WOW sögðu upp fólki í fæðingarorlofi

VR skoðar mál starfs­manna WOW air sem sagt var upp í hóp­upp­sögnum. Rök­stuðn­ingur hafi ekki fylgt eins og krafa sé um.

WOW sögðu upp fólki í fæðingarorlofi

VR er með til skoð­unar mál starfs­manna WOW air sem sagt var upp í hóp­upp­sögnum í des­em­ber. Starfs­menn­irnir voru í fæð­ing­ar­or­lofi og skorti skrif­legan rök­stuðn­ing fyrir upp­sögn­unum eins og lög kveða á um. Frétta­blaðið greinir frá.

13. des­em­ber var 111 fast­ráðnum starfs­mönnum WOW air sagt upp störfum og samn­ingar við verk­taka og tíma­bundna starfs­menn voru látnir renna út. 

„Það hafa nokkrir leitað til okkar sem svo var ástatt um og það er verið að kalla eftir rök­stuðn­ingi fyrir upp­sögn­inni. Þegar fólki í fæð­ing­ar­or­lofi er sagt upp þarf að fylgja rök­stuðn­ingur,“ segir Stefán Svein­björns­son, fram­kvæmda­stjóri VR.

Lög um fæð­ing­ar­or­lof kveða á um að óheim­ilt sé að segja upp fólki í fæð­ing­ar­or­lofi, barns­haf­andi konum og konum sem nýverið hafi fætt barn. Að öðrum kosti þurfi gildar ástæður að vera fyrir upp­sögn­inni og skrif­legur rök­stuðn­ingur að fylgja.

„Meg­in­reglan er sú að það er bannað að segja fólki upp í fæð­ing­ar­or­lofi,“ segir Stefán. „Það er meg­in­reglan, en það er heim­ilt ef gildar ástæður eru fyrir hendi eins og lögin segja, þá þarf þennan skrif­lega rök­stuðn­ing. Það er verið að kalla eftir honum og bíða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár