Íbúar nærri slysstað slegnir: „Skelfilegar fréttir“

Sandra Brá Jóhanns­dóttir, sveit­ar­stjóri Skaft­ár­hrepps, segir sveit­unga sína slegna yfir þeim hörmu­legu atburðum sem áttu sér stað við Núpsvötn í morgun. Þrír breskir ferða­menn létu lífið og fjórir eru alvar­lega slas­aðir. Nákvæm­lega ár síðan tveir létu lífið í alvar­legu bílslysi á svip­uðum slóðum.

Íbúar nærri slysstað slegnir: „Skelfilegar fréttir“

„Þetta eru nátt­úru­lega alveg skelfi­legar fréttir og það er auð­vitað bara hörmu­legt þegar svona ger­ist,“ segir Sandra Brá Jóhanns­dóttir, sveit­ar­stjóri Skaft­ár­hrepps, í sam­tali við Stundina. Þrír breskir ferða­menn lét­ust þegar bif­reið steypt­ist framan af brúnni við Núpsvötn í morgun, þar af eitt barn. Þá eru fjórir alvar­lega slas­aðir, tveir full­orðnir og tvö börn á aldr­inum 7-9 ára. Hin slös­uðu voru flutt með þyrlu á Land­spít­al­ann þar sem þau njóta nú aðhlynn­ingar. Suð­ur­lands­vegi var í kjöl­farið lokað en hann hefur nú verið opn­aður aftur, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Suð­ur­landi.

 „Það er auð­vitað ekki nema ár síðan að hér varð stórt rútu­slys þannig að það er svo­lítið sér­stakt að þetta þurfi að ger­ast aftur sama dag og árið áður“

Sandra Brá segir sveit­unga sína slegna yfir þessum hörmu­legu atburðum en fyrir nákvæm­lega ári síðan varð alvar­legt bílslys á svip­uðum slóðum þegar rúta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár