Sonur Ingibjargar kynnir nýja verslun í Fréttablaðinu

Und­an­farnar vikur hefur Frétta­blaðið birt við­töl við útgef­anda blaðs­ins, eig­in­mann hennar, son hennar og stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tækis hennar.

Sonur Ingibjargar kynnir nýja verslun í Fréttablaðinu

Frétta­blaðið birti við­tal við Sigurð Pálma Sig­ur­björns­son, son Ingi­bjargar Pálma­dóttur útgef­anda blaðs­ins, á áber­andi stað í blað­inu um helg­ina. „Það er bara gríð­ar­leg stemn­ing í hópnum og það má segja að við höfum fram­kvæmt krafta­verk,“ er haft eftir Sigurði vegna opn­unar versl­unar hans, Super1, við Hall­veig­ar­stíg. „Sigurður Pálmi hyggst verða eins konar kaup­maður á horn­inu,“ segir í frétt­inni sem birt­ist á blað­síðu tvö.

Und­an­farnar vikur hafa bæði Ingi­björg Pálma­dóttir, eig­andi Torgs sem gefur út Frétta­blaðið, og eig­in­maður hennar, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, verið til við­tals í Frétta­blað­inu. Ingi­björg fjall­aði um stöðu kvenna á vinnu­mark­aði og reynslu sína af því að vera kona í stjórn­un­ar­stöðu þann 31. jan­úar. Í sama mán­uði tjáði Jón Ásgeir sig við Frétta­blaðið um stjórn­ar­kjörið í Högum og mik­il­vægi þess að vernda smærri hlut­hafa.

Nú í dag birt­ist frétt í Frétta­blað­inu undir yfir­skrift­inni Umsvif RÚV stóra vanda­málið. Sú frétt byggir að veru­legu leyti á við­tali við Einar Þór Sverr­is­son, stjórn­ar­for­mann Torgs sem er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur. Kallar hann eftir því í við­tal­inu að stigið verði á brems­una „varð­andi stjórn­lausan vöxt RÚV“ og að hluta þeirra fjár­muna sem ætl­aðir eru Rík­is­út­varp­inu sam­kvæmt fjár­lögum verði úthlutað til einka­miðla.

Í umsögn sem Torg ehf. skil­aði nýlega um fjöl­miðla­frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra er lagt til að það skil­yrði verði sett að starfs­menn rit­stjórnar verði að lág­marki tutt­ugu eigi fjöl­mið­ill að fá end­ur­greiðslu frá rík­inu. Þá er lagt til að hámarks­end­ur­greiðsla verði hærri en 50 millj­ónir á ári. „Öflug frétta­stofa, sem hefur ein­hverja þýð­ingu fyrir sam­fé­lagið, verður ekki rekin af þremur starfs­mönnum. Miðill með svo fáa starfs­menn verður aldrei neitt annað en vett­vangur per­sónu­legra skoð­ana þeirra sem þar starfa, sem að mati Torgs hefur ekki þá þýð­ingu fyrir sam­fé­lagið að rétt sé að styrkja með opin­beru fé,“ segir í umsögn­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár