Vilja þúsundir varphæna í viðbót að Vallá

Um 65-75.000 varphænur og 10-20.000 yngri hænur verða í búi Stjörnu­eggja að Vallá hverju sinni ef ráðgerðar breytingar og stækkun raun­gerast. Hönum er fargað þegar þeir klekjast úr eggi og hænunum um eins og hálfs árs aldurinn.

Eggjahús með varpkerfi á pöllum.
Eggjahús með varp­kerfi á pöllum. Mynd: EPA

Með nýju eldishúsi fyrir varphænur og uppsetningu nýs varp­búnaðar verður stæðum undir fugla á ýmsum aldri á eggja­búinu að Vallá á Kjalarnesi fjölgað í allt að 95 þúsund. Núverandi leyfi þaul­eldisins sem þar er stundað gerir ráð fyrir 50 þúsund varphænum en í nýrri umhverfis­mats­skýrslu framkvæmdarinnar kemur fram að með áformuðum breytingum verði um 65.000-75.000 varphænur og 10.000-20.000 unghænur í eldis­húsunum hverju sinni. Frá þeim munu falla um 1.400 tonn af skít á ári, skít sem dreift yrði í landi tveggja bæja á Vestur­landi.

Verði áformaðar breytingar að veruleika mun framleiðslu­geta eggja­búsins aukast um 30-35 prósent.

Fram­leiðsla undir merki Stjörnu­eggja hófst á jörðinni Vallá á árinu 1970. Sá húsa­kostur á jörðinni sem tengist fram­leiðslunni samanstendur af sex húsum, auk þess sem sjöunda húsið er í byggingu. Elstu byggingarnar eru með búrum og voru þær byggðar á árunum 1970-1988.

Umhverfis­þættirnir sem metnir eru í umhverfis­mats­skýrslu Stjörnu­eggja eru lyktar­mengun, yfirborðs­vatn, grunnvatn og sýkingar­hætta. Er það niður­staða mats fyrir­tækisins að á heildina litið verði umhverfis­áhrifin óveruleg.

Klébergs­skóli á Kjalarnesi er í um 490 metra fjarlægð vestur af búinu og íbúa­byggðin í Grundar­hverfi er í rúmlega 650 metra fjarlægð. Tekið er fram í skýrslunni að aldrei hafi verið kvartað vegna lyktar­mengunar, hvorki frá eggja­búinu sjálfu eða á þeim stöðum sem skítnum er dreift í dag.

Uppeldi hænuunga fram á búum í Sætúni og í Saltvík sem eru í nokkurra kílómetra fjarlægð frá Vallá. Unghænur eru fluttar nokkra vikna gamlar í eldis­húsin á Vallá. Þá tekur við 4-5 vikna vaxtar­tími áður en þær byrja að verpa. Heildar dvalar­tími hæna í húsum á Vallá er um 60 vikur eða rétt rúmlega ár. Að þeim tíma liðnum er eldislotu lokið, eins og það er orðað, dýrin drepin og hræjum þeirra komið til urðunar hjá Sorpu.

Hanaungar kæfðir eða malaðir

Helmingur allra unga sem klekjast úr eggjum eru eðli málsins samkvæmt hanar. Þeir nýtast ekki til fram­leiðslu varphæna og er fargað, ýmist með gösun eða þeir malaðir til dauða. Báðar aðferðirnar eru viðurkenndar aflífunar­aðferðir hér á landi og er beitt á tugþúsundir unga á ári.

Mikil umræða hefur verið um aflífun hanaunga í Evrópu síðustu misseri og mölun þeirra, þar sem þeir fara lifandi ofan í hakkavél, hefur verið harðlega gagnrýnd. Banna á aðferðina í Hollandi og Þýska­landi, svo dæmi séu tekin. Mannúðlegra þykir að kyngreina fóstrin og deyða hanana á meðan þeir eru enn í eggi.

Stækkun búsins á Vallá mun fela í sér að búr sem enn eru til staðar í nokkrum eldis­húsum verða aflögð og hænurnar settar á palla á nokkrum hæðum. Með palla­fyrir­komulaginu er hægt að koma mun fleiri dýrum fyrir í sama húsinu.

Í mats­áætlun, fyrra skrefi í átt að umhverfis­mati framkvæmdarinnar, var gert ráð fyrir að endurnýja eldri byggingar búsins til að taka við auknum fjölda fugla. Frá því hefur nú verið horfið, segir í umhverfis­mats­skýrslunni, og stefnt að byggingu nýs eldishúss. Í kjölfarið verður eggja­framleiðslu „að öllum líkindum“ hætt í elstu húsunum.

Palla­fyrir­komulagið er þegar til staðar í tveimur nýjustu eldis­húsum Stjörnu­eggja að Vallá. Það er svar varphænu­bænda hér á landi og víðar við banni á varphænu­haldi í búrum sem tók gildi í Evrópu árið 2012. Íslensk bú fengu frest til síðustu áramóta að afleggja búra­búskapinn með öllu en gildis­töku reglu­gerðarinnar sem um þetta fjallar var hins vegar frestað um eitt ár. Það þýðir að varphænur hér á landi hafa þurft að dúsa í búrum ellefu árum lengur en hænur í öðrum Evrópu­löndum.

Geta að minnsta kosti hreyft sig meira

Með því að hætta með búrin geta hænurnar „meira sýnt sitt eðlilega atferli,“ sagði Brigitte Brugger, sérgreina­læknir í heil­brigði og velferð alifugla hjá Matvæla­stofnun, í samtali við Kjarnann síðasta haust. „Í búrunum geta þær lítið annað gert en að drekka og éta. Þær geta ekki sandbaðað sig. Þær geta ekki hvílst á prikum eins og þeim er eðlilegt. Þær geta ekki dregið sig í hlé til að verpa í hreiðri. Þannig að með því að taka búrin þá fá þær að minnsta kosti þennan aðbúnað, geta hreyft sig miklu meira og það styrkir líka beinin.“

En palla­fyrir­komulagið mun ekki útrýma alvarlegum og sársauka­fullum sprungum eða brotum á bringu­beini sem rann­sóknir sýna að um 85 prósent varphæna, hér sem og annars staðar, verði fyrir í eldis­húsunum. „Bringubeins­skaði er vandamál hjá hænum í búrum en hann er ekkert minna vandamál hjá lausa­göngu hænum af því að þá eru meiri líkur á árekstrum,“ sagði Brigitte.

Hænur eru ekki góðir flug­fuglar en þær flögra þó um, sérstak­lega ef þær fyllast ofsa­hræðslu. Þá geta þær lent á innréttingum í eldis­húsunum og slasast. „Þær bara brotlenda,“ sagði Brigitte ennfremur í úttekt Kjarnans á málinu.

Annað sem talið er valda bringubeins­skaðanum er stærð eggjanna. Litlar hænur hafa verið ræktaðar til að verpa sífellt fleiri og stærri eggjum. Í verslunum á Íslandi eru til sölu stór – og jafnvel risastór – egg sem verpt er í búum hér á landi.

Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa þessa gríðar­miklu eggja­framleiðslu sem stunduð er á Íslandi, þar sem um 200 þúsund varphænur eru haldnar á hverjum tíma, eru Samtök grænkera. Þau hafa barist fyrir aukinni meðvitund um meðferð dýra, m.a. þeirra sem ræktuð eru í þauleldi líkt og svín, varphænur og alifuglar.

„Karlkyns ungar í eggja­iðnaði munu alltaf vera drepnir og munu því alltaf þjást,“ sagði Valgerður Árna­dóttir, formaður samtak­anna, við Kjarnann í haust, spurð hvort hún teldi hægt að búa svo um hnútana að fólk geti keypt og neytt hænueggja án þess að þar búi þjáningar dýra að baki. „Það eru til minni bú og einstaklingar með hænur sem búa við góðar aðstæður í litlum hópum og fá að fara út og haga sér eins og þeim er eðlislægt. Þessi bú eru þó ekki mörg og framleiða ekki mikið af eggjum.“

Valgerður sagði að á meðan fjárhags­legur gróði vegi þyngra en velferð hæna verði þessu ekki breytt. „Það var ekki fyrr en tiltölu­lega nýlega að fólk fór að neyta hænueggja í svona miklum mæli,“ benti hún ennfremur á. „Egg eru engin nauðsynja­vara sem krefst þess að þau séu framleidd á þann hátt að þau séu sem ódýrust. Slík fram­leiðsla hér á landi hefur orðið til þess að fáeinir einstaklingar hafa hagnast fjárhags­lega og það hefur komið illa við smærri fram­leiðendur sem vilja veita hænum betra líf að keppa við lágt vöruverð verksmiðju­búskapar.“

Samtök grænkera segja hænur, og sér í lagi varphænur, hafa verið rann­sakaðar nokkuð ítarlega. Þeim líði vel þegar þær geta kroppað í jörð og blakað vængjunum. Þær hafi náttúru­lega þörf fyrir að fara í rykbað og tylla sér á prik. Þær vilji verpa í friði og finnist best að vera í hóp sem telji færri en hundrað. „Aðstæður á þauleldis verksmiðju­búum eru þannig að hænurnar geta ekki framkvæmt þessi eðlislægu atferli sem stuðla að heil­brigði þeirra og almennri vellíðan. Áætlun um að Stjörnuegg auki fram­leiðslu sína um 45 þúsund fugla þýðir eingöngu það að á hverri stundu eru hagsmunir 45 þúsund fleiri fugla virtir að vettugi,“ sagði m.a. í umsögn samtak­anna við mats­áætlun Stjörnu­eggja í fyrra.

Þauleldi verði skilgreint sem iðnaður

Eggjabúið á Vallá er eitt sex þaul­eldisbúa sem starfrækt eru á Kjalarnesi. En Reykja­víkurborg íhugar stefnu­breytingu og hóf árið 2016 vinnu við mótun land­búnaðar­stefnu fyrir Kjalarnes sem nýta átti til vinnu við breytingar á aðal- og deili­skipulagi. Lagði starfs­hópur sem fjallaði um málið til að ekki yrði heimilt að stofna til þaul­eldis­búskapar á öðrum jörðum eða lögbýlum en þeim sem þegar hafa útgefið starfs­leyfi. Í öðru lagi var lagt til að svæði sem þauleldi er stundað á verði skilgreind sem iðnaðar­svæði en ekki landbúnaðar­svæði.

Breytingar á aðal­skipulagi í þessa veru hafa ekki enn verið gerðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár