Reykja­vík Stór hluti útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda kemur frá sam­göngum. Mynd: Shutterstock / Jóhann Helgason

Aðgerðaáætlunin veik og stjórnsýslan með

Umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­sam­tök segja aðgerða­á­ætlun stjórn­valda ekki ganga nógu langt til að ná mark­miðum sínum um kolefn­is­laust Ísland 2040. Þá segja sam­tökin lofts­lags­ráð ekki veita stjórn­völdum nægt aðhald og að Græn­vangur hugi einna fremst að mark­aðs­málum fremur en sam­drætti í losun.

Land­vernd og Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands gagn­rýna upp­færða aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum í umsögnum sínum á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Gagn­rýnin felst einna helst í veikri stjórn­sýslu, vöntun á hærra kolefn­is­gjaldi og skorti á lög­bind­ingu á mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum. Einnig gagn­rýna sam­tökin lofts­lags­ráð fyrir að sýna stjórn­völdum ekki nægi­legt aðhald og Grænvang, sam­starfs­vett­vang atvinnu­lífs­ins og stjórn­valda í lofts­lags­málum, fyrir að huga að mark­aðs­setn­ingu grænna lausna frekar en að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér­lendis. 

Skýrsla Capacent um stjórn­sýslu lofts­lags­mála leiðir í ljós að ekki er hægt að tala um eig­in­lega stjórn­sýslu í lofts­lags­málum hér á landi og að lofts­lags­ráð þurfi að vera sjálf­stætt frá hags­muna­að­ilum og stjórn­völdum. Skýrslan kemur einnig inn á að hlut­verk Græn­vangs sé fyrst og fremst að mark­aðs­setja sig erlendis. 

Samtök atvinnu­lífs­ins styðja hins vegar aðgerða­á­ætl­un­ina í sinni umsögn en gagn­rýna að ekki sé tekið mið af starfi Græn­vangs við mótun hennar. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, leggur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár