Ekki hlutverk MAST „að taka afstöðu til siðferðilegra spurninga“

Skaði á bringu­beinum varphæna hefur komið „glögglega í ljós“ í eftirliti Matvæla­stofnunar á íslenskum varphænu­búum. Mölun lifandi hænuunga kann að þykja „ómannúðleg“ en hún er leyfileg, segir í svörum MAST við fyrir­spurn Kjarnans.

Gera má ráð fyrir að um 85 prósent varphæna á Íslandi séu með bringubeinsskaða. Helmingur allra varphænuunga sem hér klekjast úr eggjum eru aflífaðir dagsgamlir.
Gera má ráð fyrir að um 85 pró­sent varp­hæna á Íslandi séu með bringu­beins­skaða. Helm­ingur allra varp­hænu­unga sem hér klekj­ast úr eggjum eru aflífaðir dags­gamlir.

Mölun á dags­gömlum hænuungum er leyfileg aðferð. Matvæla­stofnun (MAST) hefur eftirlit með varphænsna­haldi í samræmi við kröfur í lögum og reglu­gerðum en það er „ekki hennar hlutverk að taka afstöðu til siðferðilegra spurninga“.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Matvæla­stofnunar við fyrir­spurn Kjarnans. Spurt var um tvennt sem Kjarninn hefur fjallað um í fréttum nýverið: Algengan bringubeins­skaða hjá varphænum sem og mölun lifandi karlkyns hænuunga sem bæði Frakkar og Þjóð­verjar hafa ákveðið að banna á næsta ári. Ætla má að um 150-200 þúsund karlkyns ungar séu aflífaðir hér á landi árlega, ýmist með mölun eða kæfingu með gasi.

Ekki stendur til af hálfu Matvæla­stofnunar að rannsaka umfang bringubeins­skaða í íslenskum varphænum. „Það er vegna þess að Matvæla­stofnun gengur út frá því að vanda­málið sé til staðar hérlendis eins og alls staðar erlendis og í sambærilegu umfangi,“ segir í svari stofnunarinnar. Hægt sé „að gefa sér það“ vegna þess að forsendur hér séu nánast þær sömu og erlendis. „Hérlendis eru notaðar sömu varphænsna­stofnar og innréttingar. Aðbúnaður, fóðrun og umhirða er í samræmi við erlendar ráðleggingar.“

Í nýlegri danskri rannsókn, sem Kjarninn hefur fjallað ítarlega um, kom fram að 85 prósent varphæna eru með brotið eða sprungið bringu­bein. Skýringin er m.a. rakin til þess að litlar hænur eru látnar verpa of stórum eggjum og það í gríðar­legu magni á hverju ári.

Brigitte Brugger, sérgreina­dýralæknir alifugla­sjúkdóma, sem skrifar svar við fyrir­spurn Kjarnans fyrir hönd stofnunarinnar, segir að í eftirliti MAST sé bændum leiðbeint að greina skaða á bringu­beini. „Hænur eru teknar til að þreifa bringu­beinið og kemur þá glögglega í ljós að bringubeins­skaði er algengur þó svo einungis fá dýr séu skoðuð.“

Brigitte segir Matvæla­stofnun hafa brugðist við þessu vandamáli fyrir nokkrum árum með þátttöku í evrópska samstarfs­verkefninu COST Action um bringubeins­skaða KBD (keel bone damage). Eggja­bændur voru upplýstir um málið og framvindu rannsókna. „Þó svo að þessu verkefni sé lokið heldur Matvæla­stofnun áfram að fylgjast með rann­sóknum erlendis og mögulegum lausnum til að draga úr þessu vandamáli,“ stendur í svari MAST við fyrir­spurn Kjarnans. Stofnunin geti svo miðlað gagnlegum upplýsingum til eggja­bænda og ráðlagt um frekari aðgerðir.

„Lausnin verður ekki auðfundin, vanda­málið er margþætt og ekki dugar að huga eingöngu að aðbúnaði og innréttingum til að draga úr líkum á að hænur bringubeins­brotni við að færa sig til í húsinu,“ skrifar Brigitte. Varphænsna­stofninn geti einnig skipt máli sem og fóðrun og fleiri þættir. Rann­sóknir hafi sýnt að bringubeins­brot séu einnig að finna í hænsn­fuglum sem verpa mun færri eggjum en nútíma varphænsna­stofnar. Bringubeins­brot hafi fundist í villtum hænsn­fuglum (red jungle fowl) sem nútíma varp­stofnar séu ræktaðir úr svo dæmi séu nefnd.

Kjarninn spurði einnig hvort MAST myndi beita sér fyrir því að reglum um aflífunar­aðferðir karlkyns varp­hænuunga yrði breytt og í stað þess að mala dagsgamla unga yrði farin sú leið sem Frakkar og Þjóð­verjar hyggjast fara sem er að kyngreina fóstur í eggi.

Brigitte segir að öll lönd í Evrópu, sem og Matvæla­stofnun hér á landi, fylgist með þróun mála vegna aflífunar á hanaungum sem „falla til“ við útungun í varp­hænsnarækt. „Umræðan er fyrst og fremst siðferðisleg, vegna þess að helmingur dýra sem verða til þarf að aflífafa þar sem hanarnir eru ekki notaðir. Til viðbótar þykir aflífunar­aðferðin með mölun ómannúðleg.“

Verið sé að skoða margar leiðir til að leysa þetta. Ein sé sú að rækta svokallaðan „Dual-stofn“, þar sem hægt er að nýta kvendýrin, hænurnar, í eggja­framleiðslu en karldýrin, hanana, í kjöt­framleiðslu. „Sú leið hefur hingað til ekki náð að breiðast út og slíkir stofnar eru mjög lítið notaðir.“'

Kyngreining í eggjum

Önnur leið sé að kyngreina fóstur í eggjum svo hægt sé að taka karlkyns fóstur nægilega snemma úr útungunar­vélum og farga þeim áður en tauga­kerfi er nægilega þroskað til að þeir finni fyrir sársauka. Frakkland og Þýskaland hafa kosið að fara þessa leið og þar með banna aflífun á hanaungum.

„Þessi lönd eru þó ekki alveg sammála hversu gamalt fóstur má vera við aflífun eftir vélræna kyngreiningu,“ bendir Brigitte á. Þýskaland ákvað að í byrjun árs 2024 verði bannað að aflífa fóstur eftir 6. dag í útungun. Í Frakk­landi verður það einhverjum dögum seinna.

Fylgjast með þróun annarra aflífunaraðferða

„Mölun á fóstrum í eggjum og dags­gömlum ungum er leyfileg aðferð,“ ítrekar Brigitte. Um hana er fjallað í reglugerð (EB) nr. 1099/2011 um velferð dýra við aflífun sem hefur verið innleidd hér. „Aðferðin með mölun virkar ómannúðleg en það skiptir máli með þessa aðferð eins og með allar aflífunar­aðferðir að rétt sé að henni staðið.“

Matvæla­stofnun fylgist með þróun mála, þá sérstak­lega þróun annarra aflífunar­aðferða og hvort þær verði teknar upp í löggjöfina. MAST hafi eftirlit með því að varphænsna­hald sé í samræmi við kröfur í lögum og reglu­gerðum en „það er ekki hennar hlutverk að taka afstöðu til siðferðilegra spurninga“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár