Borgarritari líkir borgarfulltrúum við „tudda á skólalóð“ og segir nóg komið

Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari fer hörðum orðum um fram­komu ótil­greindra borg­ar­full­trúa í garð starfs­fólks borg­ar­innar. Segir hegð­un­ina til skammar, til tjóns fyrir borg­ina og að um tudda­skap sé að ræða.

Borgarritari líkir borgarfulltrúum við „tudda á skólalóð“ og segir nóg komið
Hefur fengið nóg Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari hefur fengið nóg af árásum sumra borg­ar­full­trúa á starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Reykjavíkurborg

Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari birti í dag afar harð­ort bréf á Facebook-síðu Reykja­vík­ur­borgar sem gríð­ar­legur fjöldi fólks hefur aðgang að. Þar gagn­rýnir hann fram­göngu „fáeinna“ borg­ar­full­trúa und­an­farna mán­uði og segir þá hafa „ítrekað vænt starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar um óheið­ar­leika og vegið með ýmsum öðrum hætti að starfs­heiðri þeirra.“ Hvetur Stefán starfs­fólk borg­ar­innar til að standa saman því það sé „ekki í boði að bregð­ast ekki við þegar slíkar ómak­legar og óheið­ar­legar árásir eru gerðar á starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar.“

Stefán nafn­greinir engan borg­ar­full­trúa í bréfi sínu en segir að um fáeina borg­ar­full­trúa sé að ræða. Augljóst má þó vera að í bréf­inu er hann að tala um borg­ar­full­trúa minni­hlut­ans en það má meðal ann­ars lesa úr eft­ir­far­andi setn­ingu: „Til­raunir ann­arra borg­ar­full­trúa, einkum innan meiri­hlut­ans en einnig úr röðum heið­ar­legs stjórn­mála­fólks innan minni­hlut­ans, til að reyna að hemja þessa skað­legu, slæmu og full­kom­lega ómak­legu hegðun hinna fáu, hafa tak­mark­aðan árangur borið.“

Brýnir borgarstarfsmenn til samstöðu

Ætla má að með orðum sínum sé Stefán meðal ann­ars að vísa til Mörtu Guð­jóns­dóttur, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en deilur stóðu síð­asta sumar milli Mörtu og Helgu Bjarkar Laxdal, skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórnar eftir að Marta sak­aði starfs­fólk borg­ar­innar um trún­að­ar­brest.

Þá kvart­aði Helga Björg Ragn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu borg­ar­stjóra, í bréfi til for­sætis­nefndar í ágúst síð­ast­liðnum, undan því að borg­ar­full­trúar hefðu farið fram með rang­færslur í umræðum á sam­fé­lags­miðlum um dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem felldi úr gildi áminn­ingu sem Helga Björg veitti und­ir­manni sínum. Ekki er ólík­legt að þar hafi Helga Björg, sem þó nefndi engin nöfn í bréfi sínu, verið að vísa til Vigdísar Hauks­dóttur, borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins. Stefán Eiríks­son sendi þannig Vigdísi tölvu­póst 10. ágúst vegna færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni vegna dóms­ins. Þar gagn­rýndi Stefán Vigdísi harð­lega fyrir að hafa farið fram með rang­færslur og brotið trúnað.

„Þessi hegðun, atferli og fram­koma þess­ara fáeinu borg­ar­full­trúa er til skammar og um leið til mik­ils tjóns fyrir Reykja­vík­ur­borg, starfs­fólk hennar og íbúa alla“

Líklegt má telja að Stefán sé að vísa til þess­ara atvika í nýjasta bréfi sínu en auk þessa hefur verið mjög grunnt á hinu góða innan borg­ar­stjórnar, milli meiri­hluta og minni­hluta, nán­ast allt kjör­tíma­bilið. Nú virð­ist hafa Stefán hafa fengið nóg og brýnir borg­ar­starfs­menn til að taka sér stöðu gegn „tudd­anum á skóla­lóð­inni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár