Sovétríkin seljast

Rísandi stjörnur á bóka­messu í London. Konur beggja vegna járn­tjalds­ins fjalla um kalda stríðið.

Lara Prescott
Lara Prescott Nýstirni í bók­mennta­heim­inum sem seldi útgáfu­rétt fyrstu bókar sinnar á tvær millj­ónir doll­ara. Mynd: Matthew Prescott

Í ár eru 30 ár liðin síðan Berlín­ar­múr­inn féll og tveim árum síðar hurfu sjálf Sov­ét­ríkin af heimskort­inu. Eins óhugs­andi og sá við­burður virt­ist á sínum tíma er það fyrir mörgum í dag jafn und­ar­legt að eitt sinn hafi víg­vædd landa­mæri legið í gegnum hjarta Evrópu. Það er því kannski ekki að undra að mik­ill áhugi sé fyrir Sov­ét­ríkj­unum þessa dag­ana, sem fyrir nýrri kyn­slóð hljóta að hljóma eins og eitt­hvað úr vís­inda­skáld­sögu. Meðal þeirra sem hafa vakið athygli fyrir skáld­sögur um þessa merki­legu sögu og við­staddar voru á nýlok­inni bóka­messu í London eru tvær konur, önnur banda­rísk, hin rúss­nesk. 

Lara Prescott nam rit­list við háskól­ann í Texas og er í óða önn að leggja bók­mennta­heim­inn að fótum sér. Fyrsta bók hennar kemur út í haust en tvær millj­ónir doll­ara feng­ust fyrir útgáfu­rétt­inn og hefur bókin þegar verið seld til 28 landa. Þá er kvik­mynd í vinnslu hjá fram­leið­endum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár