Mynd: EPA

Aðstæður dýra sem búa við þauleldi „eru forkastanlegar“

Að hafa varp­hænur í búrum er slæmt en að bregð­ast við með því að stafla þeim á palla í sama þrönga rým­inu er „aumk­un­ar­verð til­raun til mála­mynda,“ segir í athuga­semd um áform­aða fram­leiðslu­aukn­ingu Stjörnu­eggja. Sex þaul­eldibú eru starf­rækt á Kjal­ar­nesi.

Stjörnu­egg fyr­ir­hugar „mjög umfangs­mikla“ fram­leiðslu­aukn­ingu í eggja­búi sínu að Vallá að mati Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur og því verði að huga vand­lega að umhverf­is­á­hrifum. Dreifing um 3.500 tonna af hænsna­skít árlega á jörð­inni Geld­ingaá í Borg­ar­firði, skíts sem myndi falla til með auknum fjölda fugla, skapar hættu á mengun sam­eig­in­legs vatns­bóls að mati land­eig­enda í nágrenn­inu. Umhverf­is­stofnun minnir á að óheim­ilt er að dreifa skít yfir helstu vetr­ar­mán­uð­ina og Reykja­vík­ur­borg segir áform­aða fram­leiðslu­aukn­ingu kalla á breyt­ingu á deiliskipu­lagi og vekur athygli á fram­komnum hug­myndum um að skil­greina svæði þar sem svo­kallað þaul­eldi er stundað sem iðn­að­ar­svæði en ekki land­bún­að­ar­svæði í aðal­skipu­lagi.

Samtök græn­kera á Íslandi benda á að aðstæður dýra sem þurfa að búa við þaul­eldi séu for­kast­an­legar. Enn meiri fram­leiðsla Stjörnu­eggs myndi auk þess koma litlum bændum, þar sem líf varp­hæna er bæri­legt, illa.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögnum og athuga­semdum við til­lögu að mat­sætlun Stjörnu­eggs hf. sem áformar að upp­færa búnað og auka þannig fram­leiðslu­getu í eggja­búi sínu að Vallá á Kjal­ar­nesi. Í dag er á búinu mögu­legt að hýsa 50.000 hænur en með breyt­ingum á bún­aði tveggja eldri húsa yrði hægt að auka fjöld­ann upp í 95.000 hænur. Aukn­ingin fæst með því að setja upp varp­kerfi á pöllum, svo­nefndan Aviary-búnað, og hætta þar með notkun á búrum og lausa­göngu á ristum. Húsin eru því ekki stækkuð heldur settir upp pallar og með því móti ger­legt að koma þar fyrir fleiri fuglum.

Fram­kvæmdin er mats­skyld sam­kvæmt lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum þar sem um er að ræða svo­kallað þaul­eldi ali­fugla. Hugtakið þaul­eldi er þýð­ing á hug­tak­inu „intensive rear­ing“ og er til­kynn­ing­ar­skylt til Skipu­lags­stofn­unar ef til stendur starf­semi með yfir 85.000 stæðum fyrir kjúklinga eða 60.000 fyrir hænur.

Tillaga að mats­á­ætlun er eitt fyrsta skrefið í umhverf­is­mats­ferl­inu sem lýkur ekki fyrr en Skipu­lags­stofnun hefur gefið álit sitt á end­an­legri mats­skýrslu fram­kvæmda­að­ila. Stofn­anir og almenn­ingur hefur næst aðkomu að ferl­inu þegar frum­mats­skýrsla verður kynnt. Að auki þurfa fram­kvæmda­að­ilar að fá leyfi við­kom­andi sveit­ar­fé­lags, óska eftir breyt­ingum á deili- og aðal­skipu­lagi, ef þörf krefur, og sækja um leyfi fyrir starf­sem­inni hjá við­eig­andi stofn­unum.

Sex bú á Kjalarnesi með þauleldi

Mat­væla­fram­leiðsla á Kjal­ar­nesi er í auknum mæli bundin við þaul­eldi. Starfs­leyf­is­skyld svína- og kjúklingabú eru starf­rækt á Móum, Vallá, Mela­völlum, Braut­ar­holti, Saltvík og Sætúni. „Breyttar áherslur í land­bún­aði, með auknu vægi líf­rænnar rækt­unar og beinni tengslum fram­leið­enda og neyt­enda, getur skapað ný tæki­færi í mat­væla­fram­leiðslu á Kjal­ar­nesi,“ segir í umsögn heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur. „Þar nýtur Kjal­ar­nesið nálægðar við stærsta þétt­býl­is­svæði lands­ins, þar sem eft­ir­spurn eftir líf­rænt vott­uðum afurðum beint frá býli eykst sífellt.“

Aviary-búnaður eins og sá sem Vallá hyggst nota í öllum húsum sínum. Mynd: Úr frummatsskýrslu
Aviary-bún­aður eins og sá sem Vallá hyggst nota í öllum húsum sínum. Mynd: Úr frum­mats­skýrslu

Samtök græn­kera á Íslandi leggj­ast alfarið gegn áætl­un­unum Stjörnu­eggs um enn meiri fjölda­fram­leiðslu eggja. Þau segja í athuga­semd sinni að einu gildu rökin fyrir því að fara í slíka fram­kvæmd væru ef Íslend­ingum staf­aði ógn af minnk­andi eggja­fram­leiðslu til mann­eldis en slíkt sé engan veg­inn raunin. „Þessi fram­kvæmd snýst um að við­halda og auka við hag örfárra á kostnað margra. Fyrir utan fugl­ana sem þurfa að líða óþol­andi aðstæður þá er þessi fram­kvæmd í beinni sam­keppni við smærri fram­leið­endur og bændur þar sem að líf hænsnanna er mun bæri­legra en það sem þekk­ist í verk­smiðjum Stjörnu­eggs. Það er því til mik­ils að vinna að þessi áætlun verði ekki að veru­leika.“

Benda sam­tökin á að mun mann­úð­legri aðferðir séu til þess að fram­leiða egg en að auka fjölda fugla í búum þar sem fjölda­fram­leiðsla fer fram. „Við ættum að stemma stigu við neyslu eggja þar sem stuðst er við þaul­eldi og stuðla frekar að fram­leiðslu­háttum þar sem er sýndur raun­veru­legur metn­aður til þess að taka til­lit til hags­muna og vel­ferðar fugl­anna. Starf­semi Stjörnu­eggs er skil­greind sem þaul­eldi og talað um hana sem slíka í til­lög­unni, en aðstæður dýra sem þurfa að búa við þaul­eldi eru for­kast­an­legar og er lítið sem ekk­ert til­lit tekið til hags­muna dýr­anna.“

Fá aldrei að fara út

Samtökin vekja einnig athygli á því að eldi á 95 þús­undum varp­hænum þýði að „farga“ þurfi um 95 þús­und karl­kyns­ungum á 15 mán­aða fresti því þeir séu „óþarfir í þessum iðn­aði. Restin, þús­undir hæna, hljóta þau örlög að hanga í sama þrönga rým­inu; inni­lok­aðar í glugga­lausum bygg­ingum, og er mikið af lífs­ferlum þeirra stjórnað af þar til gerðum ljósa­kerfum. Þær fá aldrei að fara út. Fara í ryk­bað.“

Lengi hefur verið bent á hversu slæmur aðbún­aður felist í því fyrir varp­hænur að alast upp í búrum. Hefur því verið stefnt að því, m.a. með lögum, að notkun búra verði hætt. „En það að hætta að halda hænur margar saman í þröngum búrum og þess í stað að halda þær í þús­unda­tali í sama þrönga rým­inu er aumk­un­ar­verð til­raun til mála­mynda og ætti ekki að vera liðin.“

Hænur, og sér í lagi varp­hænur, hafa verið rann­sak­aðar nokkuð ítar­lega, benda sam­tökin enn­fremur á. Þeim líði vel þegar þær geta kroppað í jörð og blakað vængj­unum. Þær hafi nátt­úru­lega þörf fyrir að fara í ryk­bað og tylla sér á prik. Þær vilji verpa í friði og finn­ist best að vera í hóp sem telji færri en hund­rað. „Aðstæður á þaul­eldis verk­smiðju­búum eru þannig að hæn­urnar geta ekki fram­kvæmt þessi eðl­is­lægu atferli sem stuðla að heil­brigði þeirra og almennri vellíðan. Áætlun um að Stjörnu­egg auki fram­leiðslu sína um 45 þús­und fugla þýðir ein­göngu það að á hverri stundu eru hags­munir 45 þús­und fleiri fugla virtir að vettugi.“

Þessi fram­kvæmd snýst um að við­halda og auka við hag örfárra á kostnað margra.
Rannsóknir sýna að varphænur vilja fá að verpa í friði.
Rann­sóknir sýna að varp­hænur vilja fá að verpa í friði.

Óttast mengun vatnsbóls

Eigendur og ábú­endur á jörð­unum Skor­holti, Skipa­nesi, Læk og Lyng­holti, sem eru í nágrenni Geld­ingaár, gera athuga­semdir við dreif­ingu á svo miklu magni af skít við vatns­ból og í nálægð við vatns­vernd­ar­svæði. Á það er m.a. bent í athuga­semdum frá jarð­eig­end­unum að sam­eig­in­legt vatns­ból þeirra sé í landi Geld­ingaár. Hins vegar séu vatns­ból á svæð­inu ekki merkt inn á það kort sem sýni svæðið sem til stendur að dreifa á skítnum á. „Það er krafa okkar að gerðar verði þær fyr­ir­byggj­andi ráð­staf­anir sem þarf til að þau skað­ist ekki á nokkurn hátt af umræddri fram­kvæmd,“ stendur í sam­eig­in­legri athuga­semd fjög­urra land­eig­enda. „Eins þarf að ganga úr skugga um að búfjár­á­burður eða mengun frá honum ber­ist ekki út í ár og læki sem búfé og líf­ríki stafi hætta af en áin Geld­ingaá og aðrir lækir renna frá þessu svæði í gegnum beit­ar­lönd okkar og enda í Grunna­firði sem er frið­lýst Rams­ar­svæði.“

Umhverf­is­stofnun bendir í umsögn sinni á að í til­lögu að mats­á­ætlun sé hvergi minnst á lög um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir né reglu­gerð um losun frá atvinnu­rekstri og meng­un­ar­varna­eft­ir­lit þar sem fram kemur starfs­leyf­is­skylda starf­sem­innar hjá Umhverf­is­stofnun. Úr þessu þurfi að bæta í frum­mats­skýrslu.

Hauggeymslur skulu vera lokaðar

Stofn­unin áréttar að hún hafi ekki gefið út að fyr­ir­komu­lag haug­geymsla á Vallá, sem nú er í opnum gámum, sé full­nægj­andi eins og haldið er fram í skýrslu Stjörnu­eggs. Í eft­ir­lits­skýrslu Umhverf­is­stofn­unar á síð­asta ári hafi verið tekið fram að þó svo fallið hafi verið frá frá­viki á haug­geymslu­fyr­ir­komu­lagi þá geti kröfur verið útfærðar á annan hátt þegar unnið verði að nýju starfs­leyfi hjá stofn­un­inni. Stofn­unin tekur fram að haug­geymslur skulu vera lok­aðar, vand­aðar og þéttar til að koma í veg fyrir jarð­vegs-, vatns- og lykt­ar­mengun.

Koma þurfi skýrt fram í frum­mats­skýrslu hvar og hvernig hænsna­skítur verði geymdur þann hluta árs þegar dreif­ing hans er óheimil. Stofn­unin telur skyn­sam­legt að nota hænsna­skít sem áburð en ein­ungis þar sem ekki er hætta á mengun lækja, áa eða vatns­bóla. Stofn­unin bendir á að landið sem til­greint er til dreif­ingar sé á grann­svæði vatns­verndar og að þar sé einnig brunn­svæði að finna.

Vallá er á land­bún­að­ar­svæði sam­kvæmt aðal­skipu­lagi Reykja­víkur en sam­kvæmt deiliskipu­lagi frá árinu 2014 er gert ráð fyrir um 50 þús­und fuglum að með­al­tali á búinu. Í umsögn Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur kemur fram að um „mjög umfangs­mikla“ aukn­ingu sé að ræða og því þurfi að huga vel að umhverf­is­á­hrifum fyrir nær­liggj­andi íbúð­ar­hverfi, sér­stak­lega hvað varðar loft­mengun. Núgild­andi deiliskipu­lag geri ekki ráð fyrir þessum fjölda ali­fugla og því sé þörf á skipu­lags­breyt­ingu.

Reykja­vík­ur­borg bendir í sinni umsögn á að í gangi sé vinna við að setja skýr­ari ákvæði um ræktun og mat­væla­fram­leiðslu á land­bún­að­ar­svæðum innan borg­ar­markanna. Leið­ar­ljósið sé að efla land­búnað sem nýti gæði lands­ins til rækt­unar og mat­væla­fram­leiðslu. Skýrslu starfs­hóps um málið sé að vænta en í honum hefur m.a. sá mögu­leiki verið ræddur að setja ákveðnar tak­mark­anir á þaul­eldi, jafn­vel þær að ekki yrði heim­ilt að stofna til slíks búskapar á öðrum jörðum en þeim sem þegar hafa til þess leyfi. Þá hefur einnig verið rætt um að skil­greina svæði sem þaul­eldi er stundað á sem iðn­að­ar­svæði en ekki land­bún­að­ar­svæði í aðal­skipu­lagi borg­ar­innar fari umfangið yfir ákveðin mörk. Þaul­eld­is­búum sem fyrir eru yrði gefið eðli­legt svig­rúm til þró­unar en almennt tryggt að þeim fjölgi ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið undanfarið ár