„Ég vil að allir þeir sem minnast þín hugsi um þig en ekki fíkilinn, því það varst ekki þú“

Aðal­heiður Hulda Jóns­dóttir lést í Grinda­vík í síð­ustu viku eftir lang­vinna glímu við fíkni­sjúk­dóm. Súsanna Margrét skrifar hjart­næm minn­ing­ar­orð um móður sína sem var glað­vær, fyndin, hlý og vildi allt fyrir alla gera.

„Ég vil að allir þeir sem minnast þín hugsi um þig en ekki fíkilinn, því það varst ekki þú“
Vildi fá mömmu sína til baka Súsanna segir að hún hafi oft verið hörð við mömmu sína því hún vildi fá hana til baka úr klóm fíkn­innar. Mynd: Facebook / Súsanna Margrét Gunnarsdóttir

„Mitt lof­orð til þín elsku mamma, er að halda þér á lífi í sjálfri mér. Ég skal varð­veita og til­einka mér alla þína fal­legu eig­in­leika og styrk­inn sem þú hafðir að geyma. Ég vil að allir þeir sem minn­ast þín hugsi um þig en ekki fíkil­inn, því það varst ekki þú.“

Þetta skrifar Súsanna Margrét Gunn­ars­dóttir, dóttir Aðal­heiðar Huldu Jóns­dóttur, 43 ára konu sem fannst látin í Grinda­vík fimmtu­dag­inn 7. febr­úar. Aðal­heiður skilur eftir sig þrjú börn en bæna­stund var haldin í Grinda­vík­ur­kirkju í gær­kvöldi.

„Mín von er sú að þið minn­ist hennar mömmu sem lífs­glöðu Öllu Huldu en ekki fíkils­ins sem varð því miður sterk­ari oft á tíðum og náði mikið yfir á sein­ustu árum,“ skrifar Súsanna, dóttir hennar.

„Þetta er eitt­hvað sem ég reyndi að búa mig undir og grun­aði að myndi ger­ast vegna ann­ar­legs ástands hennar en svo­leiðis er bara ekki hægt að gera. Mig verkjar í hjart­anu að þurfa að horfast í augu við blá­kaldan raun­veru­leik­ann og á ég erfitt með að skrifa eða segja upp­hátt hvað er í raun og veru búið að ger­ast. Fík­ill­inn í henni hafði staldrað við í lengri tíma í senn en hann áður gerði og varð það dýr­keypt fyrir okkar sam­band.“ 

Súsanna segir að hún hafi alltaf verið hörð­ust við mömmu sína og sér þyki það sér­stak­lega erfitt núna. „Ég vildi bara fá mömmu mína til baka en ekki fíkil­inn. Ég elskaði hana meir en orð fá lýst þó ég gat ekki alltaf sagt ég elska þig til baka við hana né horft í augu hennar þegar við töl­uð­umst við og það er eitt­hvað sem ég gat ekki gert í mínu síð­asta sam­tali við hana sem mér þykir ansi þung­bært.“

Hún hvetur fólk til að taka utan um þá sem því þykir vænt um og að taka ekki hverjum degi sem sjálf­sögðum hlut. 

„Þegar fíkil­inn fór í hlé varstu lífs­glað­asta mann­eskja sem ég hef á ævinni kynnst, vin­konur mínar elsk­uðu þig og sumar litu meira að segja á þig sem mömmu númer tvö. Elsku góða hjartað þitt sem þú hafðir að geyma ynd­is­lega mamma mín, vildir allt fyrir alla gera elsku hjartað mitt. Þú varst fyndn­ust í hverju ein­asta her­bergi sem þú labb­aðir inní og það var alltaf gaman í kringum þig. Ég veit ekki hvernig ég fer að án þín en ég veit samt sem áður að þú lýsir leið­ina, fylgir mér og færir mér kraft­inn til að takast á við lífið og gerir hið sama fyrir strák­ana þína, for­eldra og alla þá sem urðu svo heppnir að verða á vegi þínum. Ég elska þig mamma mín, alltaf.“

Súsanna segir mömmu sína hafa lýst upp hvert augna­blik með sínu stóra fal­lega brosi og hlátr­inum. 

„Góð­hjart­að­ari og fyndn­ari mann­eskju hef ég aldrei fundið og veit ég að mörg ykkar hafa sömu sögu að segja um elsku hjart­ans mömmu mína. Ég von­ast til þess að þið hugsið til hennar blíð­lega, minn­ist hennar og talið við hana þó þið sjáið hana ekki lengur. Ég vona að þegar þið heyrið í Whitney Houston þá hugsiði strax til hennar og von­andi dilliði ykkur eða syngið með, því ég veit að hún gerir það með ykkur. Ég vona að hún verði alltaf ljós í hjart­anu ykkar líkt og mínu, ég veit hún gefur okkur styrk­inn sem við sem hana þekktum þurfum og lýsir fyrir okkur leið­ina í gegnum lífið. 

Aldrei hætta að tala um hana, því hún er og verður alltaf hér hjá okkur. Endilega deilið minn­ingum um hana og við skulum minn­ast hennar með kær­leika efst í huga.“ 

Vitnað er í skrif Súsönnu Mar­grétar með góð­fús­legu leyfi hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár