Starfsmenn Kviku krafðir um endurgreiðslu á vangoldnum sköttum

Kviku gert að greiða tæp­lega 150 millj­ónir til rík­is­ins vegna van­gold­inna skatta og gjalda.

Sóttir til starfsmanna
Sóttir til starfs­manna Pen­ing­arnir sem Kvika þarf að greiða til rík­is­ins út af van­goldnum sköttum og gjöldum verða sóttir til starfs­manna bank­ans segir Ármann Þor­valds­son.

Kvika banki mun ganga á eftir því við hóp starfs­manna sinna sem fékk hluta­bréfa­kaup­rétti í bank­anum árið 2016 að þeir end­ur­greiði bank­anum van­goldna skatta og trygg­ing­ar­gjöld vegna við­skipt­anna. Þetta segir Ármann Þor­valds­son, banka­stjóri Kviku, aðspurður um málið. 

Yfir­skatta­nefnd felldi úrskurð þess efnis þann 19. des­em­ber síð­ast­lið­inn að Kvika skyldi greiða tekju­skatt og trygg­ing­ar­gjöld af arð­greiðslum vegna hluta­bréf­anna upp á rúm­lega 400 millj­ónir króna sem runnu til starfs­mann­anna, alls 34, vegna kaup­rétta þeirra í bank­anum, en Kvika greiddi á sínum tíma aðeins 88 millj­óna króna fjár­magnstekju­skatt af þessum greiðslum. Arð­greiðslur út af hluta­bréfa­eign­inni til ein­stakra starfs­manna Kviku námu á bil­inu 1,5 millj­ónum til rúm­lega 30 millj­óna króna. Því er um að ræða tals­verðar fjár­hæðir sem sumir starfs­menn þurfa að greiða til baka, eða sem mest lætur: Tekju­skatt af 30 millj­ónum króna. 

Mis­mun­ur­inn á fjár­magnstekju­skatt­inum og þeim greiðslum sem Kvika þarf að standa skil á til rík­is­ins í kjöl­far úrskurð­ar­ins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár