Þegar markaðir veðja gegn mannkyninu

Rekja má meira en helm­ing af útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna iðn­aðar síð­ustu þrjá ára­tugi til 25 stærstu kola-, olíu- og gas­fyr­ir­tækja heims. Fyr­ir­tækin ham­ast gegn aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum – enda eru eignir og hluta­bréf fyr­ir­tækj­anna verð­metin út frá mark­miðum um að brenna marg­falt meira jarð­efna­elds­neyti heldur en vist­kerfi jarðar þolir.

Rekja má meira en helm­ing af útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna iðn­aðar síð­ustu þrjá ára­tugi til 25 stærstu kola-, olíu- og gas­fyr­ir­tækja heims. Fimm þeirra hafa varið sam­tals um 600 millj­ónum banda­ríkja­dala, eða sem jafn­gildir 74 millj­örðum íslenskra króna, í að grafa undan aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum frá því að Par­ís­ar­sátt­mál­inn var sam­þykktur árið 2015.

Fjallað er með ítar­legum hætti um ábyrgð ein­stakra stór­fyr­ir­tækja á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í úttekt sem sam­tökin Carbon Disclosure Project gáfu út árið 2017 í sam­starfi við Climate Accountability Institute. Meðal helstu meng­un­ar­valda heims eru kín­versk, rúss­nesk og sádi-arab­ísk rík­is­fyr­ir­tæki og vest­ræn stór­fyr­ir­tæki á borð við Exxon­Mobil, Royal Dutch Shell, Chevron, BP og Total.

Fyrr á þessu ári birti svo banda­ríska hug­veitan InfluenceMap skýrslu um lobbý­isma þess­ara fimm einka­fyr­ir­tækja. Þar er rakið hve gríð­ar­legu púðri þau verja í að hafa áhrif á umræð­una um lofts­lags­mál og sveigja hana að hags­munum sínum. Fyr­ir­tækin ganga hart fram gagn­vart stjórn­mála­mönnum, þjóð­þingum og alþjóða­stofn­unum, meðal ann­ars gegnum þrýsti­sam­tök á borð við American Petr­o­leum Institute og Fuel­sE­urope, og beita sér gegn umhverf­is­reglu­gerðum, grænum sköttum, raf­væð­ingu sam­göngu­kerfa og öðrum stjórn­valds­að­gerðum á sviði lofts­lags­mála. Fram kemur í skýrslu InfluenceMap að á þessu ári verði aðeins þremur pró­sentum af nýjum fjár­fest­ingum Exxon­Mobil, Shell, Chevron, BP og Total varið til lág­kolefn­istengdrar starf­semi, þvert á fag­ur­gala olíu­fyr­ir­tækj­anna um að þau séu full­fær um að leysa lofts­lags­vand­ann upp á eigin spýtur og rík­is­af­skipti séu óþörf.

Gamblað með fram­tíð mann­kynsMörgum varð brugðið þegar Donald Trump gerði fram­kvæmda­stjóra Exxon­Mobil, Rex Tiller­son, að utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna árið 2017. Hér má sjá Tiller­son ásamt Wang Yi, utan­rík­is­ráð­herra Kína. Kína er það ríki sem dælir mestum gróð­ur­húsa­loft­teg­undum út í and­rúms­loftið en Banda­ríkin koma þar á eftir – og þar er Exxon­Mobil það fyr­ir­tæki sem mengar mest.

Kolefnisbirgðirnar langt umfram „mengunarsvigrúm“ jarðar

Til að ná mark­miðum Par­ís­ar­sátt­mál­ans um að halda hlýnun jarðar vel undir tveimur gráðum miðað við með­al­hita­stigið fyrir iðn­bylt­ingu getur upp­safn­aður útblástur koltví­sýr­ings af manna völdum ekki orðið meiri en 1.170 gígatonn næstu þrjá ára­tugi. Svo mikil hlýnun hefði alvar­legar afleið­ingar, myndi valda tals­verðri hækkun sjáv­ar­máls, flóðum, þurrkum, vatns­skorti, veð­ur­öfgum og upp­skeru­bresti víða um heim og bitna verst á þjóðum sem búa nú þegar við bág kjör. Afleið­ing­arnar af 1,5°C hlýnun yrðu skömminni skárri, en til þess þyrfti að halda útblæstri koltví­sýr­ings undir 420 gígatonnum næstu ára­tug­ina að mati lofts­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Þær skráðu kolefn­is­birgðir heims (e. carbon res­er­ves) sem ríki og fyr­ir­tæki hafa yfir að ráða myndu hins vegar valda um 2800 gígatonna koltví­sýr­ingsút­blæstri – miklu meiri mengun en vís­inda­menn telja óhætt að leysa út í and­rúms­loftið án þess að afleið­ing­arnar fyrir vist­kerfi jarðar og sam­fé­lög manna verði ham­fara­kenndar. 65 pró­sent af þessum 2.800 gígatonnum eru kol, 22 pró­sent eru olía og 13 pró­sent gas. 745 gígatonn til­heyra þeim 200 stærstu kola-, olíu- og gas­fyr­ir­tækj­unum heims sem skráð eru á markað. Hluta­bréf fyr­ir­tækj­anna eru verð­metin út frá því að hægt sé að vinna þetta elds­neyti, selja það og brenna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár