Skaði á bringubeinum varphæna „býsna algengur“ á Íslandi

Ganga má út frá því að 85 pró­sent varp­hæna hér á landi séu með sprungið eða brotið bringu­bein rétt eins og frænkur þeirra á dönskum eggja­búum. Alvar­leiki meiðsla er mis­jafn en sé brotin ný og mikil „þá er þetta sárt,“ segir sér­greina­dýra­læknir hjá MAST.

Engar rann­sóknir hafa verið gerðar á bringu­beins­skaða hjá varp­hænum hér á landi „en við vitum að þetta er til staðar hér og er býsna algengt líkt og ann­ars staðar,“ segir Brigitte Brugger, sér­greina­dýra­læknir í heil­brigði og vel­ferð ali­fugla hjá Mat­væla­stofnun (MAST). Ný dönsk rann­sókn um bringu­beins­skaða varp­hæna hefur vakið mikla athygli en sam­kvæmt nið­ur­stöðum hennar reynd­ust 85 pró­sent hæn­anna með sprungið eða brotið bringu­bein. Rann­sóknin beind­ist að vel­ferð varp­hæna, einkum hvaða áhrif það hefði á lík­am­legt ástand þeirra að verpa árlega jafn mörgum eggjum og raun ber vitni. Enn­fremur hvaða máli stærð eggj­anna skipti í þessu sam­bandi.

Um 200 þúsund varphænur

Á Íslandi eru rekin 10-11 varp­hænubú og í land­inu eru lík­lega um eða yfir 200 þús­und varp­hænur. „Það má búast við því að bringu­beins­skaði sé svipað vanda­mál hér og í Danmörku og í raun alls staðar ann­ars staðar í Evrópu og vænt­an­lega í heim­inum,“ segir Brigitte. Hér á landi séu aðstæður á eggja­búum mjög svip­aðar og í Danmörku. Sami fugla­stofn er not­aður, farið er eftir sömu ráð­legg­ingum við eldið, svipað fóður gefið og aðstæður á búunum almennt, s.s. inn­rétt­ingar í húsum, sam­bæri­legar. Það helsta sem skilur að er að á Íslandi eru sjúk­dómar í ali­fuglum mun fátíð­ari en ann­ars staðar. Nánast engar bólu­setn­ingar eru gefnar hér og mun minni lyfja­gjöf. „Það er held ég eini stóri mun­ur­inn,“ segir Brigitte.

Þótt danska rann­sóknin hafi vakið mikla athygli, bæði í Danmörku og hér á landi eftir að fjallað var um hana í Kjarn­anum síð­ustu helgi, var bringu­beins­skaði ekki óþekkt vanda­mál. Hann var miklu heldur vel þekktur og hefur verið rann­sak­aður tölu­vert síð­ustu ár.

„Há tíðni og alvar­leiki bringu­beins­skaða er eitt stærsta vel­ferð­ar­vanda­mál sem eggja­fram­leið­endur standa frammi fyrir,“ segir í inn­gangi sam­an­tektar um evr­ópska sam­starfs­verk­efnið COST Action – KeelBoneDamage (KBD), sem unnið var að á árunum 2016-2020 og Ísland tók þátt í. Þar kom fram að 30-90 pró­sent af hverjum varp­hænu­hópi væri með skaða á ein­hverju stigi á bringu­beini við um tíu mán­aða aldur. „Við trúum því að brot, sér­stak­lega þegar þau eru ný og á því stigi að bein­brotin eru enn laus, valdi fugl­unum sárs­auka, stytti líf­tíma þeirra og minnki fram­leiðslu.“

Í fræðslu­mynd­bandi ætl­uðu bændum sem gefið var út í tengslum við verk­efnið segir að þótt „fuglar með og án brota geti litið eins út og hagað sér eins þá er skað­inn þarna og lík­legur til að minnka fram­leiðslu og vel­ferð“.

Bringubeinsskaði hjá varphænum hefur verið þekktur lengi. Skýringarmyndin sýnir hvar bringubeinið er í hænunni.
Bringu­beins­skaði hjá varp­hænum hefur verið þekktur lengi. Skýr­ing­ar­myndin sýnir hvar bringu­beinið er í hæn­unni.

Nið­ur­stöður dönsku rann­sókn­ar­innar, sem unnin var af vís­inda­mönnum Háskól­ans í Kaup­manna­höfn, benda til þess að sprungin eða brotin bringu­bein séu vegna þess að eggin sem hæn­urnar verpa eru orðin hlut­falls­lega of stór. Með öðrum orðum: Litlar hænur eru farnar að verpa of stórum eggjum.

Talið er að ástæð­urnar fyrir bringu­beins­skaða séu fleiri og eldri rann­sóknir hafa frekar bent til áverka að utan­verðu. Hænur eru ekki góðir flug­fuglar en þær flögra þó um, sér­stak­lega ef þær fyll­ast ofsa­hræðslu. Þá geta þær lent á inn­rétt­ingum í eld­is­hús­unum og slasast. „Þær bara brot­lenda,“ segir Brigitte.

Aðrir áhættu­þættir geta svo falist í rækt­un­inni sjálfri.

Æviskeið varp­hænu er stutt. Er ung­arnir koma úr eggi er eins og gefur að skilja um helm­ing­ur­inn hanar. Ungarnir eru kyn­greindir við útungun og han­arnir aflífaðir. Nota má tvenns konar aðferðir við það hér á landi; gösun með koldí­oxíði og mölun (e. shredd­ing). Bann við síð­ar­nefndu aðferð­inni, mölun, var nýverið lög­fest í Þýska­landi. Í stað þess að mala hanaung­ana lif­andi skal frá og með næstu ára­mótum kyn­greina meðan þeir eru enn í eggi. Lengra á að ganga árið 2024 er aðeins verður heim­ilt að farga ungum fóstrum.

Hænurnar eyða hins vegar um það bil fyrstu fjórum mán­uðum lífs síns í svoköll­uðum upp­eld­is­húsum en um það leyti sem þær verða kyn­þroska og byrja að verpa eru þær fluttar í varp­hús. Er þær ná um 16-18 mán­aða aldri eru þær drepnar með gösun, hræj­unum fargað og nýr varp­hænu­hópur fluttur inn í húsin.

Á eggjabúum er hver hæna látin verpa í um eitt ár og á þeim tíma jafnvel um 300 eggjum.
Á eggja­búum er hver hæna látin verpa í um eitt ár og á þeim tíma jafn­vel um 300 eggjum.

Hver hæna verpir því aðeins í um eitt ár og á þeim tíma jafn­vel um 300 eggjum. Líkt og í Danmörku er lýs­ing notuð til að stýra kyn­þroska ung­hæna. Í reglu­gerð er kveðið á um að tryggja beri full­orðnum varp­hænum órofna myrkvun þriðj­ung sól­ar­hrings­ins.

„Varp­hænur eru aldar upp til að verpa,“ segir Brigitte. Það sé vissu­lega hagur bónd­ans að fá sem flest egg en það sé líka hans hagur að hænan sé sterk­byggð. „En þetta er gíf­ur­legt álag á hæn­una,“ segir hún. Þessi mikla fram­leiðsla og hraði upp­vöxtur reyni mikið á efna­skipti þeirra og bein­styrk því mikið af kalki fari í eggja­skurn­ina.

Um aðbúnað ali­fugla og þar með varp­hæna gildir reglu­gerð um vel­ferð ali­fugla. Í henni kemur fram hversu þétt­leik­inn í eld­is­hús­unum má vera mik­ill, hvernig verja skuli dýrin fyrir sýk­ingum, hvernig inn­rétt­ingar skulu vera, fóðrun og svo fram­vegis. Brigitte segir regl­urnar mjög sam­bæri­legar og finna má víð­ast ann­ars staðar í Evrópu.

Spurð hvort dýra­læknar skoði varp­hænur með til­liti til þess hvort að þær kunni að vera með sprungið eða brotið bringu­bein segir hún svo nákvæma lækn­is­skoðun ekki fara fram. Eftirlit Mat­væla­stofn­unar felist í því að taka út húsin og fugla­hóp­inn í heild og ganga úr skugga um að öll ákvæði reglu­gerð­ar­innar séu upp­fyllt.

Hæna með bringu­beins­skaða ber það ekki endi­lega utan á sér. Hún getur jafn­vel haldið áfram að verpa. „Það hafa verið gerðar rann­sóknir á því hvort að þær fari að verpa minna,“ segir Brigitte. „Það eru ekki skýrar vís­bend­ingar um það en þó talið að þetta hafi áhrif.“

En er ekki aug­ljóst að dýri með brotið bein því líður ekki vel?

„Nei, það er rétt,“ svarar hún. „Ef það er bein­brot og ekki gróið. Sum brot eru gróin. Sumar breyt­ingar eru ekki brot heldur aflögun og það er ekki talið valda sárs­auka þó að það sé ekki alveg ljóst í rann­sóknum. En ef þetta eru ný og mikil brot þá er þetta sárt.“

Þessi danska rann­sókn hefur vakið mikla athygli í Danmörku og einnig hér á landi. Þetta er eins og með margt í mat­væla­fram­leiðsl­unni, svo­lítið falið. Skoðar Mat­væla­stofnun svona rann­sóknir og íhugar breyt­ingu á sínum reglum eða hvetur til þess?

„Já, við fylgj­umst með rann­sóknum erlendis og hvað kemur úr þeim og hvaða leiðir finn­ast til að fyr­ir­byggja álagið á dýrin. Bæta þeirra vel­ferð. Við erum vak­andi yfir þessu og stígum í takt við það sem þeir sjá og finna erlendis. Velferð dýra er í algjöru fyr­ir­rúmi hjá okkur og stór þáttur í okkar eft­ir­liti er að fylgj­ast með henni. En innan þess ramma sem lögin setja.“

Hún bendir á að ávallt sé reynt að gefa út leið­bein­ingar til bænda í ljósi nýj­ustu þekk­ingar og jafn­framt metið hvort breyta þurfi reglu­gerðum.

Varphænur á pallaskiptum varpbúnaði á búi í Hollandi. Búr verða bönnuð á eggjabúum hér á landi frá áramótum en slíkt hið sama var gert í Evrópu fyrir tæpum áratug.
Varp­hænur á palla­skiptum varp­bún­aði á búi í Hollandi. Búr verða bönnuð á eggja­búum hér á landi frá ára­mótum en slíkt hið sama var gert í Evrópu fyrir tæpum ára­tug.

Um ára­mót tekur hér á landi gildi ný reglu­gerð sem bannar varp­hænu­hald í búrum en sam­bæri­legt bann tók gildi í öðrum Evr­ópu­löndum árið 2012. Á mörgum íslensku búanna hefur verið eða verður tek­inn í notkun palla­skiptur varp­bún­aður sem eykur aðgengi­legt gólf­rými miðað við grunn­flöt hús­anna sjálfra. Þannig er loft­hæð hús­anna nýtt til að koma fyrir miklum fjölda hæna.

Með því að hætta með búrin geta hæn­urnar „meira sýnt sitt eðli­lega atferli,“ segir Brigitte um ávinn­ing­inn af reglu­gerð­ar­breyt­ing­unni. „Í búr­unum geta þær lítið annað gert en að drekka og éta. Þær geta ekki sand­baðað sig. Þær geta ekki hvílst á prikum eins og þeim er eðli­legt. Þær geta ekki dregið sig í hlé til að verpa í hreiðri. Þannig að með því að taka búrin þá fá þær að minnsta kosti þennan aðbúnað, geta hreyft sig miklu meira og það styrkir líka beinin.“

Það er þó ekki þannig að þessi breytti aðbún­aður muni útrýma bringu­beins­skaða. Síður en svo. „Bringu­beins­skaði er vanda­mál hjá hænum í búrum en hann er ekk­ert minna vanda­mál hjá lausa­göngu hænum af því að þá eru meiri líkur á árekstrum.“

Hænur flögra um og geta slasast ef þær lenda á innréttingum í eldishúsunum.
Hænur flögra um og geta slasast ef þær lenda á inn­rétt­ingum í eld­is­hús­unum.

Orsök árekstr­anna getur verið, að því er kemur fram í sam­an­tekt KBD-verk­efn­is­ins, ofsa­hræðslu­upp­þot eða öng­þveiti, svo sem í ljósa­skiptum þegar fugl­arnir flytja sig upp á prik fyrir hvíld. Í reglu­gerðum er kveðið á um hæg ljósa­skipti til að lág­marka þessa hættu. Hraður vængja­sláttur við ofsa­hræðslu eða þegar fuglar eru að reyna að kom­ast aftur upp eftir fall eru einnig taldar mögu­legar orsakir. „Því ættu fram­leið­endur að reyna að hafa greiðan aðgang upp á inn­rétt­ingar og reyna að forð­ast ofsa­hræðslu,“ segir m.a. í leið­bein­ingum til eggja­fram­leið­anda sem gefnar voru út í tengslum við KBD-verk­efnið.

„Það er ekki til ein góð lausn,“ segir Brigitte. „En það er alltaf verið að reyna að finna leiðir til að gera betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið undanfarið ár