Svæði

Kjalarnes

Greinar

Það sem SÁÁ vill ekki tala um
Rannsókn

Það sem SÁÁ vill ekki tala um

Meðferð SÁÁ snýst um að lækna „lífs­hættu­legan heila­sjúk­dóm,“ en konur hafa upp­lifað ógn­anir og áreitni frá dæmdum brota­mönnum í með­ferð­inni. Ung stúlka lýsir því hvernig hún hætti í með­ferð vegna ógn­ana og áreitis. Vinkona móður hennar var vikið fyr­ir­vara­laust úr með­ferð án skýr­inga, eftir að hún til­kynnti um áreitni, og ekki vísað í önnur úrræði þrátt fyrir alvar­leika sjúk­dóms­ins. For­svars­menn SÁÁ segja gagn­rýni ógna öryggi og heilsu ann­arra sjúk­linga og vísa henni á bug.
Sjálfboðaliðum bannað að heimsækja hælisleitendur: „Stendur ekki til boða“
FréttirFlóttamenn

Sjálf­boða­liðum bannað að heim­sækja hæl­is­leit­endur: „Stendur ekki til boða“

Íslenskir sjálf­boða­liðar víðs­vegar að úr sam­fé­lag­inu hafa um ára­bil veitt hæl­is­leit­endum á Íslandi félags­legan jafnt sem and­legan stuðn­ing. Útlend­inga­stofnun hefur nú lagt blátt bann við heim­sóknum sjálf­boða­liða á heim­ili hæl­is­leit­enda. Starfs­maður stofn­un­ar­innar segir ekki standa til boða að létta hæl­is­leit­endum lífið inni á þessum stöðum.
Banna hælisleitendum að tala við fjölmiðla til að „vernda friðhelgi einkalífs þeirra“
FréttirFjölmiðlabann Útlendingastofnunar

Banna hæl­is­leit­endum að tala við fjöl­miðla til að „vernda frið­helgi einka­lífs þeirra“

Útlend­inga­stofnun leggur blátt bann við við­tölum fjöl­miðla­fólks við flótta­fólk á heim­ilum þeirra. Regl­urnar eiga sér ekki stoð í almennum lögum en upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar vísar í ákvæði stjórn­ar­skrár­innar um frið­helgi einka­lífs og heim­ilis máli sínu til stuðn­ings. Hann þver­tekur fyrir að með þessu sé vegið að tján­ing­ar­frelsi íbúa. Verk­efna­stjóri hæl­is­sviðs hjá Útlend­inga­stofnun líkir við­tali þátta­stjórn­enda Hæpsins við hæl­is­leit­endur Arn­ar­holti við hús­brot.

Mest lesið undanfarið ár