Þingmennirnir vildu að Bára fengi að minnsta kosti 100 þúsund króna sekt

Lögmenn Miðflokks­manna fóru ítrekað fram á að kona á örorku­bótum yrði látin greiða stjórnvalds­sekt.

Lögmenn þingmanna Miðflokksins kröfðust þess í þremur bréfum til Persónu­verndar að Bára Halldórs­dóttir, kona með gigtar­sjúkdóm sem reiðir sig á örorku­bætur, yrði látin greiða stjórnvalds­sekt. 

Nýjasta bréfið var sent 8. maí síðastliðinn af Rúti Erni Birgis­syni héraðsdóms­lögmanni. Þar er því haldið fram að „öll efni standi til að ákvarða gagnaðila í málinu stjórnvalds­sekt“.

Samkvæmt nýuppkveðnum úrskurði Persónu­verndar braut Bára persónuverndarlög þegar hún hljóð­ritaði samskipti þing­mannanna á veitinga­staðnum Klaustri í fyrra. 

Persónu­vernd lítur þó sérstak­lega til þess í niður­stöðu sinni að ekki var sýnt fram á „samverknað“ og að samræðurnar sem Bára tók upp hafa orðið „tilefni mikillar umræðu í samfélaginu um háttsemi þjóð­kjörinna fulltrúa“. Með hliðsjón af þessu er henni ekki gert að greiða sekt. 

Stundin greindi fyrst frá kröfu Miðflokks­manna um að Bára yrði sektuð þann 17. desember síðastliðinn. Sú krafa var ítrekuð í bréfi Reimars Péturs­sonar lögmanns í byrjun febrúar. „Álagning stjórnvalds­sekta er liður í virkri réttar­vernd fyrir ólögmætum inngripum í friðhelgi einkalífs. Má því ætla að Persónu­vernd sé skylt að leggja þær á nema álagning þeirra teldist „ótvírætt brot“ á rétti til tjáningar­frelsis skv. stjórnar­skrá,“ skrifaði Reimar. 

Í úrskurði Persónu­verndar sem kveðinn var upp í dag er vitnað í nýlegra bréf frá öðrum lögmanni Miðflokks­manna, Rúti Erni Birgis­syni. Þar kemur fram að kvartendur telji sig „þolendur skýlauss brots gegn ákvæðum laga nr. 90/2018“ og öll efni standi til þess að Bára verði sektuð. „Miðað við þá vitneskju sem liggi fyrir um fjárhag gagnaðila þyki þó kvartendum ef til vill óþarft að leggja á hærri sekt en sem nemi sektar­lágmarkinu, þ.e. 100.000 krónum.“ 

Nú liggur fyrir að ekki verður orðið við þessari kröfu. Enn á þó eftir að koma í ljós hvort þingmenn Miðflokksins láti verða af því að höfða einkamál gegn Báru Halldórs­dóttur. Hefur lögmaður þeirra viðrað þann möguleika að krafist verði miskabóta úr hendi hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár