Fjármálaráð: Stjórnvöld komin í ógöngur og ríkisstjórnin lent í „spennitreyju eigin stefnu“

Fjár­fest­ing­ar­á­form rík­is­stjórn­ar­innar og fyr­ir­hug­aðar tekju­skatts­breyt­ingar eru ákjós­an­legri nú en áður leit út fyrir í ljósi breyttra efna­hags­að­stæðna að mati fjár­mála­ráðs.

Fjármálaráð: Stjórnvöld komin í ógöngur og ríkisstjórnin lent í „spennitreyju eigin stefnu“

Fjár­mála­ráð telur að stjórn­völd hafi sýnt grunn­gildum laga um opin­ber fjár­mál „ákveðið tóm­læti“ þegar unnið var að fjár­mála­á­ætlun 2020-2024. Afkomu­mark­mið gild­andi fjár­mála­stefnu fyrir opin­bera aðila í heild muni ekki nást á áætl­un­ar­tím­anum og stjórn­völd hafi lent í „spenni­treyju eigin stefnu“. 

Á manna­máli þýðir þetta að ef rík­is­stjórnin hyggst upp­fylla afkomu­mark­mið sín á gild­is­tím­anum gæti þurft að grípa til aðhalds­ráð­stafa jafn­vel þótt aðstæður í efna­hags­líf­inu kalli frekar á örvandi aðgerðir.

Fjár­mála­ráð skil­aði álits­gerð sinni um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í gær. „Að öllu virtu virð­ast stjórnvöld hafa lent í spenni­treyju eigin stefnu hvað varðar afkomu­mark­mið. Stjórnvöld eru komin í þessar ógöngur vegna verk­lags og fram­vindu í stefnumörkun­inni. Fjár­mála­ráð hefur ítrekað varað við að slík staða gæti komið upp,“ segir meðal ann­ars í álit­inu.

Þá bendir fjár­mála­ráð á mót­sagna­kenndan þátt í lögum um opin­ber fjár­mál: „Lögin um opin­ber fjármál heim­ila ekki að stefnumið fjármálastefnu um afkomu og skuldir séu brotin. Viðbrögð við því eru skýr. Lögin heim­ila ekki end­ur­skoðun stefn­unnar nema grund­vall­ar­for­sendur bresti. Hér ganga hin geir­negldu stefnumið gegn grunn­gild­unum. Lögin taka ekki á því.“

Álits­gerðin er 68 blað­síður að lengd og þar er vikið að ýmsu. Til dæmis er bent á að fjár­fest­ing­ar­á­form rík­is­stjórn­ar­innar og fyr­ir­hug­aðar tekju­skatts­breyt­ingar séu ákjós­an­legri nú en áður leit út fyrir í ljósi breyttra efna­hags­að­stæðna. Áður hafði fjár­mála­ráð varað við skatta­lækk­unum

Þá segir ráðið að þær aðhalds­ráð­staf­anir sem rík­is­stjórnin hefur boðað hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum, ef launa­hækk­anir hjá hinu opin­bera fara fram úr mark­miði um 0,5 pró­senta hækkun umfram verð­lag, kunni að auka atvinnu­leysi og hafa þannig nei­kvæð áhrif á afkomu hins opin­bera. Bent er á að „í áætl­un­inni er enga umfjöllun að finna um hvernig þessi for­senda [0,5 pró­senta þakið, inn­skot blaða­manns] er til komin eða skýrt hvernig hún verður útfærð“. 

Fram kemur að vegna stærðar ferða­þjónust­unnar og fyr­ir­ferðar í íslensku hag­kerfi myndi samdráttur í grein­inni hafa veru­leg áhrif á hagvöxt og atvinnu­leysi. „Þá myndi minni vöxtur í grein­inni leiða til samdráttar í atvinnu­vega­fjárfest­ingu sem og í fjárfest­ing­aráformum fyr­ir­tækja í eigu opin­berra aðila, gjald­þrotum fyr­ir­tækja í grein­inni og hugs­an­legs útlánataps banka. Þá geta einnig orðið töluverð stað­bundin áhrif í ýmsum sveit­arfélögum vegna minni útsvars­tekna.“

Í ljósi þess að blikur eru á lofti í ferða­þjón­ustu og dregið hefur úr aukn­ingu ferða­manna til lands­ins að und­an­förnu gerir fjár­mála­ráð athuga­semd við að enn sé gert ráð fyrir auk­inni gjald­töku á ferða­menn á áætl­un­ar­tím­anum. „Í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríkir mætti rökstyðja að í var­færn­is­skyni væri ekki reiknað með slíkum tekjum í fram­lagðri áætlun.“ 

Hér má lesa umsögn­ina í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár