Misheppnuð samfélagsgreining og bangsalegar löggur

Vandi ser­í­unnar er að þótt hún reyni að vera íslensk­ari en fjöllin er hún afskap­lega útlensk.

Misheppnuð samfélagsgreining og bangsalegar löggur

Ófærð er alvöru sjón­varps­við­burður. Það hafa tölu­vert betri sjón­varps­þættir verið fram­leiddir á Íslandi und­an­farin ár, en engin sem nær sömu helj­ar­tökum á þjóð­arsál­inni. Þegar Ófærð brestur á ferð­umst við öll aftur til 1990 og horfum sam­tímis á línu­legt sjón­varp, ljóð­skáld opnar Ófærð­ar­stofu á Facebook og fær hátt í þús­und komment í kringum hvern þátt og það eru skrif­aðar fréttir strax eftir hvern þátt um við­brögðin á Twitter.

Kannski er það einmitt pass­lega klaufa­legt og sveita­legt hand­ritið sem veldur þessu, ef allir sætu opin­mynntir yfir snilld­inni myndi eng­inn hafa tíma til að tvíta og kommenta í beinni. Og það er eitt­hvað kröft­ugt lím í þátt­unum – sjálfur var ég nærri búinn að gef­ast upp eftir fyrsta þátt en hélt samt áfram.

Snargalið plott

Enda eru stærstu veik­leikar ser­í­unnar mest áber­andi í byrjun. Þetta snar­galna plott um þjóð­ern­is­sinn­aða afdala­bændur sem allir eru virkj­ana­and­stæð­ingar. Þetta bar með sér skelfi­legan mis­lestur hand­rits­höf­unda á íslensku sam­fé­lagi síð­ustu ára­tug­ina, því þótt vafa­lítið megi ein­hvers staðar finna þessa týpu þá er almenna reglan sú að öfga­þjóð­ern­is­sinnar, virkj­ana­and­stæð­ingar og afdala­bændur eru þjóð­fé­lags­hópar sem skar­ast afskap­lega lítið í íslensku sam­fé­lagi.

Út frá þessu spretta svo leti­leg sam­töl eins og þetta:

„Þeir spretta út upp um allt, þessi hægriöfgapóli­tík, meira að segja hérna í sveit­inni.“

„Ég myndi halda að þetta væri full­kom­inn jarð­vegur fyrir hana.“

Þrátt fyrir að ekk­ert bendi til þess að lands­byggðin íslenska sé eitt­hvað verri við útlend­inga en Reykja­vík, hvað þá að umhverf­is­bar­átta sé gróðr­ar­stía ras­isma. Einn veru­leikafirrtur virkj­anasinni gæti hins vegar alveg gengið – og það er vísir að einum slíkum í Katli, einni for­vitni­leg­ustu per­sónu þátt­anna sem Steinn Ármann leikur af stakri snilld, sem afdala­haus sós­aður í Íslend­inga­sögum sem verður hálf­gerð völva sem berst gegn auð­vald­inu.

Þýtt yfir á íslensku

Vandi ser­í­unnar er líka kannski að þótt hún reyni að vera íslensk­ari en fjöllin er hún afskap­lega útlensk. Þá á ég ekki við stað­hátta-usl­ann sem gerir flesta kunn­uga stað­háttum grá­hærðra – sjálfur átti ég frekar auð­velt með að sam­þykkja Siglu­fjörð og Seyð­is­fjörð sem sama bæj­ar­fé­lagið í síð­ustu seríu, kannski út af því það var hvort eð er allt á kafi í snjó. Siglu­fjörður með dassi af Akureyri gengur hins vegar verr upp, maður skynjar oft illa hvort þetta er þús­und manna bæj­ar­fé­lag eða 20 þús­und manna.

Aðal­vand­inn er þó þýð­ing­ar­brag­ur­inn á hand­rit­inu, enda helm­ingur hand­rits­höf­unda erlendir og álíka margir þýð­endur og hand­rits­höf­undar í kredit­list­anum. Stærri vandi eru svo allir lausu end­arnir og per­són­urnar sem hrein­lega gleym­ast. Af áður­nefndum Katli und­an­skildum er eins og allir ras­ist­arnir í fyrri hluta ser­í­unnar gleym­ist hrein­lega í þeim síð­ari. Svo dúkka stöku sinnum upp karakt­erar sem hafa lít­inn annan til­gang en að þjóna sög­unni, eins og kjána­lega gamla nornin sem fer að röfla um bölvun – þótt kannski hefði mér fund­ist hún skemmti­lega fríkuð ef þetta væri David Lynch-sería ein­hvers staðar í mið­ríkjum Banda­ríkj­anna.

Eins var bölvað klúður hvernig alls kyns þræðir sem búið var að byggja upp, eins og ras­ist­arnir og skugga­legar aðgerðir í tengslum við virkj­un­ina, útlend­inga­andúðin og homma­fóbían, skiptu svo aldrei neinu máli fyrir sög­una þegar allt kom til alls. Það er ódýrt hjá hand­rits­höf­undum að vera með ótal þræði sem eru ein­göngu til þess að afvega­leiða áhorf­and­ann, ekki til þess að und­ir­byggja stóru sög­una sem verið er að segja. Hérna hefði ein­fald­lega þurft að flétta alla þræð­ina betur saman, sýna hvernig gjörðir bæði góðra manna og vondra hefðu þró­ast í þann eitr­aða kok­teil sem á end­anum olli þess­ari glæpa­öldu.

Forn-Grikkir töl­uðu um Guð í vél­inni þegar áður óþekkt hetja kom og bjarg­aði mál­unum í lokin, slíkt þótti svik við sög­una, gerir að verkum að allt sem á undan fór verður mark­leysa. Hér fáum við í stað­inn djöf­ul­inn í vél­inni, sem er til staðar bara til að bjarga hand­rits­höf­und­unum í lokin. Auka­per­sóna sem var vissu­lega alltaf til staðar en engu púðri hafði verið eytt í per­sónu­sköpun hennar, fyrr en hún þró­ast skyndi­lega í aðal­skúrk sög­unnar. Og af því þetta er íslenskur sjón­varps­þáttur er ástæðan vita­skuld sifja­spell, sem verður ódýr­ara frá­sagn­ar­bragð í hvert skipti. En hefði samt alveg sloppið fyrir horn ef það hefði á ein­hvern hátt verið fléttað sem tákn­mynd fyrir umhverf­is­spjöllin eða ras­is­mann eða eitt­hvað annað, en þetta eru bara glefsur úr fjar­lægri for­tíð.

Of miklu troðið inn

Hér er líka alltof miklu troðið inn án þess að per­sónur og stakar sögur fái and­rými, jafn­vel leyfa stöku karakt­erum að eiga sviðið í heilan þátt. Heill þáttur af Ásgeiri eða hjóna­bandsörð­ug­leikum Hinriku og Bárðar hefði getað orðið frá­bært efni. Enda voru aðal­per­són­urnar vel teikn­aðar upp í fyrstu þátta­röð­inni og Ásgeir og Hinrika þróuð skemmti­lega áfram – en aðal­per­sónan Andri stendur dálítið í stað, ef undan er skilið for­vitni­legt bjarn­ar­blæti Hinriku, sem lýsir honum ýmist sem skóg­ar­birni í til­vist­ar­kreppu eða birni á vegg. Kven­per­són­urnar voru raunar margar ansi lit­lausar í fyrri ser­í­unni en það er eins og þessi eini kven­leik­stjóri í teym­inu hafi lagað það tölu­vert og það er jafn­vel frekar að stöku karl­per­sónur séu und­ir­skrif­aðar í þetta skiptið.

Stærsti vandi þátt­anna er samt hvernig það er eins og þátta­gerð­ar­fólki finn­ist það þurfa að taka á póli­tískum hita­málum, án þess þó að fara almenni­lega inn í þau. Hvað þetta varðar má hrein­lega segja að Stella Blóm­kvist hafi gert þetta miklu betur og fléttað miklu meira sann­fær­andi póli­tískt plott. En þó er kannski einn póli­tískur þráður fal­inn í Ófærð sem gengur ágæt­lega upp. Þetta er nefni­lega fyr­ir­taks dæmi­saga um af hverju við þurfum að stytta vinnu­vik­una. Hjóna­band Hinriku er að leys­ast upp af því hún er alltaf í vinn­unni (og þjóð­fé­lagið á erfitt með barn­lausa heima­vinn­andi hús­feður) og hjóna­band Andra er löngu molnað af sömu ástæðum og nú virð­ist hann vera að missa dóttur sína út af allri eft­ir­vinn­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár