Ekki allt sem sýnist í Costco

Magn­pakkningar eru stundum óhag­stæðari í Costco en í Bónus. Hægt er að spara vel á gosdrykkjum og hrís­grjónum.

Costco
Costco Tæplega 75 þús­und manns hafa skráð sig í Facebook-hóp um kaup í Costco. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nærri lætur að viðskipta­vinur sem kaupir hálfan lítra af vanillu­dropum hjá Costco geti búið til úr þeim 1.420 pönnu­kökur. Droparnir renna út á um það bil fjórum árum en til að klára flöskuna innan þess tímaramma þyrfti pönnuköku­unnandi að borða eina pönnuköku daglega næstu fjögur árin. Hann gæti lagað tæplega 100 uppskriftir. Stundin hefur greint hvort það borgi sig að kaupa algengar neyslu­vörur í magn­pakkningum í Costco, eða í minni einingum í íslenskum verslunum. Allur gangur er þar á. Sumar vörur eru jafnvel dýrari í Costco en í smærri einingum í Bónus eða Krónunni. Í sumum tilfellum felst þó allmikill sparnaður í því að kaupa vöru í stóru upplagi í Costco, að því gefnu að kaup­andanum takist að klára vöruna áður en hún rennur út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár