Vigdís Hauksdóttir: „Finnst fólki það ekki óeðlilegt að gangandi vegfarendur hafi forgang?“

Borg­ar­full­trúi Mið­flokksons, Vigdís Hauks­dóttir, segir for­gang gang­andi veg­far­enda í umferð­inni tefja för bif­reiða. „Eins og svo oft áður segir Vigdís Hauks sann­leik­ann,“ segir Gísli Marteinn Bald­urs­son.

Vigdís Hauksdóttir: „Finnst fólki það ekki óeðlilegt að gangandi vegfarendur hafi forgang?“
Vigdís Hauks­dóttir Borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins segir ástandið í umferð­inni óásætt­an­legt. Mynd: gunnarsvanberg.com

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, segir það óskilj­an­lega for­gangs­röðun að gang­andi veg­far­endur hafi for­gang í umferð­inni. Þetta kom fram í máli hennar á fundi borg­ar­stjórnar á þriðju­dag þegar rætt var um til­lögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um snjall­væð­ingu í umferðar- og ljósa­stýr­ingu.

Vigdís sagði að göngu­ljós væru til þess fallin að grípa inn í virkni ljósa­stýri­kerf­is­ins, enda væri þeim stýrt af þeim aðila sem þarf að kom­ast yfir göt­una. „Eins og við vitum hefur stefna meiri­hlut­ans verið sú að gang­andi veg­far­endur njóti for­gangs hér í umferð­inni í Reykja­vík,“ sagði hún. „Finnst fólki það ekki óeðli­legt að gang­andi veg­far­endur hafi for­gang hér í borg­inni þegar svo dýrt umferð­ar­ljósa­stýri­kerfi er til staðar og á í raun og veru að flýta umferð um allt að 30 til 40 pró­sent?“ spurði Vigdís. „Þetta er óskilj­an­leg for­gangs­röðun, for­seti, óskilj­an­leg for­gangs­röðun.“

Sagði Vigdís málið óásætt­an­legt og að sam­göngu­mál hefðu verið van­rækt í borg­inni á síð­ustu árum. Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, tók í kjöl­farið til máls og sagði orð Vigdísar nán­ast jaðra við fyr­ir­litn­ingu á gang­andi veg­far­endum.

„Manni verður eig­in­lega orða­vant undir þessum ótrú­lega lestri,“ sagði Hjálmar. „En fyrst í sam­bandi við gang­andi veg­far­endur þá jú, það er aukin áhersla á gang­andi veg­far­endur með þeim árangri að banaslysum gang­andi veg­far­enda hefur fækkað veru­lega síð­ast­liðin tíu til fimmtán ár. Fyrir sirka fimmtán árum fór­ust hér í borg­inni sirka tveir gang­andi veg­far­endur á hverju ári í umferð­inni. Nú er það sirka einn gang­andi veg­far­andi annað hvert ár. Þetta er ótrú­lega mik­ill og mik­il­vægur árangur.“

Segir Vigdísi heiðarlega með áhrif kerfisins

Gísli Marteinn Bald­urs­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, gerði ummæli Vigdísar að umtals­efni á Twitter. „Eins og svo oft áður segir Vigdís Hauks sann­leik­ann. Ljósa­stýr­ing­ar­kerfið sem á að stytta bið­tíma bíla, er aðeins mögu­legt ef við lengjum bið­tíma gang­andi og hjólandi. Þetta hefur alltaf legið fyrir þótt sumir séu ekki jafn heið­ar­legir með það og Vigdís.“

Meiri­hluti borg­ar­stjórnar vís­aði mál­inu frá og benti á að nú þegar væri unnið að teng­ingu allra umferð­ar­ljósa í borg­inni við mið­læga stýr­ingu umferðar. „Með öðrum orðum þá er stýr­ing umferð­ar­ljósa í góðum far­vegi og mik­il­vægt að missa ekki sjónar á því sem mestu máli skiptir: Að horfa til ferða­venja íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og hvernig hægt er að auka hlut­deild strætó, hjólandi eða gang­andi. Nú þegar hefur far­þegum í strætó fjölgað mikið. Hjól­reiða­fólki fer ört fjölg­andi og gang­andi sömu­leiðis. Það að setja millj­arða í ljósa­stýr­ingu er ekki rétt for­gangs­röðun fjár­muna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár