Dætur Hjördísar Svan: „Af hverju var okkur ekki trúað eða tekið mark á gögnum um ofbeldi?“

Þrjár ungar stúlkur sem hafa reynslu af því að móðir þeirra sé fang­elsuð fyrir að halda þeim frá föður segja að frum­varp sjálf­stæð­is­manna um refs­ingu við tálmun bitni verst á börnum. „Mamma okkar gerði allt til þess að forða okkur frá ofbeldi.“

Dætur Hjördísar Svan: „Af hverju var okkur ekki trúað eða tekið mark á gögnum um ofbeldi?“

Þrjár dætur Hjör­dísar Svan Aðal­heið­ar­dóttur, á aldr­inum 12, 13 og 15 ára, hafa sent Alþingi umsögn um frum­varp sjálf­stæð­is­manna um refs­ingar við tálmun.

Í bréf­inu er fjallað um per­sónu­leg mál­efni fjöl­skyld­unnar, en skrif­stofa Alþingis leit­aði stað­fest­ingar á því að stúlk­urnar hefðu sent bréfið og birti það á þing­vefnum með leyfi þeirra.

Dætur Hjör­dísar segja að það sem þær gengu í gegnum þegar móðir þeirra var fang­elsuð fyrir að hafa sótt þær ólög­lega til Dan­merkur og flogið með þær til Íslands sé eitt­hvað sem ekk­ert barn eigi að þurfa að upp­lifa.

Hjördís Svan

„Mamma okkar gerði allt til þess að forða okkur frá ofbeldi. Hún kom með okkur til Íslands eftir að ein af okkur var lögð inn á spít­ala með áverka eftir ofbeldi,“ segir í bréf­inu.

Hjördís Svan fékk fullt for­ræði yfir dætrum sínum í fyrra, en mikla athygli vakti árið 2013 þegar hún flutti dætur sínar ólög­lega til Íslands frá dönskum föður þeirra. Í kjöl­farið var Hjördís dæmd í 18 mán­aða fang­elsi. 

Dætur hennar lýsa þessum tíma í umsögn sinni: „Einn dag fengum við öll sím­tal frá mömmu þar sem hún sagði okkur að ekki hafa áhyggjur af henni en hún gæti ekki verið í miklu sam­bandi við okkur í ein­hvern tíma. Þetta var dag­ur­inn sem mamma var hand­tekin. Við gátum seinna talað við mömmu tvisvar í viku 5 mín­útur í senn. Sem var ekki langur tími þar sem við þurftum fjögur að skipta á milli okkar 5 mínótum en það var klukka í fang­els­inu sem taldi mínót­urnar niður, þegar þær voru liðnar þá var skellt á. Þarna var mamma í 6 mán­uði.“

„Það var ekki hlustað á okkur og aftur
og aftur brást fólk sem átti að hjálpa“

Stúlk­urnar segja að eftir þessa reynslu finn­ist þeim skrítið að lesa að Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hangi uppi í grunn­skólum, þar sem fram komi að öll börn eigi rétt á vernd og taka skuli mark á vilja þeirra. „Það var ekki hlustað á okkur og aftur og aftur brást fólk sem átti að hjálpa. Af hverju var okkur ekki trúað eða tekið mark á gögnum um ofbeldi?“ 

Þær biðla til þing­manna að huga að vel­ferð og öryggi barna. „Þetta frum­varp bitnar verst á börnum. Í umræðum um mömmu á net­inu er hún kölluð tálm­un­ar­móðir, það ætti að fara skoða merk­ing­una á því orði vegna þess að í okkar huga er tálmun = vernd.“

Brynjar Níelssoner fyrsti flutn­ings­maður

Flutn­ings­menn frum­varps­ins um refs­ingu við tálmun eru þau Brynjar Níelsson, Ásmundur Frið­riks­son, Bryndís Har­alds­dóttir, Jón Gunn­ars­son, Njáll Trausti Frið­berts­son, Óli Björn Kárason og Páll Magn­ús­son.

Vilja þing­menn­irnir að tálmun varði „sektum eða fang­elsi allt að fimm árum“ en að slík brot sæti aðeins opin­berri rann­sókn að und­an­geng­inni kæru barna­verndar til lög­reglu. Í frum­varp­inu er vitnað í barna­sátt­mála Sam­ein­uðu Þjóðanna og bent á að börn eiga rétt á að þekkja og umgang­ast báða for­eldra sína. Þetta sé mik­il­vægt fyrir vel­ferð barns­ins. Telja flutn­ings­menn mik­il­vægt að tálmun fái sömu með­höndlun barna­vernd­ar­yf­ir­valda og „ann­ars konar van­ræksla og/eða ofbeldi gegn barni“.

Meðal aðila sem gagn­rýnt hafa frum­varpið er Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands sem telur efni þess and­stætt hags­munum barna og bendir á að oft sé umgengni tálmað vegna áhyggna af ofbeldi hins for­eldr­is­ins, vímu­efna­neyslu eða and­legum veik­indum þess. Telur stofn­unin að það orki tví­mælis „að refsa for­eldri fyrir að upp­fylla lög­bundnar skyldur sínar við börn sín og furðar sig á að í frum­varp­inu skuli ekki gert ráð fyrir und­an­þágum í til­vikum sem þeim sem hér eru rakin“.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár