Ætla að banna bæði mölun og kæfingu hænuunga

Stjórn­völd í tveimur ríkjum ESB hafa ákveðið að á næsta ári verði bannað að drepa hænuunga með mölun. Frakkar ætla að ganga skrefinu lengra og banna einnig kæfingu þeirra með gasi.

Á bilinu 150-200 þúsund hænuungar eru aflífaðir með mölun eða gösun hér á landi árlega.
Á bil­inu 150-200 þús­und hænu­ungar eru aflífaðir með mölun eða gösun hér á landi árlega. Mynd: Pexels

Frakkar hafa ákveðið að frá og með næsta ári verði bannað að drepa karlkyns hænuunga með mölun eða gösun. Báðum þessum aðferðum er beitt hér á landi við aflífun tugþúsunda karlkyns varp­hænuunga árlega fljótlega eftir að þeir klekjast úr eggjum.

Frönsk stjórn­völd hafa þar með tekið undir gagnrýni dýra­verndunar­samtaka um að aðferðirnar tvær séu grimmilegar og ætla þau að þrýsta á að bannið verði tekið upp í öllu Evrópu­sambandinu.

Á hverju ári eru um 50 milljónir karlkyns hænuunga drepnir í Frakk­landi með annað hvort mölun (e. shredding) eða gösun, að sögn land­búnaðar­ráðherrans Julien Denormandie. Aðeins kvenkyns ungarnir fá að lifa en þó ekki lengi því ævi varphæna á verksmiðju­búum er stutt, oftast ekki lengri en 18 mánuðir.

„Frakkland verður fyrsta landið í heiminum ásamt Þýska­landi til að binda endi á að karlkyns hænuungar séu malaðir og gasaðir,“ sagði Denormandie er endanleg ákvörðun um bannið var tilkynnt nýverið.

Hann sagði að frönsk og þýsk stjórn­völd myndu beita sér fyrir því að önnur aðildar­ríki ESB færu sömu leið. Frá og með næsta ári þurfa alifugla­bændur að koma sér upp búnaði til að kyngreina unga á meðan þeir eru enn í eggi.

Denormandie segir að ákvörðuninni verði framfylgt í skrefum. Gert sé ráð fyrir að meirihluti útungunar­stöðva verði kominn með tækja­búnað til að kyngreina unga í eggi fyrir lok fyrsta ársfjórðungs næsta árs. Bannið gæti hækkað verð á sex eggja bakka um 0,1 evru eða um 15 krónur íslenskar.

Frakkar ætla að aðstoða eggja­bændur við að koma sér upp nýjum tækjum og hefur heitið 10 milljóna evra styrks til verksins eða um 1,5 milljörðum króna.

Um tugur eggjabúa er starf­ræktur á Íslandi. Árlega má gera ráð fyrir að um 150-200 þúsund karlkyns hænuungar séu aflífaðir með ýmist mölun eða gösun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár