Reynir að horfa á jákvæðu hliðar breytinganna í miðbænum

Ari Gísli Bragason bók­sali stendur vakt­ina á Hverf­is­götu, þótt aðrir kaup­menn hverfi á braut.

Ég var að setja bóka­upp­boð í loftið í sam­starfi við Gallerí Fold, á uppbod.is. Þetta er svona net­upp­boð sem ég hef verið með und­an­farin þrjú til fjögur ár í sam­starfi við þá. 

Það hefur verið gaman að fylgj­ast með breyt­ing­unum hérna í mið­bænum og upp­gang­inum öllum. Maður hefur nú reynt að sjá jákvæðu hlið­arnar á því, þótt það sé búin að vera mikil röskun. Það eru svo sem margir versl­un­ar­menn og kaup­menn að flýja héðan, en maður verður að standa vakt­ina, sko. Er það ekki? Þegar við fluttum hingað hugs­aði ég með mér að það væri frekar að slútta en að flytja þetta, því þetta er svo rosa­lega mikið.

Það er aðal­lega verið að tala um að Hverf­is­gatan sé alveg að verða hipp og kúl. Hún er orðin ágæt en það mætti hressa meira upp á hana. En það eru samt margir kúnnar hérna og mikið af ungu fólki sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár