Ekkert skelfilegt að verða fertug

Árný Þór­ar­ins­dóttir hefði skelli­hlegið hefði hún fengið að sjá sjálfa sig fer­tuga þegar hún var tví­tug.

Ekkert skelfilegt að verða fertug

Ég er nýorðin fer­tug. Það var ekk­ert skelfi­legt þótt ég hafi verið dálítið skjálf­hent þegar ég vakn­aði á afmæl­is­morg­un­inn. Þá fannst mér þetta dálítið yfir­þyrm­andi til­finn­ing en hún var fljót að hverfa.

Ég er líka bara þakk­lát fyrir að fá að verða fer­tug og er strax farin að hugsa um allt það sem ég ætla að gera á næsta ára­tug. Ég er til í að ferð­ast á nýja staði, prufa nýja hluti. Kannski kaupi ég mér jafn­vel bara kajak, það er aldrei að vita.

Það eru akkúrat 30 ár á milli mín og mömmu og ég man svo vel eftir því þegar ég var tíu ára og hún fer­tug. Mér fannst það hár aldur, en mér finnst það ekki lengur. Mér finnst ég reyndar lítið hafa breyst síðan ég var tví­tug en ég held samt að ég kunni betur að meta allt það sem ég á. Ég held að það sé kannski helsti þrosk­inn sem ég hef tekið út.

Ég held að ef ég hefði fengið að sjá sjálfa mig fer­tuga þegar ég var tví­tug hefði ég fengið hlát­ur­skast. Ég hefði örugg­lega verið ánægð að sjá hvar ég er stödd en ég hefði pott­þétt samt hlegið. Ég veit ekki af hverju … eða jú, ég veit af hverju, ég vil bara ekki segja það upp­hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár