Við fluttum hingað til að sonur okkar gæti öðlast betra líf

Pabbi Maríönnu Sveins­dóttur er Íslend­ingur og mamma hennar er Mexíkói. Hún hefur nær alla tíð búið í Mexíkó en er nýflutt til Íslands með eig­in­manni og tveimur börnum.

Við fluttum hingað til að sonur okkar gæti öðlast betra líf

Ég er hálfur Mexíkói og hálfur Íslend­ingur. Fyrsta árið af ævi minni bjó ég á Íslandi með báðum for­eldrum mínum. Svo skildu þau og við mamma fluttum til Mexíkó. Nær allt líf mitt hef ég búið í einni fal­leg­ustu borg­inni þar, San Miguel de Allende. Það er ynd­is­leg borg, en sextán ára sonur minn er sam­kyn­hneigður og það getur verið erfitt í Mexíkó. Þess vegna fluttum við fjöl­skyldan hingað fyrir um ári síðan, svo að sonur okkar gæti öðl­ast betra líf.

Ég hef komið hingað í heim­sókn nokkrum sinnum en það er auð­vitað allt öðru­vísi að vera ferða­maður heldur en að búa hérna og koma undir sig fót­unum. Börnin mín lentu bæði í ein­elti í skól­anum. Strák­arnir stríddu honum fyrir að vera hommi, sem kom okkur á óvart, því pabbi hafði sagt mér að hvergi í heim­inum væri betra að vera sam­kyn­hneigður en einmitt hér. Dóttir mín var lögð í gróft ein­elti. Það var sárt, því hún var svo jákvæð og hlakk­aði svo til að flytja hingað. Við þurftum að láta þau bæði skipta um skóla.

En nú er þetta allt á upp­leið. Strák­ur­inn minn er kom­inn í mennta­skóla, er búinn að eign­ast kærasta og þeir eru glaðir saman. Smám saman er sjálfs­traust dóttur minnar að byggj­ast upp aftur. Hún er samt hrædd við að reyna að eign­ast vini. Hún ótt­ast stöðugt að verða særð og að segja eitt­hvað vit­laust.

Þrátt fyrir allt elskum við að búa hérna. Það allra besta er að geta verið nálægt ömmu minni. Hún er orðin 93 ára og ég bjóst ekki við að hitta hana nokkurn tím­ann aftur. Nú er ég nálægt henni og bý í fyrsta sinn í sömu borg og systir mín og bræður. Að vera svona nálægt fólk­inu mínu er það besta við að búa hér á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár