Varaþingmaður VG styður vantraust á dómsmálaráðherra

Gísli Garð­ars­son situr á Alþingi fyrir Vinstri græn þrátt fyrir hafa sagt sig úr flokknum vegna and­stöðu við rík­is­stjórn­ina og emb­ætt­is­færslur Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra.

Varaþingmaður VG styður vantraust á dómsmálaráðherra

Gísli Garð­ars­son, vara­þing­maður Vinstri grænna, mun styðja van­traust­s­til­lögu á Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra ef til hennar kemur. Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem kveð­inn var upp í morgun var íslenska ríkið dæmt brot­legt vegna vinnu­bragða Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði fjóra dóm­ara við Lands­rétt í trássi við mat hæfn­is­nefndar sum­arið 2017.

Gísli tók sæti í gær fyrir Andrés Inga Jónsson en er í þeirri óvenju­legu stöðu að sitja á Alþingi fyrir flokk sem hann hefur sagt sig úr. „Ég sagði mig úr Vinstri­hreyf­ing­unni  - grænu fram­boði við rík­is­stjórn­ar­myndun vegna afstöðu minnar til rík­is­stjórn­ar­innar og þar með talið dóms­mála­ráð­herra vegna skip­un­ar­innar í Lands­rétt og fjár­mála­ráð­herra eftir Panama­skjölin,“ segir Gísli í sam­tali við Stundina. „Sú afstaða hefur ekki breyst.“

Andrés Ingi og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir voru einu þing­menn Vinstri grænna sem kusu með van­traust­s­til­lögu sem borin var upp á dóms­mála­ráð­herra í mars í fyrra. Höfðu þá dóm­stólar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að emb­ætt­is­færslur ráð­herra í Lands­rétt­ar­mál­inu hefðu falið í sér brot gegn rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga. Níu þing­menn flokks­ins vörðu hana van­trausti.

Gísli mun sitja fundi þing­flokks Vinstri grænna. „Ég hef ekk­ert heyrt í hinum þing­mönn­unum og mundi vilja heyra hvernig hljóðið er í þeim,“ segir hann. „Þetta er búin að vera fjörugri vika en ég bjóst við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár