Fréttablaðið birtir aftur viðtal við son eigandans

Hluta­fjár­eign Sigurðar Pálma Sig­ur­björns­sonar í Sports Direct var fjár­mögnuð í gegnum Panama­fé­lag móður hans. „Ég er eng­inn fjár­festir,“ segir hann í við­tali í Frétta­blað­inu í dag þar sem einnig birt­ist heil­síðu­aug­lýs­ing fyrir nýja verslun hans.

Fréttablaðið birtir aftur viðtal við son eigandans

Frétta­blaðið birtir í dag, öðru sinni á nokk­urra daga tíma­bili, við­tal við Sigurð Pálma Sig­ur­björns­son þar sem hann kynnir nýja verslun sína, Super1 við Hall­veig­ar­stíg. Í sama blaði er einnig að finna heil­síðu­aug­lýs­ingu fyrir versl­un­ina.

Sigurður Pálmi er sonur Ingi­bjargar Pálma­dóttur, útgef­anda Frétta­blaðs­ins. Áður rak hann íþrótta­vöru­versl­un­ina Sports Direct í Kópavogi en til að fjár­magna hluta­fjár­eign sína í fyr­ir­tæk­inu fékk hann rúm­lega 20 millj­óna króna lán frá Guru Invest, skatta­skjóls­fé­lagi móður sinnar. Stundin fjall­aði um málið árið 2016. 

Und­an­farnar vikur hefur Frétta­blaðið birt við­töl við útgef­anda blaðs­ins, eig­in­mann hennar, son hennar og stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tækis hennar. 

Á blað­síðu tvö í síð­asta helg­ar­blaði birt­ist frétt um nýja verslun Sigurðar Pálma við Hall­veig­ar­stíg. „Það er bara gríð­ar­leg stemn­ing í hópnum og það má segja að við höfum fram­kvæmt krafta­verk,“ var haft eftir honum. „Sigurður Pálmi hyggst verða eins konar kaup­maður á horn­inu,“ sagði í frétt­inni. 

Fréttin sem birt­ist í dag, nú í fylgi­rit­inu Mark­aðnum, bætir efn­is­lega litlu við hina fyrri. Um er að ræða frek­ari kynn­ingu á Sigurði Pálma og versl­un­ar­rekstri hans auk þess sem hann fær tæki­færi til að gagn­rýna keppi­nauta sína. „Að mínu mati glíma margar keðjur við stefnu­leysi og vita ekk­ert hvert þær eru að fara. Margar af stóru keðj­unum eru að missa teng­ing­una við við­skipta­vini,“ segir hann. 

„Ég hef gaman að því að vasast í rekstri“

Þá er haft eftir Sigurði Pálma að hann sé eng­inn fjár­festir. „Það er ekki mitt. Kannski verður maður það ein­hvern tím­ann. En ég hef gaman að því að vasast í rekstri. Það er fátt skemmti­legra en að fara í búðir skoða og pæla. Á kvöldin er ég yfir­leitt á net­inu að reyna að fá hug­myndir um hvað hægt sé að gera betur og reyna að skilja betur þarfir við­skipta­vina.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár