Flúði heimilisofbeldi í Kósóvó með átta ára dóttur en telst ekki flóttamaður

Stjórn­völd hafa synjað beiðni konu frá Kósóvó og átta ára dóttur hennar um dval­ar­leyfi. Lögregla vildi ekki aðstoða kon­una vegna ofbeldis tengda­föður. Útlend­inga­stofnun telur hana geta til­kynnt spill­ingu í heima­land­inu og segir hana ekki vera flótta­mann.

Konan og dóttir hennar
Konan og dóttir hennar Útlend­inga­stofnun segir kon­una geta til­kynnt um „spill­ingu og mis­ferli ein­stakra lög­reglu­manna“ í heima­landi sínu.

Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála hafa synjað konu frá Kósóvó með átta ára dóttur um dval­ar­leyfi og metur hana ekki sem flótta­mann.

Konan taldi sig vera í hættu í heima­landi sínu vegna heim­il­is­of­beldis og skorts á lög­reglu­vernd. Útlend­inga­stofnun mat frá­sögn kon­unnar trú­verð­uga en telur úrræði vera til staðar í Kósóvó fyrir þolendur heim­il­is­of­beldis.

Mæðgurnar þurfa að yfir­gefa landið eftir 5 daga. Konan sótti um alþjóð­lega vernd í febr­úar, en hún var beitt ofbeldi af tengda­fjöl­skyldu sinni í 17 ár sam­kvæmt grein­ar­gerð með ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar.

Tengda­faðir hennar gekk harð­ast fram í lík­am­legu og and­legu ofbeldi, að sögn kon­unnar. Tíu manns bjuggu á heim­il­inu og tóku tengda­móðir og mágar hennar einnig þátt. Ofbeldið hófst þegar hún og eig­in­mað­ur­inn trú­lof­uðu sig, en tengda­faðir hennar sam­þykkti ekki sam­bandið þar sem hún kom frá öðru land­svæði.

Konan sagði að hún hefði þurft að læsa sig inni án matar í nokkra daga til að hlífa börnum sínum við ofbeld­inu. Þegar hún leit­aði til lög­reglu var henni mætt „með for­dómum og fyr­ir­litn­ingu“. Var henni sagt að þar sem hún væri kona ætti hún að halda sig heima. Tengda­faðir hennar er sagður hafa tengsl við lög­regl­una á svæð­inu.

Konan sagði ofbeldið hafa ágerst und­an­farið og náð hápunkti þegar mágur hennar reyndi að mis­nota hana kyn­ferð­is­lega. Í fram­hald­inu hefði eig­in­maður hennar aðstoðað hana við að yfir­gefa landið, taka yngstu dótt­ur­ina með og fara til Íslands, þar sem systir hennar hefur búið í 19 ár. Samband hennar við mann sinn og börn sé gott og aðeins efna­hags­legar ástæður standi í vegi fyrir því að þau flytji af heim­ili tengda­fjöl­skyld­unnar.

„Umsækj­andi hefur ekki lagt fram nein
gögn um að henni sé ómögu­legt að
leita aðstoðar lög­reglu.“

„Að mati Útlend­inga­stofn­unar getur umsækj­andi leitað á náðir yfir­valda í heima­ríki sínu og til­kynnt um spill­ingu og mis­ferli ein­stakra lög­reglu­manna, en umsækj­andi hefur ekki lagt fram nein gögn um að henni sé ómögu­legt að leita aðstoðar lög­reglu,“ segir í ákvörðun stofn­un­ar­innar.

„Þá verður ekki séð að barn umsækj­anda eigi rétt á dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða vegna ríkrar þarfar á vernd, t.d. af heil­brigð­is­á­stæðum, eða vegna erf­iðra félags­legra aðstæðna,“ segir að lokum. „Það áreiti og ofbeldi sem umsækj­andi hefur orðið fyrir verður ekki talið veita börnum umsækj­anda rétt á dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.“

Upp­haf­lega var vakin athygli á mál­inu á Facebook-síð­unni Ekki fleiri brott­vís­anir. Hildur Harð­ar­dóttir, íslensk kona sem kynnt­ist mæðg­unum, fjallar um aðstæður þeirra á Facebook.

„Útlend­inga­stofnun neitar þeim um vernd á þeim grund­velli að þær geti leitað til yfir­valda í heima­landi sínu þar sem stjórn­ar­skráin og frjáls félaga­sam­tök ættu að geta verndað þær. Það er langt frá raun­veru­leik­anum en ÚTL horfir ein­ungis til laga í Kósóvó og tekur ekki til greina rót­gróið feðra­veldi og spill­ingu í sam­fé­lag­inu þar,“ skrifar Hildur sem seg­ist sjaldan hafa kynnst jafn hug­rakkri mann­eskju og móð­ur­inni.

„Hún og dóttir hennar hafa nú þegar reynt allt til að kom­ast undan ofbeld­inu sem þær urðu fyrir og byrja upp á nýtt, en mæta lok­uðum dyrum alls staðar. Hún reyndi að fara til lög­reglu í Kósóvó og til­kynna ofbeldið, en var mætt með nið­ur­læg­ingu, sann­leiks­gildi frá­sagnar hennar var dregið í efa og hún send aftur heim. Hún reyndi að flýja með dóttur sína á eyju í miðju Atlands­hafi þar sem syst­ur­dóttir hennar hefur búið frá því hún var lítil stúlka. Hérna mættu þeim hins­vegar enn einar lok­aðar dyrnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár