Flóttamenn sváfu á Austurvelli: „Það var ískalt en við gátum þetta“

Mótmæli standa enn yfir á Aust­ur­velli. Flótta­menn gistu á Aust­ur­velli í níst­ings­kulda og snjó.

Flóttamenn mótmæla á Austurvelli

Mótmæli hæl­is­leit­enda og flótta­manna stóðu enn yfir á Aust­ur­velli í dag og hafa mót­mæl­endur nú reist stórt tjald og klæðst svörtum rusla­pokum til að verj­ast veðr­átt­unni. Mót­mæl­endur segja kröfur sínar skýrar og að þeir hætti ekki að mót­mæla nema kröfum þeirra verði mætt.

Nóttin var níst­ingsköld að sögn Milads, flótta­manns frá Íran sem senda á aftur til Grikk­lands þar sem hann hlaut alþjóð­lega vernd.

„Það var ískalt en við gátum þetta því við vorum búin að taka ákvörðun. Við munum vera hér þangað til kröfum okkar er mætt. Við förum ekki héðan fyrr en við höfum afrekað eitt­hvað. Okkur er alvara,“ segir Milad.

Milad segir mót­mæl­end­urna ætla eyða næstu dögum á Aust­ur­velli ger­ist þess þörf.

Amal frá Afghanistan segir betra að vera í snjónum á Aust­ur­velli en í búsetu­úr­ræði hæl­is­leit­enda, Ásbrú. „Ásbrú er eins og fang­elsi. Það er betra að vera hér en á Ásbrú,“ segir hann.

Flótta­menn hlýja sér í kuld­anum

Mótmælt síðan á mánudag

Mótmælin hófust á mánu­dag. Þau byrj­uðu með frið­sömu móti en þegar leið á dag­inn beittu lög­reglu­menn piparúða og hand­tóku tvo mót­mæl­endur. 

Í gær var boðað til mót­mæla að nýju á Aust­ur­velli. Fólk safn­að­ist saman til þess að krefj­ast afsagnar Sigríðar Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra vegna nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Sigríður kynnt nýlega drög að frum­varpi til breyt­inga á útlend­inga­lögum sem myndu fela í sér herta útlend­inga­stefnu og þrengja að rétt­indum hæl­is­leit­anda. Að loknum mót­mælum tengdum Lands­rétti héldu mót­mæli hæl­is­leit­anda áfram.

Umgjörðin á lögreglustöðinni ofbeldi

Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir, önnur þeirra sem var hand­tekin á mánu­dag, sagð­ist vera komin til að mót­mæla fram­göngu lög­reglu á fyrri mót­mælum og til að sýna sam­stöðu með flótta­fólki. Kröfur þeirra eru fimm tals­ins „Ekki fleiri brott­vís­anir, ekki meiri Dyflin, rétt­ur­inn til vinnu, jafn aðgangur að heil­brigð­is­kerfi og lokun Ásbrú,“ segir Elínborg.

Elínborg var dregin út af mót­mæl­unum í gær af þremur lög­reglu­mönnum því hún sat á pappa­spjaldi sem lög­reglan kvaðst telja að mót­mæl­endur hygð­ust kveikja í. Elínborg var hand­tekin í kjöl­farið. „Áður en ég veit af er búið að hand­taka mig og verið að taka mig í burtu. Svo sé ég að það er verið að piparúða fólk í kringum mig,“ segir Elínborg.

Mar­blettur eftir fram­gang lög­reglu

„Öll umgjörðin á lög­reglu­stöð­inni var mun meira ofbeldi en hand­takan sjálf“

„Mér var sagt að ég mætti ekki hringja í lög­fræð­ing­inn minn. Þeir sögð­ust ætla gera það. Þeir spurðu mig ekki hvað hann hét fyrr en tvemur til þremur tímum seinna,“ segir Elínborg. Lög­reglan til­kynnti Elín­borgu ekki u að hún mætti hringja í aðstand­anda. Móður Elín­borgar var til­kynnt þegar hún kom niður á lög­reglu­stöð að Elínborg vildi ekki tala við hana fyrst hún væri ekki búin að hringja í hana. „Öll umgjörðin á lög­reglu­stöð­inni var mun meira ofbeldi en hand­takan sjálf, upp­lifði ég,“ segir Elínborg.  

Finnur fyrir örygggi á Íslandi

Shahnaz Safari, ein­stæð móðir með tvö börn, sem senda á úr landi, mætti á mót­mælin. „Ég bið íslensk stjórn­völd um að vísa mér ekki úr landi. Ef ég hefði ekki átt í vand­ræðum þaðan sem ég kom, hefði ég aldrei komið hingað. Ég er orðin kvefuð og börnin mín líka en við erum hér að mót­mæla,“ segir Shahnaz.

„Ég bið íslensk stjórn­völd um að vísa mér ekki úr landi.“

Shahnaz segir Ísland fyrsta landið sem hún finni fyrir öryggi í. „ Þegar ég sendi börnin mín í skól­ann á Íslandi veit ég að þau koma örugg heim, þannig er það ekki í Grikk­landi,“ segir hún.

Shahnaz Safari á mót­mælum
Flótta­maður að hlýja sér
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár