Óskaði sex sinnum eftir liðsauka

Yfirmaður þing­lögreglunnar í Washington segist margoft hafa óskað eftir aðstoð þjóð­varðliðsins en það kom ekki á vettvang óeirðanna fyrr en þau voru nær yfirstaðin og fjórir lágu í valnum.

Skilti stuðningsmanns Trump á botni tjarnar við Bandaríkjaþing.
Skilti stuðn­ings­manns Trump á botni tjarnar við Banda­ríkja­þing. Mynd: EPA

Bein útsending frá þing­húsinu í Washington og óeirðunum þar fyrir innan og utan var löngu hafin á sjónvarps­stöðvunum áður en liðsauki barst lögreglu­mönnunum sem voru að glíma við þúsundir æstra stuðnings­manna Donalds Trump. Fólk sat heima í stofu og fylgdist með og hugsaði: Hvar er eiginlega þjóð­varðliðið? Liðið sem hefur verið mjög sjáanlegt í öllum mótmælum í borginni síðustu mánuði? Hvers vegna var það ekki einfald­lega á staðnum þegar í upphafi í mótmælum sem höfðu verið skipulögð vikum saman?

2.000 manna lögreglulið sinnir öryggis­gæslu í þing­húsinu. Þetta er sérstök lögreglu­deild og eftir hryðju­verkin í Banda­ríkjunum árið 2001 var fjölgað í henni. Sá sem henni stýrir, Steven Sund, hefur verið harðlega gagn­rýndur fyrir undir­búninginn fyrir herskara Trump-stuðnings­manna á miðvikudag. Hann sagði af sér strax daginn eftir. En í viðtali við Washington Post í dag segir hann sína hlið á málinu. Og hún er nokkuð önnur en almennt hefur verið talið.

Í viðtalinu segir hann til dæmis frá því að hann hafi sex sinnum óskað eftir liðsstyrk áður en hann loks mætti á vettvang. Fyrsta skiptið átti sé raun stað áður en miðvikudaginn rann upp. Hann hafði orðið sífellt áhyggju­fyllri er nær dró mótmælunum. Hann vildi hafa þjóð­varðliðið til taks. En yfirmaður hans á Banda­ríkjaþingi hafnaði þeirri beiðni. Sagði að slíkt lið, grátt fyrir járnum, myndi senda röng skilaboð.

Fjarvera þess sendi hins vegar „rétt skilaboð“ til múgsins þegar til kom. Hann taldi sig geta ruðst inn án mikillar mótstöðu. Og það reyndist rétt.

Tveimur dögum áður en viðburðurinn marg­auglýsti, „Björgum Banda­ríkjunum“, átti að fara fram, bað Sund yfirmenn öryggis­gæslu beggja þing­deildanna um leyfi til að óska eftir því að þjóð­varðliðið yrði í viðbragðs­stöðu. Hann vildi hafa vaðið fyrir neðan sig ef upp úr myndi sjóða. Hann vildi geta kallað eftir liðsstyrk og fengið hann strax, ef á þyrfti að halda. Þó að lögreglan hafi á þessum tíma­punkti fengið upplýsingar um að hópurinn sem Trump hafði boðað til Washington til að mótmæla kosninga­úrslitunum yrði mun stærri en fyrri mótmæli í borginni, hafi yfirmenn öryggis­gæslunnar hafnað beiðni hans. Þeim þótti varhuga­vert að lýsa yfir „neyðar­ástandi“ fyrir mótmælin. Það myndi senda röng skilaboð. Yfirmaður öryggis­mála í öldunga­deildinni lagði þó til að Sund myndi nota óformlegar leiðir til að biðja um að þjóð­varðliðið yrði í viðbragðs­stöðu kæmi til þess að þing­lögreglan þyrfti aðstoð.

Á miðvikudeginum, þegar umræður voru í báðum þing­deildum um stað­festingu á úrslitum forseta­kosninganna í nóvember, og tugþúsundir stuðnings­manna Trump höfðu safnast saman fyrir framan þinghúsið, fóru að renna tvær grímur á þing­lögregluna. Og þegar ljóst var að hún réði ekki við aðstæður segist Sund hafa óskað eftir aðstoð fimm sinnum. Ástandið varð, að hans sögn, miklu verra en hann hefði nokkru sinni getað ímyndað sér.

Aðeins fimmtán mínútum eftir stuðnings­menn Trumps höfðu arkað að þing­húsinu eftir að hafa hlustað á ræðu forsetans við Hvíta húsið hafði þeim tekist að komast yfir ytri varnar­línu lögreglunnar við þinghúsið. Um 1.400 þing­lögreglu­menn voru á vakt.

„Ef við hefðum haft þjóð­varðliðið hefðum við getað haldið þeim í skefjum lengur þar til að liðsauki frá öðrum lögreglu­sveitum hefði komið á vettvang,“ segir Sund í viðtalinu við Washington Post.

Rétt fyrir kl. 14 að staðar­tíma hafði stuðnings­mönnum Trump tekist að brjótast inn í sjálft þinghúsið. Þing­lögreglan lagði þá þegar áherslu á að koma þing­mönnum í öruggt skjól. Liðsauki barst skömmu síðar frá lögreglunni í Washington-borg en þá var ástandið komið úr böndunum.

Klukkan 14.26 hafði Sund samband við varnarmála­ráðuneytið og óskaði eftir enn frekari aðstoð. Hann sagði neyðar­ástand hafa skapast og að brýnt væri að þjóð­varðliðið kæmi þegar í stað til aðstoðar.

Þá gerðist það sem kom öllum á óvart að Walter E. Piatt, yfirmaður herdeildar ráðuneytisins, sagðist ekki getað mælt með því við hermála­ráðherrann að þjóð­varðlið yrði kvatt á vettvang. Sund segir að Piatt hafi sagt að sér hugnaðist ekki að sjá þjóð­varðliða standa ásamt lögreglunni við þinghúsið.

Fleiri tóku þátt í þessu símtali, m.a. embættis­menn Washington-borgar og einn þeirra segir í samtali við Washington Post að Sund hafi bókstaf­lega grátbeðið um hjálp, aftur og aftur.

Varnarmála­ráðuneytið hefur ítrekað sagt í kjölfar árásarinnar á þinghúsið að þing­lögreglan hafi ekki beðið um aðstoð þjóð­varðliðsins fyrirfram, þ.e. áður en mótmælin fóru úr böndunum. Ekki hafi verið beðið um að þjóð­varðliðið yrði í viðbragðs­stöðu. Beðið hafi verið um aðstoð eftir að allt fór úr böndunum þrátt fyrir að allir eigi að vita að þjóð­varðliðið geti ekki brugðist við með mjög stuttum fyrirvara. Talsmaður varnarmála­ráðuneytisins segir að þing­lögreglan og lögreglan í Washington-borg hafi talið sig ráða við verkefnið og ekki beðið um að liðsauki væri til taks.

Það var ekki fyrr en tæpum fjórum klukku­stundum eftir að ráðist var á þinghúsið að þjóð­varðliðið var komið á vettvang. Þá höfðu þegar fjórir látist í átökunum.

Sund, sem hefur verið yfirmaður þing­lögreglunnar í rúmt ár, sagði af sér og sagðist hafa brugðist samstarfs­mönnum sínum.

Mikil átök innandyra

Átökin sem þing­lögreglu­menn lentu í við múginn inni í þing­húsinu voru mun meiri og alvarlegri en talið var í fyrstu. Á mynd­böndum og myndum sem birtar hafa verið um helgina má sjá lögreglu­menn reyna allt hvað þeir gátu til að stöðva innrás stuðnings­manna Trumps og leggja líf sitt í hættu.

Sund mun láta af embætti 16. Janúar. Fjórum dögum síðar mun Joe Biden taka við embætti forseta. Sund óttast að það sama gerist þá.

Í viðtalinu við Washington Post viðurkennir Sund að öfgahópar hafi dagana á undan mótmælunum hótað því að brjótast inn í þinghúsið. Hann hafði áhyggjur en sagði slíkar hótanir þó oft hafa verið settar fram án þess að af þeim yrði. „Fólk segir ýmislegt á samfélags­miðlum,“ segir hann um hótanirnar.

Hann hafi engu að síður ákveðið að hafa samband við yfirmenn öryggis­mála í þinginu og óska eftir því að þjóð­varðliðið yrði til taks. Hann hafði samband við yfirmann hjá þjóð­varðliðinu sem fullvissaði hann um það að ef á þyrfti að halda gætu 125 þjóð­varðliðar komið á vettvang „nokkuð fljótt“.

Mættu með klifurbúnað

Ástandið við þinghúsið hafi hins vegar allt frá því fyrstu stuðnings­menn Trump mættu verið hlaðið ofbeldi. „Þeir voru með hjálma, gasgrímur, skildi og piparúða, flugelda og klifur­búnað. Klifur­búnað!“ Sund segist aldrei hafa séð nokkuð þessu líkt í Washington.

Þegar í stað hafði hann því samband við lögreglu­stjórann í Washington sem sendi 100 lögreglu­menn á vettvang á innan við tíu mínútum. Þegar ljóst var að það myndi engan veginn duga til hringdi Sund í yfirmenn öryggis­mála þingsins og bað um þjóð­varðliðið. En forms­atriða vegna tók það alltof langan tíma. Og árásin á þinghúsið hófst af krafti.

Þjóð­varðliðið í Washington-borg heyrir ekki undir ríkis­stjórann heldur beint undir forsetann. Því þurfti að fá samþykki varnarmála­ráðuneytisins til að senda þjóð­varðlið á vettvang.

Hvað gerist eftir nokkra daga?

Eftir mikið þras í símtalinu sem fyrr er greint frá var niður­staðan loks sú að yfirmaður öryggis­mála í þing­húsinu hafði samband við Mitch McConnell, forseta öldunga­deildarinnar, til að reyna að fá þjóð­varðliðið á vettvang. Þá var klukkan að verða 16.

Liðsauki hafði borist frá lögreglunni í Washington og alríkis­lögreglunni.

Varnarmála­ráðuneytið segir að klukkan rúmlega 15 hafi heimild til að kalla út þjóð­varðliðið fengist en það átti eftir að taka um tvo tíma þar til liðsmenn þess, sem sinna sínum hefð­bundnu störfum dags daglega, komust á vettvang.

Sund varar við því sem gæti verið í vændum í tengslum við innsetningar­athöfn Bidens og mótmæli sem boðað hefur verið til næsta miðvikudag í borginni. „Þetta er mjög hættulegt fólk og það var mjög vel undirbúið. Ég á erfitt með að kalla þetta mótmæli,“ segir hann um uppþotið í síðustu viku. Hann kennir Trump um að hafa stofnað lífi þing­lögreglu­manna í hættu.

Í dag er búið að koma upp háum varnar­girðingum umhverfis þinghúsið. Fyrsta varnar­línan er orðin sterkari en hún var á miðvikudaginn. Hvort viðbúnaðurinn nú reynist nægur mun tíminn leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár