Brynjar Níelsson um mál Jóns Baldvins: „Ég get alveg stofnað síðu“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir kon­urnar 23 sem greina frá meintri áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar á vef­síðu taka rétt­lætið í eigin hendur og reyna að meiða hann.

Brynjar Níelsson um mál Jóns Baldvins: „Ég get alveg stofnað síðu“
Segir Jón Baldvin verða fyrir opin­berri smánun Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að konur sem lýst hafa áreitni og ofbeldi af hendi Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar séu að ráð­ast á mann sem ekki geti varið sig. Mynd: xd.is

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir kon­urnar 23 sem birt hafa sögur sínar af meintri kyn­ferð­is­legri áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar á vef­síðu ráð­ast á hann og reyna að meiða hann. Segir hann að allir geti lent í slíkri opin­berri smánun.

Brynjar var gestur í Bítinu á Bylgj­unni í morgun ásamt Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Var umræðu­efnið opin­ber smánun, í sam­hengi við mál Jóns Baldvins og Klaust­urs­þing­mann­anna.

„Ég get alveg sagt sögur af ósæmi­legri hegðun fólks sem ég hef orðið vitni að eða beinst hefur gegn mér og búið til síðu um það,“ sagði Brynjar. „Það bara hvarflar ekki að mér því ég hef engan áhuga á að meiða fólk með þessum hætti.“

Sagði Brynjar þetta vera hegðun sem ætti ekki heima í íslensku sam­fé­lagi. „Það er svo mik­il­vægt að menn bara líti í eigin barm og velti fyrir sér „ég get líka lent í þessu“,“ sagði hann.

Brynjar sagði að kon­urnar hefðu beðið í ára­tugi og ætlað svo að ráð­ast gegn manni sem eigi engan séns á að verja sig. „Fólk er nátt­úru­lega að taka rétt­lætið í eigin hendur. Og þá á að ráð­ast á og meiða ein­hvern mann af því að hann var ósæmi­legur við mig ein­hvern tím­ann,“ sagði Brynjar.

Aldrei verið vonlaust að sækja réttar síns

Brynjar sagði að kon­urnar væru engu bætt­ari með því að greina frá þessu opin­ber­lega. Aðspurður hvort hann teldi rétt­ar­ríkið hafi verið í stakk búið til að taka á svona málum þegar þau komu upp, sum fyrir yfir 50 árum, sagði Brynjar að það hafi aldrei verið von­laust að sækja réttar síns innan kerf­is­ins. „Þeir sem ein­hverja þekk­ingu hafa á þessu vita að það hefur aldrei verið von­laust,“ sagði hann. „Ef þú telur á þér brotið, þá ferðu til við­kom­andi yfir­valda.“

Helga Vala sagði kon­urnar vera að skila skömminni. „Það er allt í lagi að segja frá því sem gerð­ist. Er það bannað? Það er ekki bannað. Þú mátt segja frá því sem gerð­ist. Þetta er lífið þitt. Af hverju máttu bara segja frá góðum hlutum?“

Brynjar svar­aði því þannig að fólk mætti greina frá því sem hefur hent það. „Fólk segir frá því enda­laust. Þú ert að gera það til að refsa við­kom­andi. Þú getur sagt þínum sál­fræð­ingi, þínum vinum, þínum félögum frá. En það er allt annað en að stofna síðu á net­inu til að safna saman til að refsa ein­hverjum manni sem þér fannst sýna ósæmi­lega hegðun eða hafa brotið gegn þér,“ sagði hann.

„Ég get alveg stofnað síðu sko,“ sagði Brynjar að lokum. „Ég er ekki bættur með því að þeim sem voru með ósæmi­lega hegðun gegn mér líði verr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár