hækkun með ákvörðun kjararáðs, sem skipað er af Alþingi, á kjördag, 29. október síðastliðinn, án þess að kjósendur vissu af. Þing­fararkaup hafði þá síðasta áratuginn hækkað um 127 prósent á sama tímabili og launa­vísitala hefur hækkað um 98,6 prósent. 

Launa­hækkun þingmanna var um 338 þúsund krónur í einu skrefi, en samtals er hækkun þing­fararkaups tæp 75 prósent frá 2013, á sama tíma og almenn laun hafa hækkað um 29 prósent. Eftir háværa gagnrýni ákvað forsætis­nefnd Alþingis að leggja til að skatt­frjálsar endur­greiðslur til þingmanna yrðu lækkaðar um rúmlega 100 þúsund krónur. 

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra sagði í gær „alveg gjör­samlega óþolandi“ að þurfa að taka umræðu um málið á Alþingi, þar sem það ætti að vera í höndum kjararáðs, en sjálfur hefur hann varað við því að Íslendingar „kunni sér ekki hóf þegar vel árar“ og varað við ófriði á vinnu­markaði sem helsta hættuna gegn stöðug­leikanum. „Það er við þær aðstæður sem fólk segir: Nei, það þarf að gera svo miklu miklu meira. Þessu er ég bara ósammála ... Mín skoðun er sú að mestu hættu­merkin hvað varðar óstöðug­leika séu þróun gengisins, annars vegar og hins vegar, staðan á vinnu­markaði. Að það sé friður á vinnu­markaði.“

Samningar gætu verið í uppnámi

Tilefni þess að Jón Þór og Píratar vildu umræðu um málið á Alþingi er að bæði samtök atvinnu­rekenda og samtök launþega hafa ályktað um að miklar launa­hækkanir þingmanna og ráðherra skaði komandi kjara­viðræður. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu­sambands Íslands, segir að „forsendu­bresturinn [sé] augljós“. Ríkis­sátta­semjari hefur sagt að framundan sé erfitt ár. Innan viku mun forsendu­nefnd ASÍ og Samtaka atvinnu­rekenda skila niður­stöðum um hvort forsendur kjara­samninga haldi eða hvort þeir opnist, með hættu á lang­vinnum kjara­deilum og verk­föllum.

Benedikt Jóhannesson, fjármála­ráðherra og formaður Viðreisnar, hefur sagt að þingmenn hafi orðið eftir á í kjara­þróun frá efnahags­hruninu 2008. Hann útskýrði afstöðu sína að greiða atkvæði gegn umræðu um málið með því að það hefði þegar verið fært í farveg. „Við skulum ekki gleyma því að það eru fjórir mánuðir frá því úrskurður kjararáðs féll. Það er algjör fyrir­sláttur að tala um að hér séu að koma fram einhverjar nýjar upplýsingar núna. Við höfum vitað um úrskurðinn og við sjáum engar forsendur til þess að menn taki þetta mál upp núna með skyndingu til að reyna að berja sér á brjóst.“

Benedikt Jóhann­es­sonTelur þing­menn hafa dreg­ist aftur úr og því hafi kjara­ráð hækkað þing­far­ar­kaup.

Benedikt vísar þar í að forsætis­nefnd Alþingis hefur lagt til að mánaðarlegar skatt­frjálsar endur­greiðslur til þingmanna, sem leggjast ofan á ríflega 1,1 milljóna króna mánaðar­laun, verði lækkaðar um rúmar 100 þúsund krónur.

Jón Þór Ólafsson sagði í ræðustóli í morgun að það væri ekki nóg og að Alþingi gæti skapað frið á vinnu­markaði með ákvörðun sinni.

„Við skiptum nátt­úrlega um skoðun á grund­velli upplýsinga. Nýjar upplýsingar komu fram. Þegar forsætis­nefndar­leiðin virkaði ekki, eins og aðilar vinnu­markaðarins hafa sagt, þá reynum við aðra leið. Þetta er önnur leið og þetta er leið sem þýðir í rauninni að kjararáð fari að lögum. Ástæðan fyrir því hvers vegna málið kemur fram á þessum tíma­punkti er að nú er alveg ljóst og hefur verið sagt að kjara­samningar muni líklega ekki halda. Þetta væri leið til sátta fyrir Alþingi. Alþingi myndi stíga skref í átt til sátta á vinnu­markaði. Það er það sem við getum gert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár