Fékk ástríðuna fyrir góðgerðarmálum frá afa

Hin ýmsu góð­gerð­ar­verk­efni hafa notið góðs af ástríðu Heklu Guð­munds­dóttur. Frá því að hún var lítil stelpa hefur hún fundið hjá sér ríka þörf til að hjálpa öðrum. Hún lærði það af afa sínum hversu gef­andi það væri að létta öðrum lífs­byrð­ina.

Fékk ástríðuna fyrir góðgerðarmálum frá afa
Vill láta gott af sér leiða Hekla Guð­munds­dóttir hefur staðið fyrir hinum ýmsu góð­gerð­ar­söfn­unum í gegnum tíð­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hekla Guð­munds­dóttir hefur vakið eft­ir­tekt á sam­fé­lags­miðlum fyrir ástríðu sína fyrir hinum ýmsu góð­gerð­ar­verk­efnum sem hún hefur komið að. Hún vissi aldrei almenni­lega hvað hún ætl­aði að verða þegar hún yrði stór. Það var aldrei neitt praktískt nám sem heill­aði hana beint. Hún gerði heið­ar­lega til­raun er hún hóf nám í við­skipta­fræði, sem var bara ekki alveg að virka fyrir hana. „Þetta praktíska nám átti ekki við mig og ég var óviss framan af hvert skyldi stefna. En strax á bernsku­árum komu þó vissir þættir mér skýrt fyrir sjónir sem voru að ég fann hjá mér ríka þörf til þess að vera til staðar og aðstoða þá sem væru á við­kvæmum stað í líf­inu eða gang­andi í gegnum erfið tíma­bil. Því er kannski ekki furða að ég hafi snemma fundið hjarta­mál mín bein­ast að góð­gerð­ar­málum.“

Áhrif afa

Í afa­fangiHekla fékk það frá afa sínum …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár