Ég var að setja bókauppboð í loftið í samstarfi við Gallerí Fold, á uppbod.is. Þetta er svona netuppboð sem ég hef verið með undanfarin þrjú til fjögur ár í samstarfi við þá.
Það hefur verið gaman að fylgjast með breytingunum hérna í miðbænum og uppganginum öllum. Maður hefur nú reynt að sjá jákvæðu hliðarnar á því, þótt það sé búin að vera mikil röskun. Það eru svo sem margir verslunarmenn og kaupmenn að flýja héðan, en maður verður að standa vaktina, sko. Er það ekki? Þegar við fluttum hingað hugsaði ég með mér að það væri frekar að slútta en að flytja þetta, því þetta er svo rosalega mikið.
Það er aðallega verið að tala um að Hverfisgatan sé alveg að verða hipp og kúl. Hún er orðin ágæt en það mætti hressa meira upp á hana. En það eru samt margir kúnnar hérna og mikið af ungu fólki sem …
Athugasemdir