Siluðust áfram í óveðrinu þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn jólin

Ómar Ell­erts­son lýsir eft­ir­minni­leg­ustu jól­unum.

Siluðust áfram í óveðrinu þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn jólin

Ég myndi segja að ég sé mikið jóla­barn, enda eigum við bræður báðir afmæli í des­em­ber. Ég skreyti ekki mikið því heim­ilið mitt er þar sem ferða­taskan er, en ég á lítið jóla­tré úr Ilvu sem ég set upp og er þar með búinn að skreyta. 

Jól æsku minnar voru alltaf eft­ir­minni­leg, en fyrstu jólin með mann­inum mínum eru senni­lega þau eft­ir­minni­leg­ustu. Þetta var árið 2004 og ég var að vinna í Blóma­vali í Sigtúni á aðfanga­dag. Rétt fyrir lokun fór ég að tala við kollega minn sem seldi jóla­tré og spurði hvort hann ætti eftir ein­hverja furu. Hann sýndi mér þau tvö tré sem voru óseld, því þau voru þannig í útliti að það vildi eng­inn kaupa þau. Ég tók annað og tróð í bíl­inn minn, Fiat Multipla. 

Ég og mað­ur­inn minn keyrðum svo í Úthlíð, þar sem hann hafði aðgang að bústað í gegnum vinn­una. Á leið­inni lentum við í alveg band­brjál­uðu veðri. Við hlust­uðum á kirkju­klukk­urnar hringja inn jólin á RÚV ein­hvers staðar við Laug­ar­vatn, en frá Apavatni vorum við heila tvo tíma að keyra að Úthlíð. 

Þegar við komumst loks í sum­ar­bú­staða­byggð­ina fest­umst við í brekku. Í einum öðrum bústað var fólk og fyrir algjöra til­viljun gat það séð okkur. Maður kom út til að hjálpa okkur að losa bíl­inn og ýta. Án hans hjálpar hefðum við varið jól­unum í bílnum.

Þegar við vorum komnir inn var þetta allt mjög rólegt og hóg­vært hjá okkur. Við skreyttum tréð sem eng­inn vildi, borð­uðum osta og eitt­hvert smá kjöt en ekk­ert heitt og end­uðum ævin­týrið í heitum potti.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ég ogmaðurinn minn!egogkonanmín!það var aldrei aðegfekkaðkennaaþviaðveralesbíaherá árumáður þaðvar svoleiðisfyrirlitningin íminngarðvegnaþesssemlakaffólkinuþegarminstvarámigaðþaðvaralveg yfirgengilegtogþað ánsannanavarðandiþaðsvovaregkilluðniðursetuklepparakellingin oglessan í hvammiauk fleirrimiðurfallegra uppnefna svo sagði fólk að ég svífi meðhiminskaautumí vitleysunni en bíðum við!hver á svo hvamsvíkina í dag? Er þaðekkifyrrverandi gjaldþrota forstjóriflugfelagsinswow semereigandinn idag wow momhaaa?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár