Syndir mæðranna – Um Drottninguna á Júpíter eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur

Kynn­gi­mögnuð, villt og óreiðu­kennd skáld­saga um skáld­skap­inn sjálfan, sköp­un­ar­kraft hans og eyð­ing­ar­mátt. En líka um það sem tengir okkur og sundrar okkur. Og um sirkus­inn, bar­inn og mömmu.

Ekki bók til að henda í ruslið
Ekki bók til að henda í ruslið Ólíkt ljóðum aðal­sögu­per­són­unnar, sem lentu víst í rusl­inu á Bravó, á Drottn­ingin af Júpíter skilið veg­legan sess.

Münchausen-heil­kenni kall­ast áráttu­kennd hneigð fólks til þess að gera sér upp veik­indi. Ekki til að forð­ast vinnu eða neitt álíka, heldur af því sjúk­ling­ur­inn hefur tekið ást­fóstri við hlut­verki sjúk­lings­ins. Svo er tengt afbrigði af sjúk­dómnum þar sem heil­kenn­inu er þröngvað upp á aðra, oft­ast þannig að for­eldrar sann­færa börnin sín um að þau séu veik.

Nú er ekki hægt að full­yrða neitt um að ein­hver per­sóna Drottn­ing­ar­innar í Júpíter þjá­ist af akkúrat þessum kvilla, en ein­hvern veg­inn leit­aði hug­myndin um þetta óvenju­lega heil­kenni ítrekað á mig við lest­ur­inn. Eleanóra María Lísu­dóttir býr heima hjá Lísu mömmu sinni, sem glímir við alvar­leg and­leg veik­indi og að virð­ist ein­hver lík­am­leg sömu­leiðis. Við vitum svosem aldrei nákvæm­lega hvað hrjáir hana – það er helst að það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár