Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
Full­giltu samn­ing­inn Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var for­sæt­is­ráð­herra og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra þegar Ísland full­gilti ECT-samn­ing­inn svo­kall­aða sem hefur að geyma ströng fjár­festa­vernd­ar­á­kvæði. Sama ár sagði Ítalía upp samn­ingnum. Mynd: Pressphotos.biz

Íslensk stjórn­völd full­giltu ECT-samn­ing­inn um orku­mál þann 7. júlí 2015 og sendu portú­gölskum stjórn­völdum, vörslu­að­ila samn­ings­ins, bréf því til stað­fest­ingar. 

Með þessu hefur Ísland meðal ann­ars skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga.

Í samn­ingnum (e. Energy Charter Treaty) er að finna ströng og gam­al­dags ákvæði um fjár­festa­vernd, úrlausn ágrein­ings­mála og skaða­bóta­á­byrgð ríkja sem hafa sætt harðri gagn­rýni víða um heim. Full­gild­ingin felur í sér að Ísland er nú skuld­bundið að þjóða­rétti til að virða og upp­fylla ákvæði samn­ings­ins.

Samn­ingur full­gilturGunnar Bragi Sveins­son und­ir­rit­aði full­gild­ing­ar­skjal sem utan­rík­is­ráð­herra ásamt for­seta.

Upp­lýs­ingar um full­gild­ingu Íslend­inga á samn­ingnum er að finna á vef alþjóða­skrif­stofu orku­sátt­mál­ans, en eftir því sem Stundin kemst næst var aldrei til­kynnt um málið á vef­svæði íslenska stjórn­ar­ráðs­ins og full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. 

„Forseti Íslands gjörir kunn­ugt: Ég hefi séð og athugað samn­ing um orku­sátt­mála sem und­ir­rit­aður var í Lissabon 17. des­em­ber 1994 og lýsi hér með yfir því að samn­ingur þessi er með skjali þessu full­giltur af Íslands hálfu, enda skal honum fram­fylgt í hví­vetna,“ segir í full­gild­ing­ar­skjali sem und­ir­ritað var af Ólafi Ragnari Gríms­syni, þáver­andi for­seta, og Gunnari Braga Sveins­syni, sem var utan­rík­is­ráð­herra á þessum tíma. Kom samn­ing­ur­inn til fram­kvæmda þann 18. októ­ber 2015.

Ítalía sagði upp samningnum 

Ítölsk stjórn­völd ákváðu að segja upp samn­ingnum sama ár og Ísland full­gilti hann, en breska olíu­fyr­ir­tækið Rockhopper hefur staðið í mála­ferlum gegn Ítalíu á grund­velli samn­ings­ins eftir að þar­lend stjórn­völd synj­uðu fyr­ir­tæk­inu um nýtt leyfi til olíu­vinnslu við strendur Abruzzo-hér­aðs.  

Alls hafa 122 þekkt gerð­ar­mál gegn ríkjum verið höfðuð á grund­velli ECT-samn­ings­ins, þar af 40 gegn Spáni, 10 gegn Ítalíu og 6 gegn Tékk­landi. Raunar hefur eng­inn alþjóð­legur við­skipta- eða fjár­fest­ing­ar­samn­ingur orðið grund­völlur eins margra gerð­ar­mála fyr­ir­tækja gegn ríkjum, en sum mál­anna í Evrópu eru við­bragð við aðgerðum sem stjór­völd hafa ráð­ist í til að lækka raf­orku­verð fyrir almenn­ing. 

Bretar einnig aðili að ECT-samningnum

Senni­legt er að reyna myndi á ákvæði samn­ings­ins ef upp kæmu deilur um lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­lands í fram­tíð­inni, enda eru Bretar einnig aðilar að samn­ingnum og hafa bresk fyr­ir­tæki nýtt sér óspart þá rétt­ar­vernd sem í honum felst.

Athygli vekur að gengið var frá full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þegar Gunnar Bragi Sveins­son var utan­rík­is­ráð­herra. Sig­mundur og Gunnar Bragi hafa und­an­farna mán­uði markað sér sess sem ein­hverjir hávær­ustu and­ófs­menn þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins og haldið því fram að inn­leið­ing orku­pakk­ans ógni full­veldi Íslands og muni tor­velda íslenskum stjórn­völdum að standa gegn lagn­ingu sæstrengs til lands­ins. 

Eins og marg­bent hefur verið á var lagður grunnur að inn­leið­ingu orku­pakk­ans í ráð­herra­tíð Sig­mundar og Gunnars Braga en auk þess átti rík­is­stjórn Sig­mundar frum­kvæði að því árið 2014 að reglur úr þriðja orku­pakk­anum voru bundnar í íslensk lög áður en þær voru sam­þykktar í sam­eig­in­legu EES-nefnd­inni og teknar upp í EES-samn­ing­inn. 

Mögu­leik­inn á lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­lands hefur verið til skoð­unar á und­an­förnum árum og ára­tugum. Sem kunn­ugt er stefna Bretar að útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu og vilja losna undan þeim reglum sem gilda um innri markað þess. Hins vegar bendir fátt ef nokkuð til þess að Bretar ætli að segja sig frá ECT-samn­ingnum um orku­mál. Bresk fyr­ir­tæki hafa notið góðs af fjár­festa­vernd­ar­á­kvæðum samn­ings­ins, sam­an­ber til dæmis mál breska fyr­ir­tæk­is­ins gegn Ítalíu. Að minnsta kosti 14 önnur bresk fyr­ir­tæki hafa höfðað mál á grund­velli samn­ings­ins og breskar lög­manns­stofur haft vel upp úr því.

Hrina gerðarmálsókna undanfarna áratugi

Eins og Stundin fjall­aði um í mars síð­ast­liðnum hefur færst í vöxt að einka­að­ilar höfði mál gegn ríkjum fyrir alþjóð­legum gerð­ar­dómum. Mál­sókn­irnar valda ríkjum oft umtals­verðu fjár­tjóni, ekki aðeins vegna bóta­skyld­unnar þegar mál tap­ast heldur einnig vegna máls­kostn­aðar og greiðslna sem inntar eru af hendi þegar málum lýkur með sátt. Þá hafa gerð­ar­mál­sóknir og hót­anir um þær kæl­ing­ar­á­hrif þegar kemur að stefnu­mótun, reglu­setn­ingu og laga­fram­kvæmd; hættan á því að fjár­festar fari í hart og dragi ríki fyrir gerð­ar­dóma fælir stjórn­völd frá því að beita þeim tækjum sem þau hafa til að standa vörð um almanna­hags­muni. 

ECT-orku­samn­ing­ur­inn hefur að geyma gerð­ar­dóms­á­kvæði sem telj­ast til eldri kyn­slóðar slíkra ákvæða. Samkvæmt samn­ingnum kemur það í hlut þriggja lög­fræð­inga að leysa úr ágrein­ingi fjár­festis og ríkis og geta ríki verið dæmd til að greiða einka­að­ilum skaða­bætur vegna aðgerða sem taldar eru hafa skaðað fjár­fest­ingar þeirra með beinum eða óbeinum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár