Engar vísbendingar um neikvæð áhrif CBD

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin segir ýmsar vís­bend­ingar um nota­gildi efn­is­ins CBD úr kanna­bis, en engar um mis­notkun eða lýð­heilsu­vanda. Læknir varar í Frétta­blað­inu við lög­leið­ingu þess.

Engar vísbendingar um neikvæð áhrif CBD
Kannabis Engar vís­bend­ingar eru um nei­kvæð áhrif CBD, sam­kvæmt WHO.

Lára G. Sig­urð­ar­dóttir læknir varar við því að fólk „deyfi sig með CBD“ í grein í Frétta­blað­inu í dag. Efnið er ólög­legt á Íslandi, en það er selt erlendis án efn­is­ins THC sem er vímu­gjafi í kanna­bis­plönt­unni. Engar vís­bend­ingar eru um nei­kvæðar afleið­ingar neyslu CBD sam­kvæmt skýrslu alþjóða­stofn­unar.

Í grein­inni segir Lára að eina óum­deil­an­lega nota­gildi kanna­bid­íól (CBD), sem unnið er úr kanna­bis­plöntum, sé sam­kvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) að draga úr áhrifum sjald­gæfrar floga­veiki og þar þurfi læknir að vera með í ráðum. „Það eru reyndar vís­bend­ingar um að CBD geti hjálpað við kvíða, svefn­leysi og verkjum en þetta hefur enn ekki verið stað­fest á óum­deil­an­legan hátt,“ skrifar hún.

Þá segir hún CBD vera umdeil­an­legt og að Íslend­ingar verði að stíga var­lega til jarðar. Umræða um lög­leið­ingu þess hefur farið fram á Alþingi. „Og í stað þess að reyna að normalísera kanna­bis­neyslu á Íslandi væri virð­ing­ar­verð­ara ef umræddir þing­menn legðu púður sitt í að auð­velda fólki aðgang að sjúkra­þjálf­urum, læknum og sál­fræð­ingum til að ráð­ast að rótum vand­ans í stað þess að hvetja fólk til að deyfa sig með CBD,“ skrifar hún.

„Til þessa eru engar vís­bend­ingar um notkun CBD sem vímu­gjafa eða lýð­heilsu­tengd vanda­mál sem tengj­ast notkun hreins CBD“

Í skýrslu WHO frá júní í fyrra, sem Lára vísar lík­lega í, kemur fram að neysla mann­fólks á CBD hafi ekki sýnt að hún leiði til mis­notk­unar eða fíknar. Vís­bend­ingar séu um að það nýt­ist sem með­ferð gegn fjölda heilsu­fars­legra kvilla. CBD sé almennt án alvar­legra hlið­ar­verk­ana og notkun þess sé örugg. „Mörg lönd hafa breytt stefnu sinni til að koma CBD að sem heilsu­vöru,“ segir í skýrsl­unni. „Til þessa eru engar vís­bend­ingar um notkun CBD sem vímu­gjafa eða lýð­heilsu­tengd vanda­mál sem tengj­ast notkun hreins CBD.“

Lára segir skyn­sam­legra að mark­aðs­setja CBD sem lyf, ef það eigi að leyfa það til að með­höndla sjúk­dómskvilla. „Vissu­lega er kanna­bisdíól ekki vímu­gef­andi en við megum ekki gleyma því að það er fram­leitt úr kanna­bis­plöntu sem skaðar heila ungs fólks,“ skrifar hún. „Það er því ekki hægt að líkja því saman við lýsi eða önnur fæðu­bót­ar­efni sem hafa engin tengsl við svo skað­leg efni. Í Banda­ríkj­unum er ekk­ert eft­ir­lit með inni­haldi CBD-neyslu­vara og eru næstum 70% þeirra rang­merkt. Auk þess hefur vímu­gjaf­inn THC mælst oftar en ekki í fólki sem taldi sig ein­ungis vera að neyta CBD. Hver ætlar að sjá um eft­ir­litið á Íslandi – eng­inn!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár